Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.1998, Page 24

Heima er bezt - 01.02.1998, Page 24
GUÐMUNDUR GUNNARSSON: etta haust voru enn tvö atriði sem hvöttu til að heim- sækja Suðurland og höf- uðstaðinn. Þá var að heijast sú starfsemi er síðan hefur dafinað og þróast, að kennarar gætu sótt námskeið sér til end- urmenntunar og upprifj- unar í fræðum sínum. Hið fyrsta slíkra nám- skeiða skyldi haldið í Reykjavík um miðjan september 1965 og þar hafði ég fengið inn- göngu. Hitt tilefni langferðar var að kennarar við hér- aðsskólana, sem þá stóðu í blóma alls 8 tals- ins, höfðu einmitt fyrr á árinu bundist samtökum að efla innbyrðis kynni og félagsanda með því að koma sem flestir saman um eina helgi í einhverjum skólanna. Hin fyrsta af slíkum samkomum var einmitt fyrirhuguð síðari hluta mánaðar- ins að Skógaskóla undir Eyjafjöllum. Engin dagbók er fyrir hendi frá þessum tíma svo að ekki verður fundin nákvæm dagsetning á upphafi ferðar- innar en a. m. k. var liðin vika af september þegar lagt var af stað. Vegna námskeiðsins og áðurnefndrar sam- komu kennara átti ferðin að taka lengri tíma en venju- lega, 2-3 vikur, og auk þess átti að bregða út af hinni hefðbundnu þjóðleið frá Þingeyjarsýslu til Reykjavíkur og kanna áður ókunnar slóðir. Ætlunin var að aka Kjal- veg suður og auk þess líta augum hinn þekkta ferða- mannastað, Þórsmörk. Ýmislegt hafurtask þótti því nauðsynlegt að taka með í langferðina, fatnað, nesti og viðlegubúnað. Því kom sér vel að farkosturinn var sæmilega rúmgóður, einn virðu- legasti fjallabíll þeirra tíma, Rússajeppinn góðkunni, GAZ - 69. Sá sem hér um ræðir var ekki alveg nýr af nálinni, ár- gerð 1956, og því einn hinna fyrstu er komu hingað til lands og í ár- anna rás hafði verið byggt á hann traustlegt hús. Ekki höfðu þó þægindi innan þess ver- ið aukin að sama skapi. Óbreytt var sú sæta- skipan að fremst í bíln- um voru tveir stólar fyrir bílstjóra og einn farþega en aðrir farþeg- ar áttu sæti á lang- bekkjum meðfram hliðum hússins. Rýmið milli þeirra, aftan við stólana, gat tekið við töluverðum farangri og meira en það. Þar var útbúnaði okkar öllum komið fyrir og dætur okkar tvær, þá 10 og 5 ára sem með voru í ferðinni, hreiðruðu ein- hvern veginn um sig í hrúgunni. Nú ber þess að geta að áður en við lögðum af stað höfðum við svo að segja frá fyrstu hendi fengið upplýsingar um aðskiljanlegar náttúrur sæluhússins í Hvítárnesi þar sem fyrirhuguð var gisting á leiðinni suður Kjöl. Á Laugum voru þá búsett hjónin Ingibjörg Sigurðardóttir frá Úthlíð í Biskupstung- um og Hróar Björnsson, smíðakennari við Laugaskóla. Hvítárnes er einmitt á afrétti Biskupstungnamanna og kunnu þau því mætavel skil á sögusögnum um reimleika í húsinu og þar með að þeirra yrði eingöngu vart í einu herbergi í suðausturhorni hússins. Orsök þess átti að vera sú að einmitt þetta horn næði út í hinar fornu bæjar- rústir sem þarna sést móta fyrir. Með þessa vitneskju í veganesti ókum við af stað frá Laugum eftir hádegi þennan septemberdag. Veðri var svo háttað að norðanátt var á, skýjað loft en úrkomulaust og brá fyrir sólarglömpum, haustkuldi hafði lagst yfir land- ið. Eðli sínu trúr arkaði Rússajeppinn leiðina hægt en örugglega og brá ekki þeim vana sínum þegar kom upp á Haustið 1965 var ég búsettur að Laugum í Suður-Þingeyjarsýslu, kennari við héraðsskól- ann þar. Sumarleyfi mitt frá kennslu og próf- um var frá mánaðarmótum maí - júníþar til um miöjan október. Um árabil var það ófrá- víkjanlegt að fara til Reykjavíkur í september að heimsœkja móður mína og tvœr systur mín- ar sem allar voru búsettar þar. Tímasetningin helgaðist af því að þá var venjulega lokið sum- arvinnu sem stunduð hafði verið, en kennsla ekki byrjuð svo sem áður segir. 64 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.