Æskan - 02.02.1967, Blaðsíða 5
Didda dýralæknir
Gunvor Fossum cr einn Jjekktasti barna-
l)ókahöfundur Norðmanna, og Didda dýra-
læknir er með vinsælustu bókum hennar.
Að vísu er Didda alls enginn dýralækn-
lr> heldur dóttir dýralæknis úti á lands-
úyggðinni. Hún ber í hrjósti ríka samúð
]Heð málleysingjunum og reynir af alefli
að tryggja velferð þeirra, en oft er við
ramman reip að draga. Fólkið í sveitinni
kallar hana Diddu dýralækni. Hún ræðst
1 ]>að að stofna dýraverndunarfélag, til
nnitmiðaðri átaka á þessu sviði, og fær
' þvi sambandi öfiugan styrk hjá börnum
úr höfuðstaðnum, sem send höfðu verið i
l’lássið lil að sækja táp og fjör á vegum
þroskandi sveitaveru. Þá skeður margt
skemmtilegt og úrræði þarf að hafa á
hverjum fingri, en allt tekst vel á endan-
um. Og Didda kemst að því, í þessum fé-
lagsillálaf ramkvæmdum, að engu síður
þarf að sýna samúð og skilning mönnum
en dýrum.
Þessi bók ber Jiess merki, að höfundur
liennar liefur næman skilning á vanda-
málum barna og unglinga og kann vel að
tefla fram fjörugri frásögn og hraðri at-
burðarás. Þessi einkenni njóta sin vel i
þýðingunni, sem gerð er af Sigurði Gunn-
arssyni, skólastjóra.
I lausasölu kr. 53.75. Til áskrifenda
ÆSKUNNAR aðeins kr. 30.00
Geira glókollur
Sögurnar um Geiru glókoll cru eftir bina
þekktu skáldkonu Margréti Jónsdóttur,
seni var í mörg ár ritstjóri Æskunnar.
Sagan af Geiru glókolli gerist i sveit á
Islandi kringum síðuslu aldamót. Geira er
iátæk, umkomulítil telpa. Faðir bennar
dcyr, áður en hún fæðist. Ifún elst upp
Hieð móður sinni, en stundum er hún hjá
vandalausum. Sagt er frá ýmsu, sem við
ber á bernskuárum hcnnar, svo sem jarð-
skjálfta, aldamótum, konungskomu og
mörgu öðru. Hún vakir yfir túni, fylgir
lömbunum á fjall, smalar kviaám og vinn-
"r margs konar störf. Hún er mjög nám-
fús og langar til að komast í skóla og lesa
°g læra allt milli himins og jarðar.
Sögunni lýkur, þegar búið er að ferma
Geiru, og mæðgurnar, bún og móðir benn-
ar, flytja til Reykjavikur.
í lausasölu kr. 48.35. Til áskrifenda
ÆSKUNNAR aðeins kr. 32.00.
Sumargestir
Bóndinn á Nesi, hann Narud, er kominn
i kröggur út af búskapnum. Kreppa liefur
dunið yfir, en jörðin fjárfrek og stór. Þá
dettur konu hans í hug að efna til hótel-
reksturs um sumartímann. Ekki lizt ömmu
gömlu á það, en Anna Maria, heimasætan,
fylgir mömmu sinni og trúir ]>ví fast, að
allt muni beppnast.
Fyrsti gesturinn liét Friðrik, 12 ára
drengur, sem gerðist brátt helzta sögu-
hetjan i bókinni. Svo koma margir fléiri
og allt her sig fjárhagslega að Iokum. En
margt skeði og margt þurfti að afhjúpa,
því að misjafn sauður er í mörgu fé.
Höfundur bókarinnar er einn af fræg-
ustu liöfundum barna- og unglingabóka í
Noregi, Gunvor Fossum. Ilún nær fyndni
og hraða i frásögninni, sem her einnig vott
um golt hjartalag og réttsýni. Og lesand-
anum finnst bann hafa átt sumardvöl á
Nesi að bókarlestri loknum.
I lausasölu kr. 48.35. Til áskrifenda
ÆSKUNNAR aðeins kr. 32.00.
Stína
Þessi bók er einhver sú bezta telpusaga,
sem völ er á. Sagan er um liana Stínu og
vinstúlkur hennar. Stína litla er falleg og
elskuleg stúlka og skemmtilega brún eftir
sólskinið i sumarleyfinu með pabba og
mömmu. Hún hlakkar til að byrja i skól-
anum og fara ineð bækur, blýanta og liti
í skólatöskunni sinni nýju.
Stina er á sjúkrahúsinu, en þar er Villa
líka, svo að það er hægt að sætta sig við
það.
Hitt er verra, þegar skólinn byrjar, að
vera öðruvísi en aðrir, verða fyrir aðkasti
eða vera settur lijá. Það er ekki lieldur
ánægjulegt að láta aðra kenna í brjósti um
sig. En það er furða, hvað við getum, ef
við bara erum við sjálf.
Bókin lilaut 1. verðlaun í mikilli barna-
bókasamkeppni i Noregi haustið 1962. Sig-
urður Gunnarsson, skólastjóri, þýddi bók-
ina.
f lausasölu kr. 129.00. Til áskrifenda
ÆSKUNNAR aðeins kr. 91.00.