Æskan - 01.07.1930, Page 15
Æ S K A N
63
„ÆSKAN“
kemur út einu sinni i mánuði
og auk þess jólablað. Æskan er
yfir hundrað blaðsiður alls á ári.
§ Kostar þó aðeins 2 kr. 50 au. árg.
Gjalddagi er t. júli. Há sölulaun,
@ V* af 5 eintökum minnst.
g Afgreiðslumaður Jóh. Ögm.
g Oddsson, Öldug. 55, pósthólf 14,
fUtanáskrift til ritstjóranna:
Æskan, pósthólf 14, Reykjavík,
^ Útgefandi: Slórstúka íslands. '
f DÆGRADV0L f
Ráðningar á dœgradvöl i maiblaðinu.
1. Felunafnavisa.
Karlmannanöfn.
Ásgeir, Bjarni, Bótólfur,
Bogi, Einar, Ragnar,
Pórkell, Gestur, Rórólfur,
Pórður, Kctill, Agnar.
= 35
= 35
= 35
= 35
= 35
3. Hláturinn.
1 10 8 7 9
10 0 2 15 8
9 3 7 6 10
11 0 9 7 8
4 22 9 Ö 0
35 35 35 35 35
Til Hörpu.
Eg fagna þér, Harpa, með fuglanna söng
og fegurð, er klæðir þú strindi,
með dægrin þín björtu, svo lognblið
og Ijósdýrðar-sælu og yndi. [og löng
Eg veit það er indælt að vera þér hjá
í vorsólar ylgeislaskini,
í grænkandi hlíðum og grundunum á
þú gefur mér indæla vini.
Já, það eru blómin þin blíð og svo góð
og blessuðu fuglarnir smáu,
oll sit eg einn úti og syng með þeim Ijóð
i sólríku brekkunum háu.
En þegar að sólin er sigin í haf,
og sveipuð er náttdögg um vengi,
þá lofa eg droltinn, sem daginn mér gaf,
svo dreymir mig blómumskrýdd engi.
X.
• o OO°•
Góður gestur.
Einn hinna góðu gesla, er sótti ís-
land heim á Alþingishátíðina, var séra
Jón Sveinsson, höfundur »Nonna« og
fleiri góðkunnra barnabóka, sem Frey-
stcinn Gunnarsson, skólastjóri hefir
þýtt á íslenzku. Vonandi getur »Æskan«
siðar flutt mynd af Jóni Sveinssyni og
sagt lesendum sinum eitthvað um þenna
fræga og vinsæla höfund, sem flestir,
ef ekki allir, lesendur blaðsins munu
kannast við og hafa miklar mætur á.
• o OO0 •
Gömul gáta
Hver er sú hin fagra borg?
Hún er ekki raftamörg,
Þeir eru ekki utan þrír,
góður er þó í henni hlýr.
Hún er hlaðin veggjalaus,
víst með engu torfi,
Stendur vítl um veraldarhring,
og margur á hana horfir.
Felanafnavisa.
Karlmannanöfn.
Á - - i, - - a - - i, A - ð - - -, S - - - - n,
O - - u -, - j - - n -, T - - - i, - ó -,
- r - m - -, - - g - i, G - - t - -, - -e--n,
- u - - - r, S - - - g -, - j - r -, S - m - -.
Gála.
Kvenmannsnafn (5 stafa).
Fley á sæ’ og sollið sár,2
signuð morgunskima."
Dægur svart* og þursi þrár,5
við þetta skaltu glíma.
• oOO°•
OOOOooo
o
o
OOIOKtSOIOOÐMMO
S K R í T L U R
oooOO
O
o
O
Óli litli hafði verið veikur af tann-
pinu, en honum batnaði, þegar lækn-
irinn var búinn að draga út veiku tönn-
ina. Skömmu seinna fékk Óli hlustar-
verk, og mamma hans sagði, að bezt
væri að senda hann til læknis. Óli
þagði um stund, en síðan fór hann að
hágráta.
»Hvað gengur á?« spurði marama
hans.
»Eg fer ekki til læknis«, orgaði Óli.
bFú segir, að hann eigi bara að skoða
eyrað. En það sagðir þú líka, þegar
mér Var illt i tönninni. Ef ég fer til
læknisins, þá tekur hann af mér eyrað
á augabragði, það er eg viss um«.
Og Óli sat við sinn keip og fékkst
ekki til að leita læknis. En hlustar-
verkurinn skánaði brált, fil allrar ham-
ingju.
Kennarinn: Hvað er að tarna, Nonni
litli. Hefir þú nú aftur lent i áflogum?
Nonni: Eg fæ aldrei að vera í friði
fyrir hinum strákunum og þá —!
Kennarinn: En manstu þá ekki eftir
því, að ef einhver slær þig á hægri
kinn, þá átt þú að bjóða honum vinstri
kinnina?
Nonni: Jú, eg man það, en hann
Steini sló mig beint á nefið.
Kennslukonan (alvarleg): Veit Kala
litla, hver það er, sem er latastur hér
í bekknum?
Kata (sakleyisleg): Nei.
Kennslukonan: En það ættir þú
samt að vita. Hver er það, sem situr
og horfir í kringum sig í allar áttir,
meðau hinir eru að vinna og lítur út
um gluggann, þegar minnst vonum
varir?
Kata: Rað er — það er kennslukonan
sjálf.
Hansen stórkaupmaður er úti á
morgungöngu og mætir einum af
verkamönnum sínum.
»Góðan daginn, Niels«, segir hann
blíðlega.
»Góðan daginn, herra stórkaupmað-
ur«, sagði Niels. »En hvað þér eruð
sncmma á fótum í dag!«
»Eg er úti á gangi, til þess að reyna
að verða matlystugri við morgunverð-
inn«, svaraði stórkaupmaðurinn.
»Nei, hvað er að tarna! Ef við bara
gætum nú haft endaskipti á hlutunum.
Eg er einmitt úti til þess að reyna að
ná mér í dálítinn morgunbita, af því
að eg hefi svo ágæta matarlyst«, svar-
aði verkamaðurinn.
Kennslukona er að segja börnunum
frá þvi, þegar Alexander mikli lagði
lndland undir sig. Og loks segir hún:
»En hvað haldið þið, að Alexander
mikli hafi gert, þegar hann hafði lagt
undir sig allt Indland? Haldið þið, að
hann hafi ofmetnast? Nei hann settist
niður og grét. Og hversvegna haldið
þið, að hann hafi gert það?«
Litill drengur réttir undir eins upp
litlu höndina sína.
»Hvað heldur þú, Árni?« sþurði
kennslukonan.
»Hann hefir líklega ekki ratað heim
til sín aflur«, svaraði Árni litli.
Kennarinn: Ressi stíll, um hundinn,
er nákvæmlega eins og stillinn hans
bróður þíns.
Nonni litli: Hann er líka um sama
hundinn.