Heima er bezt - 01.02.1998, Qupperneq 35
Hjálmarsson, Efrimúla í Saurbæ,
sem neitaði. Benjamín var fæddur
15. des. 1834, d. 19. maí 1919. Móð-
ir hans var Hólmfríður Einarsdóttir,
vinnukona á Fremrikotum í Skaga-
firði. Hún dó á barnsæng án þess að
geta um föður barnsins, en talið var
að Benjamín væri sonur Bólu-Hjálm-
ars (sjá Dalamenn II, 442). Þetta var
aldrei staðfest.
Börn þeirra Jóns og Björnfríðar
voru: Lovísa Júlíana fædd 28. júlí
1889, dáin í Reykjavík 22. júní 1960,
hélt heimili með móður sinni. Guð-
mundur fæddur 7. des. 1890, sjó-
maður, drukknaði ungur. Jónína fædd
21. júní 1892, dáin 7. apríl 1968,
húsmóðir í Reykjavík. Jón fæddur
29. júní 1894, dáinn 15. júlí sama ár.
Soffia Guðrún fædd 15. maí 1895,
dáin 25. maí sama ár. Guðjón Bjarni
fæddur 18. júlí 1897, sjómaður,
drukknaði við Noreg um 1915. Ólaf-
ur Páll læknir fæddur 5. okt. 1899,
sjá síðar. Eleseus fæddur 1. júlí 1902,
dáinn 1976, bifreiðastjóri í Reykja-
vík. Dagbjört Oktavia fædd 20. okt.
1904, dáin 15. des. 1974, sjúkra-
nuddari. Jón Dagbjartur fæddur 11.
apríl 1907, dáinn 2. ágúst 1973,
sundkennari og húsamálari í Reykja-
vík.
33. Ólafur Páll Jónsson fæddur 5.
okt. 1899, dáinn 1. des. 1965, hér-
aðslæknir á Bíldudal og í Stykkis-
hólmi. Hann var harðduglegur, lærði
fyrst í Danmörku, síðar við Háskóla
Islands, fór sem læknir fyrst á
Strandir norður, síðan á Bíldudal, í
Stykkishólm og síðast í Mosfells-
sveit. Félagsmálamaður, mikill
áhugamaður um tónmenntir og kór-
stjóri. Vel liðinn hvarvetna og alls
staðar saknað sem læknis og holls
vinar. Hann kvæntist 1. sept. 1934
Ástu J. Guðmundsdóttur, f. 24. ágúst
1908, nuddlæknis Péturssonar.
Börn: Steinunn Dóróthea hjúkrun-
arfræðingur í Reykjavík f. 27. janúar
1935. Björn f. 30. nóvember 1936,
skólastjóri í Hafnarfirði. Bergljót f.
2. des. 1938, stúdent og kennari, sjá
hana síðar. Baldur bankastarfsmaður
í Reykjavík f. 14. maí 1940. Ragn-
heiður húsfreyja í Reykjavík f. 8. okt.
1943. Jón húsasmíðameistari í Hafn-
arfirði f. 23. mars 1945. Sverrir f. 13.
maí 1948, kennari og myndlistar-
maður í Hafnarfirði.
34. Bergljót Ólafsdóttir fædd 2.
desember 1938, stúdent frá Mennta-
skólanum á Akureyri 1958. Kennari
við Brekkjubæjarskóla á Akranesi
1967-87, Lækjarskóla i Hafnarfirði
frá 1987. Maður, 23. apríl 1959,
Björn Pétursson f. 20. júlí 1938,
kennari og síðar framkvæmdastjóri á
Akranesi, nú formaður Félags ís-
lenskra bifreiðaeigenda. Foreldrar:
Pétur Björnsson, kaupmaður á Siglu-
firði og síðar fulltrúi Áfengisvarna-
ráðs í Reykjavík og k.h. Þóra Jóns-
dóttir, um árabil gæslumaður ung-
lingastarfs Góðtemplarareglunnar.
Börn Bergljótar og Björns: Ásta
(sjá síðar). Pétur f. 13. nóv. 1964,
stúdent ffá Fjölbrautaskóla Vestur-
lands á Akranesi 1986, lauk prófi frá
íþróttakennaraskólanum á Laugar-
vatni 1989, er nú íþróttakennari á
Akranesi. Þóra f. 30. nóv. 1969, stúd-
ent frá Flensborgarskóla í Hafnar-
firði 1989, B.A. í sálarfræði frá Há-
skóla íslands 1994, nemi við Söng-
skólann í Reykjavík.
35. Ásta Björnsdóttir fædd 7.
febrúar 1960, stúdent frá Mennta-
skólanum á Akureyri 1980, við skrif-
stofustörf og nám í Háskóla íslands
1980-85, við kennslu í Grunnskóla
Ísaíjarðar 1985-94.
Árið 1974, þegar þáttur þessi var
fluttur á fundi barnastúkunnar Stjarn-
an á Akranesi, var Ásta fyrrverandi
æðstitemplar stúkunnar. Þrjátíu og
fimm börn kynntu þá ættliði sem hér
eru taldir, en síðust stóð Ásta upp og
kynnti sjálfa sig - lokahlekkinn í
þeirri röð sem hófst með Þormóði
Bresasyni, landnámsmanni á Akra-
nesi.
Kaffibúðingur
25 g smjör
2 msk flórsykur
1 msk romm
2 tsk kaffiduft (instant)
3 egg, aðskilin
Til skrauts:
1,2 dl rjómi, þeyttur
nokkrir valhnetukjarnar.
Setjið smjörið, sykurinn, rommið
og kaffiduftið í skál yfir pott með
heitu vatni og hrærið þar til allt er
bráðið.
Bætið eggjarauðunum saman við
og hrærið vel. Leyfið blöndunni að
matreiðast yfir hitanum í 5 mínútur
og hrærið í öðru hvoru. Takið af
hitanum og kælið.
Stífþeytið eggjahvíturnar og
blandið gætilega saman við kaffi-
blönduna. Ausið í litlar skálar og
skreytið hverja skál með þeyttum
rjóma og valhnetu.
Handa 4.
Heima er bezt 75