Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.1998, Qupperneq 13

Heima er bezt - 01.02.1998, Qupperneq 13
Ég ók heyi heim á langgrindarkerru er einn hestur dró og tók hún fimm bagga í ferð, en það var nú lítill hluti af því heyi sem oft var hirt á dag. Það sem ekki komst heim var borið upp í hey á engjun- um. Ég man eftir að heildarheyskapur komst upp í 1200 bagga eitt sumarið. Snemma fór ég að slá með hestasláttuvél, en þar sem fætur mínir voru svo stuttir að ég náði ekki niður á vél- ina, beygði ég þá bara undir sætissetuna og gat þannig gert gagn. En það má geta þess hér, sem mun hafa verið fátítt um sveitastráka á þessum tíma er ég var að alast upp, að ég lærði aldrei að slá með orfi og ljá. Arið 1948 keypti ég vörubíl, Ford, árgerð 1947, og ók honum í nokkur ár eða þar til ég losnaði við bílabakterí- una. A þessum bíl voru auðvitað smá gallar, en þegar ég var búinn að láta lengja grind hans, setja undir hann lengri afturijaðrir, dempara við framfjaðrir og svamp í stað gorma í sæti hans, var þetta ágætur bíll. Veturinn 1949 bað nágranni minn mig að sækja hey á einn bíl er hann hafði keypt af öðrum bónda í sveitinni. Til að komast að heyinu þurfti ég að aka yfir Víkinga- vatnið er ég taldi vera á vel heldum ís. Svo óheppilega vildi til að ég ók ofan i opna vök er var skammt frá landi. Þetta gerðist þótt þaulkunnugur maður væri mér til leið- sagnar. Vök þessi var við enda tanga sem gengur út í vatnið og ók ég því mjög hægt til þess að ná beygju er þar var. Vökin var nokkuð mátuleg fyrir stærð bílsins og var botn hennar með miklum halla frá landi og ætla má því að ef ferð bílsins hefði verið örlítið meiri hefði ís- skörin skorið hús hans í sundur og hefði þá ekki þurft að spyrja að leikslokum. Ástæðan fyrir þessu óhappi var sú að nóttina áður gerði norðan hvassviðri og skóf þá í sandskafla frá sjónum yfir ísinn, sem var með svo líkum lit og vökin að ég sá ekki mun þar á. Seint um daginn náðist bíllinn upp úr vökinni með ómetanlegri hjálp sveitunga minna. Fjölskylda Upp úr 1950 fór ég að hugsa um konuefni mér til handa en á því sá ég alls konar annmarka fyrir svo mein- gallaðan mann sem ég taldi mig vera. En þó fóru leikar svo að Björg Margrét Indriðadóttir, hér í Lindarbrekku, varð mín kona og giftum við okkur 12. nóvember 1952. Björg er dóttir Indriða Hannessonar frá Kelduneskoti og Kristínar Jónsdóttur frá Keldunesi, en þau hjónin byggðu nýbýli að Lindarbrekku og ráku þar gisti- og greiðasölu um langt árabil. Við byggðum nýbýlið Kvistás á sjötta áratugnum og fluttum þar inn 1959, en fram að því vorum við í Laufási. Okkur fæddist drengur á sjúkrahúsinu á Akureyri 5. febrúar 1954, er andaðist 9. febrúar sama ár, en síðan Eiginkona og sonur Haraldar, Björg Margrét Indriða- dóttir og Indriði Vignir. fæddist Indriði Vignir 15. júlí 1956 og hefur hann verið á heimilinu hér síðan. Vélaviðgerðir Á árunum milli 1950-60 fór ég að vinna að vélavið- gerðum ásamt annarri vinnu en svo byggði ég mér véla- verkstæði, sem ég tók í notkun 1964 og síðan hafa við- gerðir og vélafikt verið mín aðalvinna, eins og ég segi oft. Fyrir um það bil 30 árum, þegar fólksbílaeign lands- manna var aðeins angi þess sem nú er, var það svo að þegar ákvörðun hafði verið tekin um að fara í sumarfrí með fjölskyldu og jafnvel nánustu vini, varð fýrst að gaumgæfa hve margir fullorðnir færu í ferðina. Síðan varð að athuga hve margir hinna fullorðnu treystu sér til að sitja undir börnum og unglingum og er þessar tölur lágu fyrir var farið að huga að þeim búnaði er talinn var nauðsynlegur til ferðalagsins, sem venjulega reyndist svo mikill að hann komst aðeins að hluta til í farangurs- geymslu bílsins. Þess vegna var þotið til að kaupa topp- grind og hún fyllt svo sem frekast mátti verða og að því loknu var komið að brottför. Þegar farið var af stað mun það hafa verið algengt að þyngd farþega og farangurs nálgaðist tvöfalda uppgefna burðargetu bílsins og því var fjarlægð vegar og undirvagns eðlilega svo lítil að er ekið var eftir gömlu, niðurgröfnu vegunum okkar, með aðeins einum hjólforum og grófan og grýttan malarhrygg á milli, þá var það skiljanlegt að allur undirvagn bílsins væri í bráðri hættu og því fór fríið hjá mörgum í það eitt að skrönglast á milli viðgerðarverkstæða með undanrifin pústkerfi, götótta bensíngeyma, sprungnar og rifnar slöngur og rifin dekk, ásamt brotnum fjöðrum, en þetta voru algengustu bilanimar í bílum á þessum árum. Frásögn mín hér að framan um sumarleyfisferðir Heimaerbezt 53

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.