Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.1998, Page 23

Heima er bezt - 01.02.1998, Page 23
Húmdöggin milda hugrif hjá oss vekur hugarins beiskju alla frá oss tekur. Sólmánuður er þriðji mánuður sumars og samkvæmt gamla almanakinu er hannn fyrsti mánuður ársins. Hann byrjar fyrsta mánudag eftir 17. júní og endar fyrsta laugardag eftir 21. júlí: Sólmánuður sólarríkur, sýnir bæði Ijós ogyl. Blítt um vanga blærinn strýkur, blessun öllu gerir skil. Landsins ávöxt byggðum bera, bændur sjá sinn iðju vott, og á sjónum sáttir gera, sjómenn kveða um Ægi gott. Glitrar hafsins góður spegill, gerir mynd af bátsins kinn. Ifjöru bíður fagur Þengill, fagnar skipi brátt um sinn. Heyannir er tjórði mánuður sumars og byrjar iyrsta sunnudag eftir 21. júlí og endar fyrsta mánudag eftir 20. ágúst: Heyannir byrja á hásumardegi, hæfði það bændum á íslenskum vegi. Blessun hvers bónda á frostköldum vetri, að bera fram forða á landmannsins setri. Tvímánuður er fimmti mánuður sumars og byrjar fyrsta þriðjudag eftir 20. ágúst og endar fyrsta mánudag eftir 19. september: Um tvímánuð ég tala vil, telur hann góða daga. Oft þá koma kuldaskil, sem koma mjög til baga. Lækkar sól um landið hér, lóur hópinn halda. Kveðjuljóðin kyrja mér, og kveðja landið kalda. Jón S. Bergmann var fæddur á Króksstöðum í Miðfirði 30. ágúst 1874. Hann orti eftirfarandi stökur: Það er bölvun okkar enn, eins og fleiri landa, þar sem tómir meðalmenn molda frjálsan anda. Bátar fiskum fylltu skut, fjarri Víkursandi; samt fær Mörður hærri hlut hérna á þessu landi. Beittu í laumi kjafti og kló, kærleika til vara. Þá ertu efni I Oddfellow eða frímúrara. Það er eins og andleg pest eyrun gegnum skríði, þegar ég á pokaprest predikandi hlýði. Yfir lífsins öldusog eftir blindri hending, held ég inn á he!jar\>og hann er þrautalending. Sigurborg Björnsdóttir frá Barká í Hörgárdal f. 1878 orti eftirfarandi: Kvöld Nú er ekki lengur Ijótt að líta út á kvöldin. Myrkrið er að missa þrótt, máninn tekur völdin. Mælt við rukkara Settu upp hattinn, hnepptu frakkann, hafðu á þér fararsnið. Mér finnst betra að horfa á hnakkann heldur en sjá I andlitið. Um skáld Ljótt er fyrir Ijóðasmið lækinn frjálsa að binda, þagga niður kvæðaklið kátra fjallalinda. Auður og örbirgð Sumir eru fangar og sumir eru gestir og sumir eiga hvergi í veröldinni skjól. Þó er löngu sannað að þeir eru ekki bestir sem eiga þessi dýru og fögru höfuðból. Látum við svo lokið þættinum að sinni en minnum á heimilisfangið: Heima er bezt, Skjaldborg, Armúla 23, 128 Reykjavík. Heima er bezt 63

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.