Æskan - 01.07.1930, Síða 8
50
ÆSK AN
Sögulega sýtiingin. Hrafti Hœngsson vinnur lögsögnmannseiðinn,
Eg hlýddi fyrir skömmu á ræðu, er Vestur-
íslendingur einn hélt í Reykjavík. Hann er ungur
maður og fór til Ameríku fyrir 9 árum. Hann hefir
getið sér þar góðan orðstír og er nú frægur maður.
Hann sagði frá því í ræðu sinni, að á hafinu milli
lslands og Vesturheims, þegar hann fór alfarinn
að heiman, hefði hann strengt þess heit, að reyna
að koma allsstaðar svo fram, að það yrði íslandi
til sóma, en ekki vansæmdar, og muna það jafnan,
að hann væri íslendingur. Taldi bann gengi sitt
mikið því að þakka, að hann hefði alltaf reynt að
muna þessa heitstrengingu. Það hefði verið markið,
sem hann stefndi að, og hvað sem föðurlandið
frétti um sig, þá yrði það því til sæmdar að eiga
hann fyrir son.
Ef nú þið, i.ngu vinir, æska Islands, vilduð
reyna að gera slíka heitstrengingu! Ef þið vilduð
reyna að muna það, hvar sem þið eruð, og hvað
sem þið gerið, að koma svo fram, að það verði
landi ykkar og þjóð til sæmdar. Þá er framtíð
lslands vel borgið, og óhætt að treysta því, að
næsta þúsund ára hátíð verður þessari fremri.
M. J.
QOOtoet. taoaooooto oi, aoaoooOoo ••••»•»» oooo oooo'ooooOO
Pakkaðu loganum fyrir ijósið, en gleymdu ekki lampa-
fætinum, sem stendur í skugganum, tryggur og þolin-
móður. Tagore.
VÍKIVAKI
Sunginn við danzsýningu barna á Þingvöllum 27. júni 1930
Hér á þessum helga stað
hefjum nýjan söng;
nú er sífellt sólskin
og sumarnóttin löng.
Glatt er gígjunnar mál,
glymur klellahöll,
öruggt stigur æskan danz
um iðgrænan völl.
Komið, álfar, ldettum úr!
Komið, dvergafans!
Komið, hraustu hetjur,
horfið á vorn danz.
Glalt er gígjunnar mál,
glymur klettahöll,
öruggt stigur æskan danz
um iðgrænan völl.
Komið, heiðnu hamratröll
og heilladísir lands.
Allar íslands vættir,
okkaf sjáið danz!
Glatt er gigjunnar mál,
glymur kleltahöll,
öruggt stígur æskan danz
um iðgrænan völl.