Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.1998, Blaðsíða 18

Heima er bezt - 01.02.1998, Blaðsíða 18
Valgeir Sigurðsson: Við skulum bregða okkur sem snöggvast rösklega tuttugu ár aftur í tímann. Það er komið fram í desember árið 1976. Sólin hefur ennþá einu sinni fjarlœgst norðurhvelið, skammdegismyrkrið umlykur tún og engi, hús og hibýli manna og dýra. En þar sem við erum nú stödd í huganum, er bjart, hlýtt og glatt. Við sitjum inni í stofu að Hátúni 10-b, í Reykjavík hjá þeim hjónunum Helgu Jónsdóttur og Erlendi Jónssyni. Erindi okkar er að hlýða áfrásgnir Erlends, en hann kann frá mörgu að segja, er fundvís á skopleg og skemmtileg atvik úr mannUfinu og alls ófeim- inn, þótt við söguna komi menn sem eru honum ná- komnir. Segir sem er, að ekki geti hann borið ábyrgð á orð- um og geröum manna, sem voru uppi löngu fyrir hans daga. Hugsað til horfinna manna Tal okkar berst fljótlega vestur á Mýrar, þar sem Egill Skalla- grímsson gerði garðinn fræg- an á sinni tíð. Afkomendur Egils Skallagrímsson- ar? - Þú munt vera ættaður af Mýrum, Erlendur. - Já, rétt er það. Ég fæddist 28. september 1896, á Jarðlangsstöðum á Mýrum. Þorgeir jarðlangur var land- seti Skallagríms gamla og þeirra feðga, og þaðan mun nafnið á bænum komið. Ég hef mikið velt því fyrir mér hvað þetta nafn muni þýða, en ekki fundið neina viðhlítandi skýr- ingu á því. Ég átti einu sinni tal um þetta við séra Einar heitinn á Borg, sem var mjög fróður maður. Hann lét sér helst detta í hug að Þorgeir hefði verið mikill jarðeigandi í Noregi og að hann hefði þess vegna verið kall- aður jarðlangur. Þessa tilgátu sel ég ekki dýrara en ég keypti hana, en hún var nú það sem séra Einari datt helst í hug. - Er nokkurt svipmót með samtíðar- mönnum þínum á Mýrum og Agli Skallagrímssyni og frændum hans, eins og þeim er lýst í Egilssögu? - Ekki er ég frá því að Guðmundur afabróðir minn í Stangarholti, hafi verið sviplíkur Borgarmönnum hin- um fomu, þótt ekki hafi ég lýsingar á þeim, aðrar en þær, sem lesa má í sögum. Ég sá Guðmund á seinustu ævidögum hans og hann kom mér þannig fyrir sjónir að verulegur svip- ur hefur getað verið með honum og Agli Skallagrímssyni, eins og honum hefur verið lýst. Einkum fannst mér þetta geta átt við brúnasvipinn. Ekki er ég heldur frá því að skapgerðin hafi verið keimlík. Guðmundur þótti skap- harður og óvæginn nokkuð, þótt hins vegar hefði hann jafhframt marga góða kosti. Eftirminnilegt bónorð - Getur þú ekki sagt lesendum okkar eitthvað af forfeðrum þínum? Ogþá á ég ekki við Egil Skallagrímsson. - Jú, það get ég. Ég get til dæmis sagt frá langafa mínum, Guðmundi Erlendssyni, sem bjó á Jarðlangsstöð- um. Hann var sonur Erlendar ríka á Ánabrekku og bjó þar eitthvað á fyrstu búskaparárum sínum. Hann bað sér konu með dálítið sérkennilegum hætti, og best er að ég segi þá sögu hér. Á þeim tíma var sá prestur á Borg á Mýrum, sem Jón hét og var Magnús- son. Hjá honum voru vinnuhjú, sem henti það að eignast dóttur í lausaleik, og var hún alin upp á Borg, enda lá það orð á, að prestur væri ekki ólík- legri til að vera faðir hennar en vinnu- maðurinn, sá er við henni gekkst. Nú óx stúlkan upp og þegar hún var gjaf- vaxta, lagði Guðmundur langafi minn hug á hana. Svo var það einhvem tíma við messu á Borg, að Guðmundur stóð upp í kirkjunni og sagði upp yfir allan söfnuðinn: „Öll lágmæli komast í hámæli, viltu eiga mig, Jóhanna?“ Stelpan svaraði: „Já,“ og þar með var það útkljáð mál. En grunur margra var sá, að Guð-

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.