Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.1998, Side 38

Heima er bezt - 01.02.1998, Side 38
hverj 11 í ósköpunum þurfiti Kristbjörg ætíð að leggja allt út á versta veg. Ja, ekki öfimdaði hún Geirmund að hlusta á þetta allan ársins hring. En hvað sem öðru leið, þá vonaði Ásta að slúðrið í Kristbjörgu ætti enga stoð í veruleikanum. Hún vildi trúa hinu besta um fólk og síst af öllu vildi hún trúa nokkru slæmu um Sig- urjón, vin þeirra á Læk. 3. Kafli. Vikurnar liðu ein af annarri án þess að nokkuð markvert gerðist í Árdalshreppi. Sigurlína á Fossi var farin að halda að hún hefði misst spádómsgáfuna og væri að verða rugluð. Lífið gekk sinn vanagang og flestir undu glaðir við sitt. Það var komið að því að rýja féð og reka í afrétt. í Árdalnum hafði það tíðkast svo lengi sem elstu menn mundu, að smala sameiginlega til rúnings. Annað var varla hægt, þar sem beitilönd bæjanna voru óafgirt og féð gekk mikið saman. Það var því oft mikill viðbúnaður þegar líða tók að rúningu. Yfirleitt tók verkið tvo sólarhringa áður en allt fé var komið á ijall. Fólkið í dalnum kom eldsnemma morguns útaðYtraHóli og síðan var smalað fram dalinn, en féð tekið í aðhald í Mjóadal. Þar var hlaðin rétt, sem Gangna-Siggi hafði með miklu erfiði hlaðið. Réttin var mesta þarfaþing og gerði það að verkum að rúningurinn var mikið auðveldari. Fólkinu í Árdalnum fannst gaman að smala, rýja og reka á fjall. Þarna voru allir að vinna saman, ungir sem aldnir kepptust við. Svo þegar einn hafði lokið við að rýja sínar kindur, þá hjálpaði hann og hans fólk þeim næsta og þannig gekk það uns allt fé var rúið. Rekið var inn í hollum og þegar hvert holl var búið var féð látið lemba sig og unglingarnir ráku það síðan í átt til heiðarinnar. Yfirleitt þurfti ekki að hvetja féð til fararinn- ar. Æmar vom frelsinu fegnar og óþreyjufullar að komast í ffjálsræðið á heiðinni. Það vandasamasta var að gæta þess að tvílemburnar hlypu ekki af stað með annað lambið. En bændurnir höfðu auga með þeim sem vom að sleppa og þekktu hverja á. Þessi mannfagnaður var ekki síður gleðiefni fyrir yngra fólkið. Þarna var kærkomið tækifæri til að hittast. Yfirleitt vom slík tækifæri ekki mörg yfir sumarið. Sumarmessa séra Jóns í Árdal var jú árviss viðburður og svo böllin, sem haldin vom á verslunarstaðnum Óseyri. Yfirleitt voru tveir dansleikir yfir sumarið, kvennfélagsballið og svo haustfagn- aðurinn, sem var yfirleitt um rétta- leitið. En það var oftast undir hælinn lagt hvort unga fólkið komst á þessar skemmtanir. Sumir áttu ekki heiman- gengt ef þannig stóð á hjá húsbænd- unum. Verkin gengu fyrir, en þó var alltaf hægt að láta sig dreyma um að komast. Þetta vor ákvað Gangna-Siggi að smalað skyldi til rúnings þegar vika var liðin af júlímánuði. Hann réði öllum vor- og haustsmölunum, enda var talið að best færi á því. Hann var veðurglöggur maður og þekkti best til heiðarinnar og gróðurfarsins þar. Það var bjart veður og heiðskýrt. Árla morgunsins var hópur fólks mættur að Ytra-Hóli, þar sem Krist- björg trakteraði mannskapinn á kaffi og brauði áður en lagt var í smala- mennskuna. Eins og oftast áður lá vel á mannskapnum. Allir voru ríð- andi á misgóðum hestum, en það gerði ekkert til. Gangna- Siggi þekkti reiðskjóta heimilanna ekki síður en heiðina og staðsetti fólkið eftir aldri og hversu vel það var ríð- andi. Þarna voru samankomin Gangna- Siggi og elsti sonur hans, séra Jón með báða syni sína, Halldóra og Ás- björn með dæturnar þijár og kaupa- manninn, Þorsteinn, Ásta, Björn, Jón og Álfheiður frá Hóli og svo hjónin á Ytra-Hóli ásamt syni sínum og nýj- um kaupamanni, en Kristbjörg ætlaði sér ekki að smala. Kaupamaðurinn á Ytra-Hóli var fullorðinn maður frá Óseyri, Þórir að nafni. Hann var ein- hleypur, en vanur öllum sveitastörf- um og hamhleypa til vinnu. Þóttist Kristbjörg hafa komist í feitt að fá hann til sín. Varð það því úr að hún var heima að þessu sinni. Seinna um daginn var svo von á einhveijum utan úr sveitinni til að líta á hvort eitthvað hefði slæðst af fé þaðan utan að. Eftir að hafa þegið veitingar hjá Kristbjörgu hélt hópurinn af stað. Gangna-Siggi sagði fyrir um smöl- unina og fólkið dreifði sér um svæð- ið til þess að komast á réttan stað. Lárus kaupamaður á Fossi reið til Gangna-Sigga og ávarpaði hann. - Værirðu ekki til í að leyfa mér að smala við hliðina á kaupakonunni á Hóli, bað hann. Gangna-Siggi leit undrandi á hann. - Nei, drengur minn, nú smölum við fé. Þú getur hugsað um stúlkum- ar seinna. Þú kemur með mér á fjall- ið enda ertu vel ríðandi. Stúlkan frá Hóli verður niður við ána með Árna frá Árdal. Lárus leit fyldur á hann en Gangna-Siggi glotti við tönn. Hon- um leist ekki illa á kaupamann Ás- bjöms, en það var greinilegt að hann var mikill tralli. Ásbjörn sagði hann vera góðan til verka, en líklega mátti hann þakka fyrir að telpurnar hans voru ekki orðnar eldri. Þeir riðu samhliða upp fjallshlíðina og Láms komst strax aftur í gott skap. Veðrið var yndislegt og útreið- ar voru honum mjög að skapi. Smölunin gekk vel og féð rann fram dalinn. Æmar vissu hvað var í nánd og að frelsið var framundan. Það var því ekki hægt að segja að féð væri latrækt. Heiða var dálítið óör- ugg með sig. Hún reið rauðum hesti sem Ásta kallaði Ljóma og var talinn alþægur. Hann hafði verið heima- gangur á Hóli og meira að segja Óli litli reið honum um allar trissur. Heiða vissi að hún þyrfti ekki að hafa áhyggjur, en hún var svo óvön hestum að hún þakkaði sínum sæla fyrir að tolla á baki. Líklega yrði hún ekki til mikils gagns, en hún var þó 78 Heimaerbezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.