Æskan - 02.02.1967, Page 4
Geira glókoilur
í Reykjavík
Hér kemur önnur bókin um Geiru gló-
koll eftir iiina þekktu skáldkonu Margréti
Jónsdóttur. í þessari bók er sagt frá mörg-
uin ævintýrum, sein Geira glókollur kemst
í, þegar liún er flutt til Reykjavíkur.
Sagan Geira glókollur er sögð á fögru,
ylhýru máli, og stíilinn eins og tær,
streymandi iind. Má með sanni segja, að
barnabókmenntir vorar eru auðugri eftir
útkomu þessarar bókar.
í lausasölu kr. 48.35. Til áskrifenda
ÆSKUNNAR aðeins kr. 32.00.
Steini í Ásdal
Höfundur bókarinnar er Jón Björnsson.
Hér gefst iesandanum kostur á að skyggn-
■ast um í íslenzkri fjallabyggð fyrir rúmri
öid og kynnast lífi munaðarlauss drengs,
sem var alinn upp á sveit fram til þess
tíma, er sagan gerist. Lýst er einu sumri,
sem olli straumhvörfum í ævi hans, en
þá var liann lólf ára að aldri. Þrátt fyrir
umkomuieysi og ilit atlæti í bernsku, var
þessi snáði enginn aukvisi til sálar eða
líkama. Athurðirnir, sem lienda hann i
sögunni, eru til vitnis um ]>að, og víst
ber margt við þennan sumartíma, til dæm-
is fjárleitarferð fram á heiði, ]iá þarf að
taka á karlmennskunni, — kynni við
strokufanga, og þá ræður mannúðin gerð-
um, — björgun mannslífa úr háska, þá
er unnin hin djarfasta dáð, — og loks
lausn á sakamáli, en hún krefst bæði vits-
muna og snarræðis. — Auk aðalhetju bók-
a’rinnar komi mikið við sögu hjónin í Ás-
dal og dóttir þeirra, strokufanginn Varði,
sýslumaðurinn Ari og svolamennið Sigurð-
ur á Bjargi, sem fær margt að reyna.
Með þessari hetjusögu drengs hefur liöf-
undurinn brugðið upp skýrri og litríkri
mynd, sem verða mun mörgum unglingi
hugstæð, enda er Jón Björnsson enginn
viðvaningur í sagnagerð, svo sem marka
má af því, að ]ietta er sextánda bók hans
og fimmta unglingasagan.
í Iausasölu kr. 48.35. Til áskrifenda
ÆSKUNNAR aðeins kr. 32.00.
Vala og Dóra
Saga þessi er eftir skáldkonuiia Ragn-
heiði Jónsdóttur og segir frá tveimur vin-
stúlkum, sem heita Vala og Dóra, frá
lífi þeirra og ævintýrum í Álfheimum og
l'yrsta vetrinum þeirra i menntaskólanum.
Kári, Skúli og fleiri skemmtilegir strák-
ar koma hér líka við sögu. Vala þráir að
helga sig náminu óskipt, en veikindi móð-
ur hennar og erfiðar heimilisástæður leggja
liungar byrðar á Iierðar henni. Hún berst
eins og hetja við nám og störf og sigrast
á öllum erfiðleikum. Dóra er henni til
styrktar og gleði og flytur eins og áður
birtu og yl inn á fátæklega heimilið.
I lausasölu kr. 40.85. Til áskrifenda
ÆSKUNNAR aðeins kr. 20.00.
MRS. HERÖKRT STRAiNC
HETJAN ENGA
Hetjan unga
Saga þessi kom fyrst út hjá ÆSKUNNI
árið 1934 og seldist þá upp á skömmum
tima og hefur síðan verið ófáanleg þar
lil nú. Hetjan unga er eftir Herbert Strang,
í þýðingu Sigurðar Skúlasonar magisters.
Allir unglingar ættu að kynnast litlu syst-
kinunum, Margréti og Tuma, sem sagan
l'jaliar um. Eftir lestur bókarinnar mun-
um við ekki gleyma þessum systkinum,
því að þau eru annað og meira en Ivö
fátæk fiskimannabörn á Englandsströnd.
Þau eru sígildar pérsónur og finnast í
öllum byggðarlögum hins menntaða heims.
í lausasölu kr. 59.10. Til áskrifenda
ÆSKUNNAR aðcins kr. 37.00.
Kisubörnin kátu
Þetta er 4. útgáfa af þessari skemmti-
legu barnabók hins heimsfræga teiknara,
Walt Disneys. f þau þrjú skipti, sem bók
þessi hefur komið út áður, hefur upplag
hennar selzt upp á skömmum tíina. Bókin
er nú einu sinni enn á þrotum. íslenzka
þýðingu hefur gert Guðjón Guðjónsson,
skólastjóri. f bókinni eru 19 myndir eftir
höfundinn sjálfan, Walt Disney.
í lausasölu kr. 59.10. Til áskrifenda
ÆSKUNNAR aðeins kr. 37.00.