Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.1998, Síða 36

Heima er bezt - 01.02.1998, Síða 36
Birgitta H. Halldórsdóttir ÞAQ óEM HJ éstar- og sveitasaga r sta gat ekki varist brosi. Henni féll ágætlega við Krist- björgu, en hún vissi að óseðj- andi forvitnin í henni fór í taugamar á mörgum. Það var nú einu sinni þannig að þó að Kristbjörg særði stundum með tali sínu, þá var ekki hægt að vera reiður við hana lengi. Hún var bara Kristbjörg á Ytra-Hóli og Astu fannst rétt að taka henni eins og hún var. Galdurinn var bara sá að fara í kringum hlutina og segja sem minnst, því allt það sem Kristbjörgu var sagt, var eins hægt að segja í sveitasímann, þar sem allir hleruðu. í þessum svifum kom Heiða inn. Hún var nú komin í hversdagsföt og tilbúin að hefja störf. Ingibjörg stóð upp. - Jæja, stúlka mín. Eg sé að þú ert tilbúin til starfa. Eigum við ekki að koma í fjósið, mig langar til að kenna þér að mjólka. Ég sé að Óli litli er að koma heim með kusurnar. Gamla konan og stúlkan fóru út, en Asta setti upp ketilinn. Hún vissi að Kristbjörg myndi vera kaffiþyrst þegar hún kæmi. Þriðji hluti Kristbjörg á Ytra-Hóli var á marg- an hátt fonguleg kona. Hún var frem- ur stórskorin, ljós yfirlitum, með sterklega andlitsdrætti. Ástu líkaði ágætlega við hana en þó var hún al- veg sammála tengdamóður sinni með það að Kristbjörg mætti oft á tíðum gæta tungu sinnar betur. Það var nú einu sinni þannig í svona þröngu samfélagi að ógætileg orð gátu haft slæmar afleiðingar. Einhver lítil Qöð- ur sem fauk af stað var oft orðin að heilli hænu, þegar hún var búin að fjúka á milli bæja nokkrum sinnum. Og ef eitthvað þess háttar var komið af stað var oft erfitt að stoppa það. Fábreytnin gerði það að verkum að fréttir voru vel þegnar. Ásta fór fram í dyr og tók á móti Kristbjörgu. Þær kysstust og Ásta bauð grannkonu sinni í bæinn. Vatn- ið í katlinum var farið að sjóða, svo að Ásta fór strax að renna á könnuna. Kristbjörg settist og dæsti. - Mér datt í hug að rölta yfir til þín. Ég var orðin kaffilaus og Geir- mundur fer ekki að Óseyri fyrr en í næstu viku. Ég gat ekki hugsað mér að vera kaffilaus allan tímann, ef þú getur bjargað því. - Þó nú væri. Við eigum nóg kaffi. Það er ekkert vit að hafa þig kaffi- lausa þangað til. En ég ætla að drífa mig að renna á könnuna. Það er hressandi að fá kaffisopa eftir göng- una. - Já, ég þigg það með þökkum. Annars get ég ekki stoppað lengi, verkin kalla. Hvernig er það annars, varstu ekki að fá kaupakonu með áætlunarbílnum? - Jú, jú. Frænka mín var að koma úr Reykjavík. Hún er ekki vön sveitastörfum en mér líst vel á hana. Hún fór í íjósið með Ingibjörgu. Það er nú einu sinni þannig með hana tengdamóður mína, að hún er afar lagin við að kenna unglingum til verka. Þú veist hvað það er misjafnt. Kristbjörg varð vonsvikin á svip. - Ég hélt ég fengi að sjá hana stúlkukindina, en ég get líka labbað 76 Heimaerbezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.