Æskan - 01.07.1930, Page 4
52
ÆSKAN
V0ooa°0ooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooöooooooooooooooooooooooooooo0°0°ooy'
o°,
*
o
o
o
o
°OQi
u
ALÞINGISHÁTÍÐIN
ÞÚSUND ÁRA AFMÆLI ALÞINGIS 9 3 0-1930
> ° o*
30000<o9
Ö°
o
o
o
o
I.
»Æskan« sá sér ekki fært að gefa út sérstakt
hátíðablað, í sambandi við þúsund ára afmæli
Alþingis, eins og flest íslenzk blöð hafa gert. En í
þessa blaði vill hún verja miklu af rúmi sínu til
þess að segja lesendum sínum frá Þjóðhátíðinni á
t’ingvöllum
ogflytja það-
an nokkrar
myndir.
Ýmsir les-
endurblaðs-
ins munu
hafa farið
til Þingvalla
meðforeldr-
um sínum
tða öðrum
ættingjum,
tekið þátt i
hátíðahöld-
unum og
séð margt,
er þar fór
fram. Við
vonum að þeir hafi gaman af að rifja upp ferða-
söguna og festa sér atburðina í minni. En einkum
er þetta þó gert fyrir hina fjölda mörgu, sem
heima sátu.
Þið, sem farin eruð að læra Islandssögu, hafið
lesið um stofnun Alþingis. Eandsmenn höfðu fengið
Úlfljót, hinn vitrasta mann, ættaðan austan úr Lóni,
til þess að fara til Noregs og nema þar lög þau,
er giltu i þeim héruðum, sem flestir landnáms-
menn vóru ættaðir úr. Áður höfðu verið hér á
landi tvö héraðsþing: Þórsnesþing, er setti Þór-
ólfur Mostrarsk.egg, — hann nam land á Snæfells-
nesi, — og Kjalarnesþing, er Þorsteinn Ingólfsson
setti og aðrir niðjar Ingólfs Arnarsonar, hins fyrsta
landnámsmanns.
Meðan Úlfljótur var utan, hafði fóstbróðir hans,
Grímur geitskór, kannað landið, til þess að sjá út
allsherjar-þingstað. Var sá slaður kosinn á völl-
unum við Öxará, i héraði því, er þá nefndist Blá-
skógar. Fékk staðurinn nafnið Þingvöllur, eða
Þingvellir, eins og hann heitir enn í dag. Hefir
það jafnan verið rómað, hve vel hafi tekizt að
kjósa þingstaðinn. Maður einn hafði orðið sekur
um morð, er land átti þar um slóðir, og var það
allsherjar fé, en landsmenn lögðu það til Alþingis-
neyzlu. Þar var síðan Alþingi sett, og allsherjar-
ríki stofnað
á Islandi
árið 930.
Var síðan
kosinn lög-
sögumaður,
Hrafn
Hængsson.
Átti hann að
segja upp
lögin og
hafa lokið
því á þrem-
ur þingum.
En sjálfsagt
hefir Úlfljót-
ur sagt þau
upp fyrstur
og kennt
þau Hrafni. Lögin urðu menn að kunna utanbók-
ar, því að ekki var farið að skrá þau fyrr en
löngu siðar.
Alþingi var síðan haldið á Þingvelli í mörg
hundruð ár, eða alla tíð, þar til það var lagt niður
árið 1800. Og Alþingi var ekki aðeins samkoma,
þar sem lög voru sett og dómar dæmdir. Það
var einnig um langan aldur aðal-skóli Islendinga.
Þangað komu menn og konur úr öllum lands-
hlutum. Þar sýndu menn íþróttir sínar, og þar var
grundvöllurinn lagður undir þá þjóðariþrótt ís-
lendinga, sem mest og bezt hefir haldið nafni þeirra
á lofti, og mun eiga eftir að halda því á lofti,
meðan vestræn menning er við líði. Eg á hér við
sagnaritunina. Á Alþingi voru sögur sagðar og
lærðar, og geymdust svo í manna minnum, þar
til þær voru skráðar.
Alþingi var endurreist árið 1845, en þá í Reykja-
vik, og hefir verið haldið þar síðan.
Islandssagan segir ykkur frá öllu þessu. Hún
segir ykkur frá þvi, hvernig óáran og erlend kúgun
Tjaldbúðiv á Pingvöllum.