Æskan - 02.02.1967, Qupperneq 9
utla
Annalísa 13 ára
I'cssi bók er fyrsta unglingabók Tove
Hitlevsen, og ekki þarf að lesa margar
blaðsiður til að sjá, að þessi bók er i sér-
Hokki, þar sem iiver persóna í hinu lit-
auðuga myndasafni er bráðlifandi. Þar að
auki er bókin spennandi, og það rýrir ekki
KUdi henna^. Tove Ditlevsen er frœgasti
kvenrithöfundur Dana núlifandi. Hún hef-
l"' lil |>essa aðeins skrifað tvær unglinga-
hiekur, og er Annalísa 13 ára sú fyrri.
Hok þessi hefur selzt i mörgum upplögum
á Norðurlöndum.
Bókin er í þýðingu Guðjóns Guðjóns-
sonar skólastjóra.
í lausasölu kr. 163.95. Til áskrifenda
ÆSKUNNAR aðeins kr. 112.00.
Litla lambið
íslenzk sveitasaga eftir Séra Jón Kr. Is-
feld, með fögrum teikningum eftir Þórdísi
Tryggvadóttur listakonu. Saga þessi mun
vcrða kærkomin yngstu lesendunum. ()11
]>au börn, sem lieyra sögu íitla lambsins,
munu þelikja lif dýra og náttúru betur en
áður.
í lausasölu kr. 62.90. Til áskrifenda
ÆSKUNNAR aðeins kr. 43.00.
Fjóskötturinn JÁUM
segir frá
Þetta er fyrsta hókin, sem Æskan gefur
út eftir sænska ritböfundinn Gustav Sand-
gren. En liann liefur skrifað nokkrar
barnabækur, sem allar hafa lilotið met-
sölu á Norðurlöndum. Þessi bók er aðal-
lega ætluð börnum á aldrinum 6—10 ára,
og lýsir á mjög skemmtilegan hátt ævin-
týrum fjóskattarins Jáums og félaga lians.
Margar teikningar eru í bókinni cftir
Kjeld Simonsen, en þýðingu liefur annazt
Sigrún Guðjónsdóttir, bókavörður á Akra-
nesi.
- (iUSTAV SANUPHI-.N.
FJÓSKÖTTURINN
J Á U M
SEGtR FRÁ
Hciti kafla bókarinnar eru ]>essi:
Glúrinn gáfuköttur liemur, Max býr til
refameðal, Ráðabrugg, Villihundurinn
gengur í gildruna, Hænuball lijá Silfur-
refnum, Refurinn verður að leggja skott-
ið á sér í bleyti, Gullurriðinn, Það verður
að bjarga Max, Nilla hæna breytist í fisk,
Leikið á Iiarólinu, Jáum fer út i lieim.
í lausasölu kr. 85.75. Til áskrifenda
ÆSKUNNAR aðeins kr. 53.00.
Hjálpaðu þér sjálfur
Þetta er önnur bókin i Afmælisbóka-
flokki Æskunnar. Fyrsta bókin i þessum
bókaflokki ltom út 1964 og heitir Móðir
og barn, eftir Tagore, í þýðingu Gunnars
Dal, rithöfundar. Rókin Hjálpaðu þér
sjálfur er rituð af Samuel Smiles, en is-
lenzkuð og umsamin af séra Ólafi Ólafs-
syni. Þegar bókin kom fyrst fyrir al-
menningssjónir, ])ótti svo mikið til lienn-
ar koma, að bún seldist strax í ])úsundum
eintaka. Henni licfur og verið snúið á
fjöldamörg tunguinál, og alls staðar hef-
ur liún átt mjög miklum vinsældum nð
fagna.
I formála segir séra Ólafur Ólafsson
meðal annars: „Af þvi að ég liygg, að bók
þessi geti verið þörf og holl hinni upp-
vaxandi kynslóð, þá hef ég nú reynt að
klæða liana islcnzkum búningi. Sumu lief
ég sleppt, sumu breytt, og öðru aukið við.
Það er trú min, að ef ungir menn vilja
nýta heilræði þau og bendingar, sem þeim
eru hér boðin, feta i spor ágætis- og dugn-
aðarmanna þeirra, sem þeim er sagt frá,
og stunda mannkosti ])á, sem brýndir eru
fyrir þeim, ])á muni þeim ekki auðnu vant
i lífinu. „Hver er sinnar gæfu smiöur“, en
sönn gæfa hlotnast ekki öðrum en þeim,
sem vilja hjálpa sér sjálfir, ]>vi það cr
satt, að „Guð hjálpar þeim, sem hjálpa
sér sjálfir." Menning, inenntun og siðgæði
eru hyrningarsteinar að heill og gæfu, að
framförum og þroska þjóðar vorrar; og
ég er sá trúmaður, að ég vænti fyrr eða
seinna blessunarríkra ávaxta af liverju
því frækorni, sem sáð er þessu þrennu til
eflingar.“
Bók þessi er bendingar til ungra manna,
skýrðar með sönnum dæmum og rökstudd-
ar með ævisögubrotum ágætra manna.
I lausasölu kr. 177.40. Til áskrifenda
ÆSKUNNAR aðeins kr. 118.00.