Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.1998, Page 21

Heima er bezt - 01.02.1998, Page 21
holti sem oftar. Guðmundur fór til dyra, þegar bankað var, og þá var Sig- urbjörg þar fyrir. Þá varð Guðmundi að orði: „Þú hefúr víst vonast eftir öðrum til dyra en mér. Nú er Guðrún dáin. En þú kemur nú samt inn.“ Síðan leiddi hann Sigurbjörgu í bæ- inn og sagði við vinnukonumar: „Þið afgreiðið þessa stúlku eins og vant er, þið vitið hvemig það hefur verið gert.“ Hann vildi ekki að bmgðið væri út af þeirri venju, sem kona hans hafði haft, þótt hún væri nú ekki lengur til þess að stjóma, og skipti þá ekki máli þótt hann hefði stundum áður ekki verið alls kostar ánægður með ráðslag hennar. Svona var nú þetta. Það voru marg- ar góðar taugar í Guðmundi í Stangar- holti, þótt hinu hafi verið meira á lofti haldið, sem miður var. Dálítið hefur varðveitst af tilsvörum Guðmundar, en því miður kann ég ekki nema fá þeirra. Sagt var að hann hefði átt í útistöðum við eina grann- konu sína og að ýmsar hnútur hafi flogið á milli þeirra. Svo sagði einhver nágranninn við Guðmund, að hún væri nú mikill skömngur þessi kona. Þá á Guðmundur að hafa svarað: „Já, skömngur er hún, en brennd í báða enda.“ Svo þurfti ekki að tala meira um það. - Kannt þú ekki fleira um Erlend afa þinn en það sem þú ert þegar búinn að segja mér? - Jú, eitthvað fleira er til. Síðasta haustið sem afi lifði, var 1904. Hann átti þá svartan forystusauð og slátraði honum þá um haustið. Eg man eftir því að ég var á blóðvellinum, þegar afi var að gera sauðinn til. Þá sagði hann við aðkomumann, Svein á Hvítsstöðum, sem var að hjálpa pabba við slátrunina: „Hann á að fara í erfið mitt, þessi,“ og átti auðvitað við sauðinn. Nú, svo var ekki meira rætt um þetta að sinni. Sauðarkrofið var hengt upp í eldhús og reykt. En í apríl um vorið dó afi, og þá var soðið af þessu ágæta hangikjöti handa þeim, sem fylgdu gamla manninum til grafar. Þannig rættist það sem hann hafði sagt haustið áður, hvort sem það var tilviljun eða þá hitt, að hann hafi gmnað hversu langt hann ætti eftir. Saga til næsta bæjar - Efvið víkjum nú ofurlítið að sjálf- um þér: Það hefur svo orðið hlutskipti þitt að búa á slóðum forfeðra þinna? - Já. Ég fæddist á Jarðlangsstöðum, eins og ég sagði áðan, fyrir réttum áttatíu árum. Foreldrar mínir vom Ragnhildur Erlendsdóttir, bónda á Jarðlangsstöðum, og Guðlaugar Jóns- dóttur konu hans. Faðir minn var ætt- aður úr Dölum, sonur Bjöms Krist- jánssonar, bónda að Seljalandi í Hörðudal í Dalasýslu, og Hólmfríðar Jónsdóttur konu hans. Sagt var að í móðurætt minni væri margt kraftmik- illa karla, og líklega er eitthvað til í því, eins og ffam hefur komið hér á undan. Foreldrar mínir byrjuðu búskapinn á Jarðlangsstöðum og bjuggu þar fyrst rétt um hálfan annan áratug, til 1905. Þá fluttust þau að Ölvaldsstöðum í sömu sveit og bjuggu þar það sem eft- ir var búskapar þeirra. Af mér er það að segja, að ég fluttist að Jarðlangs- stöðum árið 1926, fór þá að búa þar og bjó til ársins 1942. Þá hætti ég og fluttist til Reykjavíkur. Veturinn 1916-17 var ég á ung- lingaskóla hjá séra Ólafi í Hjarðar- holti í Dölum, en rúmlega tvítugur fór ég á bændaskólann á Hólum. Það var fyrsti veturinn sem Páll Zophoníasson var skólastjóri þar. Á Hólum var ég í tvo vetur og lauk búfræðiprófi þaðan. Ég hafði sama hátt á og margir jafnaldrar mínir á þeim árum. Ég keypti mér afsláttar- hross, reið því norður, lét fella það þar og lagði matinn á borð með mér um veturinn. Uppistaðan í fæði okkar skólapilt- anna var hrossakjöt, það var ódýrasta kjötið, og þá var meira horft í aurana en nú. Á vorin gengum við flestir heim, og ég líka, þótt ég væri langt að kominn. Ég man, að ég var að strekkja við að hafa dagleiðirnar sem lengstar og gista sem sjaldnast, svo að farareyririnn entist mér alla leið heim. Auðvitað var gistingin ekki dýr, þetta tvær til þijár krónur, en menn urðu þó að eiga þessar krónur til. Þetta er harla ólíkt því sem nú tíðkast. í fyrra vissi ég dæmi þess, að skólapiltar frá Hólum komu með flugvél hingað til Reykjavíkur og fóru með bílum héðan, sumir upp í Borg- arfjörð, aðrir austur í Ámessýslu, og þó var frí þeirra ekki nema ein einasta helgi. Þetta hefði þótt saga til næsta bæjar, þegar ég var á Hólum, en það hefúr nú líka margt breyst síðan. Hlakka til að hitta þá - Eg heyri Erlendur, að þér verður oft hugsað til forfeðranna, þess fólks sem lifði í landinu á undan okkur. - Já, það er alveg rétt. Mér verður oft hugsað til forfeðra minna og ég vildi gjama að ég hefði fengið fleiri eiginleika frá þeim en raun er á. Haft var eftir séra Einari á Borg, sem var vel heima í sögu, að það væri alveg sama hvar gripið væri niður í Islend- ingasögumar, það væri hvergi hægt að reka hann á stampinn, „karlinn í Stangarholti.“ Það var Guðmundur afabróðir minn. Ég hygg, að Guð- mundur hafi KUNNAÐ sögurnar okkar, og mér er ekki grunlaust um að hann hafi lagt nokkra stund á að líkj- ast fornmönnum í ýmsu. Ég hef miklar mætur á þessum gömlu mönnum, og ég væri síður en svo á móti því að fá að hitta þá og spjalla við þá. Reyndar held ég að þetta sé meira en óskhyggjan ein. Mér hefúr verið sagt að afi minn fylgist alltaf með mér og sé vemdari minn, ef ég má komast svo að orði. Hvort sem þeta er rétt eða ekki, þá er hitt alveg víst, að EINHVER fylgist með ferð- um mínum og lætur sig varða líðan mína, það hef ég margoft orðið var við. Skrifað í desember 1976. Heima er bezt 61

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.