Æskan - 15.12.1937, Qupperneq 4
2
Jólabók Æskunnar
1937
Englar yfir þér vaka
Draumadísin
Hún kemur inn, er kvölda fer,
klædd í silfurlitan hjúp,
og bjartir lokkar leika’ um kinn
og leiftra augun, blá og djúp.
í tunglskinshöll hún heima á,
í hendi töfrastaf hún ber,
hún sveiflar honum, glöð og góð,
er gott barn upp í rúm sitt fer.
Þá dreymir það um dýrðlegt vor,
um dvergabæ í grænum skóg,
um álfadans um silfursvell,
og svanabörnin hvít sem snjó.
Um fjólu og rós í fjallahlíð,
er fölna ei, en ilma æ,
um fiðrildi og fáséð dýr,
er flögra um í Ijúfum blæ.
Um fugla, er tala mannamál,
og mörgu skrítnu segja frá,
um skip, er sigla um loft og lög
og leita’ upp töfralöndin blá.
En óþekk börn, þau eiga bágt,
þau aldrei dreymir fagran draum,
því draumagyðjan þekkir þau,
við þau er hún á gjöfum naum.
En góðu börnin sofa sætt,
og sólskinsbros á vörum skín,
því dísin löngum lánar þeim
öll Ijúfust draumagullin sín.
(Eftir enskri fyrirmynd)
Margrét jónsdóttir