Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.1998, Page 33

Heima er bezt - 01.02.1998, Page 33
valmenni, afburðamaður að hreysti og harðfengi. Fyrri kona hans, 1544, var Guðrún Hannesdóttir hirðstjóra Eggertssonar á Núpi í Dýrafirði. Þorlákur og Guðrún áttu aðeins einn son, Gissur sýslumann á Núpi. Síðari kona Þorláks var Vigdís Þórólfsdóttir frá Hjalla í Ölfusi Eyjólfssonar. Þau áttu mörg börn. Guðrún Hannesdóttir og tvær systur hennar giftust bræðr- um: Guðrún átti Þorlák, Katrín Giss- ur biskup og Margrét átti Halldór í Selárdal. Þorlákur er fyrstur þessarar ættar sem býr óslitið á Núpi í Dýra- firði, fallegri jörð í fallegu umhverfi. Þar bjó um árabil Hannes tengdafað- ir hans og það er eimitt með konu sinni sem Þorlákur fær Núpinn og eru miklar sögur og jarðamál þar á bak við. Þau giftust árið 1544. En saga er til um að árið 1521 hafi Guð- rún Björnsdóttir Guðnasonar, kona Hannesar hirðstjóra Eggertssonar, verið ein heima þegar óaldarflokkur undir stjórn Ara Andréssonar hafi gert árás á Núp. Guðrún flýði í kirkju. Varð Ari með dómi á Öxarár- þingi að skila öllu því sem hann rændi. Núpur var eitt besta og þekktasta höfuðból á íslandi. Guðmundur Arason á Reykhólum átti fyrir konu Helgu Þorleifsdóttur Árnasonar, systur Björns ríka á Skarði (sjá hér fyrr). Guðmundur var efalaust ríkasti bóndi á íslandi um sína daga. Hann átti mörg höfuðból, meðal þeirra var Núpur og honum fýlgdu 33 jarðir. Guðmundur erfði þessa jörð eftir föður sinn, sem hefur fengið hana með konu sinni, Ólöfu Þórðardóttur. Trúlega hafa þau gift sig 1394. En hver var nú áhöfnin á Núpi 1446: 42 kýr, 13 uxar þrevetrir og eldri, 8 tvævetrir með kvígum, 18 naut vet- urgömul, 12 vetrarkálfar, aðrir kálfar eigi taldir, 140 ær, 97 gamlir sauðir og hrútar og 67 veturgamlir, 100 lömb, 10 svín gömul og 2 gyltur að auki, með sjö grísum hvor, 7 geld- hestar og stóðhestur, 6 hryssur og 8 tryppi. 23. Gissur Þorláksson, sýslumað- ur Núpi, fæddur um 1550, fórst í snjóflóði á Hrafnseyrarheiði seint á þorra 1596. Gissur var mætur maður, sigldi og var utanlands um tíma, tók að búa á Núpi 1584 og bjó þar til æviloka, var jarðaður hjá föður sín- um fyrir kirkjudyrum að Núpi. Kona Gissurar var Ragnheiður Staðarhóls-Pálsdóttir Jónssonar og konu hans Helgu Aradóttur lög- manns Jónssonar biskups Arasonar. Staðarhóls-Páll var af voldugum höfðingjaættum, sérvitur úr hófi fram og með litríkari persónum sem sagan segir frá. Sagt er að ást þeirra Páls og Helgu hafi verið svo mikil að þau yfirgáfu ekki rúmið fyrstu sex vikur hjónabandsins, en heldur rén- aði ástin með árunum. Gissur og Ragnheiður áttu tvo syni, Magnús bartskera á Lokinhömrum, merkan mann, og Jón lögréttumann og sagnaritara sem síðar getur. Sveinn prófastur í Holti í Önundar- firði var fenginn til að færa Ragn- heiði tíðindin um fráfall manns hennar, var það talið vandaverk því konan var skapstór eins og sumir for- feður hennar. Sagt er að hún hafi eft- ir fyrstu viðbrögð sín sagt við prest: „Fyrst þú hryggðir mig, séra Sveinn, þá er þér skyldast að gleðja mig aftur.“ Og nokkru síðar bað sr. Sveinn hennar og brúðkaup þeirra fór fram að Núpi 14. sept. 1600. Þau lifðu í hjónabandi 36 ár og áttu tvo syni, Gissur prest á Álftamýri og Brynjólf Sveinsson biskup. Ýmsar sagnir eru til um Ragnheiði. Sonur Gissurar eins og fyrr segir: 24. Jón Gissurarson bóndi og lög- réttumaður á Núpi, fæddur um 1590, dáinn 5. nóv. 1648. Lögréttumaður írá 1628. Hann var merkur maður, sigldur og lærður gullsmiður, fræði- maður, skrifaði um siðaskipti á ís- landi. Hann kvæntist árið 1616 Þóru Ólafsdóttur frá Hjarðardal í Dýra- firði, Jónssonar sýslumanns í Hjarð- ardal Ólafssonar. Sonur þeirra og eina barn var: 25. Torfi Jónsson fæddur 9. okt. 1617, dáinn 20. júlí 1689. Hann virð- ist hafa alist að einhverju leyti upp hjá frændum sínum í Holti í Önund- arfirði, sr. Sveini og Jóni syni hans. Hann er 11 árum yngri en Brynjólfur Sveinsson biskup, sem var hálfbróðir Jóns föður hans. Þar hefur því hafist þeirra samstarf og Torfi varð stúdent 1638 frá Skálholti, fór utan til Kaupmannahafnar en gerðist síðan heyrari í Skálholti. Fékk Hrafnseyri en sleppti henni vegna þess að Brynjólfur biskup vildi hafa hann í nágrenni við sig. Hann varð svo prestur í Gaulverjabæ og var það frá 1662 til æviloka 1689. Hann var vel gefinn og mikill merkisklerkur, samdi ævisögu Brynj- ólfs, varð stórauðugur, einbirni ríkra foreldra, erfði föðurbróður sinn Magnús og að miklu leyti Brynjólf biskup. Torfi var mjög handgenginn bisk- upi og ekki spillti það að þeir urðu svilar, áttu sína systurina hvor, bisk- upinn Margréti en Torfi Sigríði, dæt- ur Halldórs lögmanns Ólafssonar. Torfi sá að lokum um jarðarför Brynjólfs og í kistu Brynjólfs voru látnar bækur: Nýja testamentið á grísku, Davíðssálmar og Fjórir guð- spjallamenn, sem Jón biskup Arason á Hólum lét útleggja og þrykkja. (Biskupas. J.H., II, 377; Menn og menntir, I, 410-12). Börn þeirra Sigríðar voru Sveinn klausturhaldari á Munkaþverá, og Ragnheiður, átti Jón Sigurðsson sýslumann í Einarsnesi og: 26. Jón Torfason, prófastur á Breiðabólstað í Fljótshlíð, fæddur um 1657, dáinn 1716. Nam í Skál- holtsskóla, fór til háskólans í Kaup- mannahöfn, var heyrari í Skálholti, vígður 1686 til Breiðabólstaðar og hélt staðinn til æviloka og með að- stoðarprestum því hann var ekki hraustur maður. Kona hans, 1686, var Sigríður Björnsdóttir, dáin 1716, sýslumanns á Espihóli Pálssonar á Espihóli Guðbrandssonar biskups Þorlákssonar. Sonur þeirra: Heimaerbezt 73

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.