Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.1998, Síða 40

Heima er bezt - 01.02.1998, Síða 40
Gils Guðmundsson: Fra ystu nesjum II og III Skjaldborg BÓKAÚTGÁFA Ármúla 23- 108 Reykjavík - Sími 588-2400 nMeðal efnis þessa annars bindis „Frá ystu nesjum“ er veigamikil ritgerð um höfuðbólið Vatnsfjörð við ísafjaröardjúp og höfðingja þá og presta, sem þar hafa gert garðinn frægan fyrr og síðar, ritgerð er eftir Kristján Jónsson frá Garðsstöðum um Sigurð „skurð,“ sagt er frá Skúlamálunum ísfirsku á síðasta áratug 19. aldar, frásagnir eru af Álfi Magnússyni, skáldmæltum en drykkfelldum hæfileika- og ævintýramanni, sem víðkunnur var vestra á sinni tíð, og birt er ýmislegt af kveðskap hans, og fróðleg er ritgerð Jóhanns Bárðarsonar um þróunarsögu Bolungarvíkur. Loks skal nefna þjóðsögur og sagnaþætti, sem skráð hefur Magnús Ftj. Magnússon, „skáldið á Þröm,“ fyrirmynd Halldórs Laxness að Olafi Kárasyni Ljósvíkingi. Ýmsar fleiri frásagnir er hér einnig að finna. mNokkrir menn setja öðrum fremur, svip sinn á þetta lokabindi „Frá ystu nesjum:" Kristján Jónsson frá Garðsstöðum á hér langa ritgerð um Ögurbændur og Guðmundur Bene- diktsson ritar um Sæbólsbændur. Eftir Ólaf Þ. Kristjánsson eru ritgerðimar Bændur í Önundarfirði, Selárdalur, Ætt Guðmundar smiðs á Selabóli og þátturinn Arnardals-Sigga. Tvær fróðlegar ritgerðir eru eftir Gísla Ásgeirsson frá Álftamýri, Útvegur Arnfirðinga á ofanverðri 19. öld og I verinu 1895. Um Holgers-strandið ritar Valdimar Þorvaldsson, sem einnig á hér ritgerðir um Friðbert í Vatnadal og Þorleif á Suðureyri. Ólafur Elímundarson ritar ítarlega um Goðafoss-strandið 1916 og Björgunarafrek Látramanna. Skáldbóndinn Guðmundur Ingi Kristjánsson ritar um Brynjólf biskup Sveinsson og fróðleg ritgerð, Faðir þilskipaútgerðar á íslandi, er eftir Einar Bogason í Hringsdal. Um fræðaþulinn Sighvat Borgfirðing skrifa þeir Kristinn Guðlaugsson, um bóndann á Höfða og Finnur Sigmundsson, um ritstörf Sighvats og sagt er frá heimsókn Friðþjófs Nansen að Höfða til þessa sérstæða fræðimanns. Þá er hér að finna ýmsa þætti skráða af Magnúsi Hj. Magnússyni og loks er löng ritgerð um Ólaf Þ. Kristjánsson, ævi hans og störf, eftir Gils Guðmundsson. Ur. 995.- Bíi4flrl>»kurnar

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.