Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.1998, Page 34

Heima er bezt - 01.02.1998, Page 34
27. Björn Jónsson dáinn 1767. Flutti vestur og settist á ættaróðal sitt, Núp í Dýrafirði. Núpur hafði sennilega verið búinn að vera aldaraðir í ættinni. Björn var ólærður en hefur verið mikilhæfur maður, mun hafa átt nokkuð af handritum og hefúr m.a. verið nefndur í sambandi við feril þess handrits af Passíusálm- um sem varðveist hefur. Var það ein- tak sem Flallgrímur gaf Ragnheiði, dóttur Brynjólfs biskups. Björn var fæddur að Núpi í Fljótshlíð 1689 en deyr að Núpi í Dýrafirði. Hann kvæntist ekki fyrr en hann kom í Dýraljörð og þá bóndadóttur úr Haukadal, Guðrúnu Magnúsdóttur Dýrafjarðarsmiðs Níelssonar. Móðir hennar var Herdís Björnsdóttir úr Haukadal. Þeirra börn voru Herdís, átti Jón Þorvaldsson á Höll í Hauka- dal, Jón hreppstjóri í Hjarðardal og Magnús, dáinn 1777, bóndi á Núpi og að lokum: 28. Sigríður Björnsdóttir fædd 1739, dáin 1804, gift Guðmundi Bárðarsyni í Arnardal (sjá Arnardal- sætt, l.b. s. 57 og áfram). Frá þeim er mikill fjöldi kominn, en um Sigríði er ekki mikið kunnugt, heimildir eru fá- tækar um alþýðu íslands. Margt bendir á að heimilið í Arnardal hafi verið menningarheimili, nægar bækur notaðar og barnafræðsla í betra lagi. 29. Magnús Guðmundsson fædd- ur 1781, dáinn 24. júní 1833. Hrepp- stjóri í Bæ í Staðardal í Súganda- firði, sögufrægu óðali sem jafnvel er talið landnámsjörð, dalurinn grasi vafinn og stutt til sjávar og á fengsæl fiskimið. Það er ekki á aðra hallað þó Magnús sé talinn mesti bóndi sem þar hefiir búið. Hann bjó í Bæ frá 1811 til dánardags. Nálægt bæjardyrum var höggvið ártalið 1831 og mun Magnús hafa gert það, en ætt hans bjó áfram í Bæ. Kona Magnúsar var Bergljót Öss- urardóttir, fædd 2. nóv. 1790, dáin 1837. Þau urðu því ekki gömul Bæj- arhjónin. Þau áttu þrjú börn, Maríu konu Torfa Halldórssonar útgerðarmanns á Flateyri og mikils ættföður þar og synina Össur og Jón sem báðir voru hraustmenni og dugnaðarbændur í Bæ. Össur kvæntist 1831 Salome Jóns- dóttur, miklum kvenskörungi. Þau bjuggu fyrst í Bæ, síðar í Súðavík. Meðan Salome bjó í Súðavík bjarg- aði hún með annarri konu, mönnum af skipi í Álftafirði. 30. Jón Magnússon fæddur 14. apríl 1816, dáinn 1. ágúst 1847. Bóndi í Bæ í Súgandafirði 1839-47, flytur þá um vorið að Sandeyri á Snæfjallaströnd og deyr þar um sum- arið. Sagður smiður og bóndi sem lifir á grasnyt og sjómennsku. Kona hans var Guðrún Guðmundsdóttir fædd 1815, varð ekki gömul. For- eldrar hennar voru Guðmundur Guð- mundsson vinnumaður og skutlari í Vigur, drukknaði 9. jan. 1827, og kona hans Guðbjörg Þorláksdóttir. Eftir lát Jóns giftist Guðrún Helga Guðmundssyni. Nokkrar heimildir eru til um heim- ilið í Bæ, t.d. eru þar 1845 þrettán manns í heimili, hjónin tvö og börn þeirra og sjö ára dóttir húsmóðurinn- ar, Jensína Guðrún. Faðir Jensínu var Jón Eyjólfsson, stúdent, síðar prest- ur, kennari og verslunarmaður. Jens- ína átti Friðrik Jónsson, Rafnseyrar- húsum. Manntalið 1845 telur einnig tvo vinnumenn, konu annars þeirra, tvær vinnukonur, smala og niður- setning. Þarna var unnið úr því sem búið gaf af sér, ullin af kindunum, kjötið sem bæði fyrr og síðar hélt líf- inu í Islendingum, fiskur verkaður til sölu og matar, sjórinn fast sóttur og á kvöldin, þar sem bókakostur var góður eins og í Bæ, var lesið úr þeim. Það var menning og menntun þess tíma. Börn Jóns og Guðrúnar voru tvö, Magnús fæddur 30. júní 1840, drukknaði við sjötta mann 28. febr. 1898. Hann var tvíkvæntur, fyrri kona Guðbjörg Kristjánsdóttir, síðari Vigdís Kristjánsdóttir. Dóttir Jóns og Guðrúnar var: 31. Lovísa Jónsdóttir fædd 9. júní 1841, dáin á Auðkúlu í Arnarfirði 25. ágúst 1884. Húsmóðir Hrafnseyr- arhúsum 1861-73. Vinnukona á Hrafnseyri eftir lát manns síns. Mað- ur Guðmundur Jónsson fæddur 3. júní 1834, dáinn úr taugaveiki 1873. Foreldrar Guðmundar voru Jón Ás- geirsson prestur á Hrafnseyri og kona hans Guðrún Guðmundsdóttir á Auðkúlu Arasonar. Séra Jón var ann- álaður ræðumaður, kennimaður góð- ur, afburðamaður að afli og fimi, alltaf fátækur vegna drykkfelldni og vegna þess að hann gekk svo lítt eftir tekjum sínum að orð fór af. Einhvers staðar stendur um þau hjón Lovísu og Guðmund, að þau hafi átt erfitt, á hvern hátt veit ég ekki, ef til vill bæði fátækt og heilsuleysi. Börn þeirra hjóna voru mörg og mannvænleg: Jón Dagbjartur fæddur 30. júlí 1862, sjá hér síðar. Kristján Bjarni fæddur 21. ágúst 1865, sjó- maður á Flateyri, dóttir hans var Lovísa Rannveig kona Ibsens Guð- mundssonar formanns á Suðureyri. Magnús Bergur smiður á Flateyri, fæddur 4. okt. 1868, Guðrún Þor- björg fædd 4. maí 1871, var í smala- mennsku 1888, drukknaði þá af snjó- brú í Dynjandisá. Solveig Sigurborg fædd 19. maí 1872, Guðmunda fædd 1873, dáin mjög ung. 32. Jón Dagbjartur Guðmunds- son fæddur 30. júlí 1862, dáinn 27. febrúar 1907. Vinnumaður Hrafns- eyrarhúsum 1887-89, Baulhúsum 1890 og vinnuhjú þar 1891, Rauðs- stöðum 1892, vinnuhjú Hjallkárseyri 1893, Ósi 1894-1904, bóndi þar frá 1897, Hokinsdal 1907. Hann var vel liðinn af öllum, alltaf fátækur en hjálpsamur og starfsmaður góður. Kona Jóns, 29. des. 1889, var Björnfríður Benjamínsdóttir fædd 27. mars 1868 að Botni í Súganda- firði, dáin 19. febr. 1950 í Reykjavík, vel hagmælt og heppin ljósmóðir (Ljósmæður á íslandi, 1, 69). For- eldrar: Jónína Guðmundsdóttir, vinnukona að Botni f. 1833, d. 27. júli 1909, sem lýsir föður Benjamín 74 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.