Æskan - 01.01.1976, Blaðsíða 41
BABNABUDID ÆSEáN
Frá afgreiðslu
Æskunnar
Afgreiðsla Æskunnar óskar lesendum og lands-
mönnum öllum árs og friðar.
Nýliðið ár var Æskunni gott og gleðilegt á margr
an hátt. Á árinu 1975 varð Æskan 76 ára. Ef til vill
er það enginn stórviðburður, að blað nái svo háum
aldri, en samt er það nú svo að mörg blöð, sem
ætluð eru fullorðnum til lestrar hafa ekki enst svo
lengi.
Þennan háa aldur Æskunnar ber fyrst og fremst
að þakka þeim mönnum, sem með bjartsýni hrundu
útgáfu Æskunnar af stað. Síðast en ekki síst má
þakka kaupendum og forráðamönnum þeirra skilvísi
við blaðið því annan fjárstuðning hefur Æskan ekki
hlotið.
Kaupendur góðir! Útgáfa blaðsins stendur og fell-
ur með innkomu áskriftargjalda. Innheimt blaðsins á
síðastliðnu ári hefur gengið sæmilega og þökkum
við öllum sem staðið hafa f skilum. Samt er það nú
svo, að um síðustu áramót voru ennþá nokkrir, sem
ekki hafa greitt blaðið sitt, en ættu nú hið bráðasta
að senda greiðslu fyrir móttekin blöð á árinu 1975.
GJALDDAGI ÆSKUNNAR ER 1. APRÍL ÁR HVERT.
Á árinu 1975 bættust okkur kaupendahópur, en
þrátt fyrir það, tókst okkur ekki að ná settu takmarki,
þ. e. að fjölga áskrifendum í 20.000 á 75 ára afmæli
Æskunnar. Við heitum því enn á dugnað ykkar, ungu
vinir og samherjar að láta ekki staðar numið, heldur
halda áfram með auknu fjöri og dugnaði á hinu
nýja ári í því að vinna að útbreiðslu Æskunnar.
Munið verðlaunin fyrir að safna nýjum kaupend-
um, þau eru: Fyrir 5 nýja kaupendur fáið þið eina
500 kr. bók. Fyrir 10 nýja kaupendur fáið þið eina
1000 kr. bók Fyrir 15 nýja kaupendur fáið þið eina
1500 kr. bók o. s. frv. upp að 30 nýjum kaupendum.
Svo koma ein trompverðlaun fyrir flesta kaupendur
yfir 30, þessi trompverðlaun fær sá eða sú, sem
safnar flestum kaupendum og það verður myndavél.
Verði fleiri en einn með sömu kaupendafjölgun, þá
verður dregið um hver skuli hljóta hnossið. Þessi
söfnun áskrifenda stendur yfir til októberloka og
úrslit birt í jólablaði 1976. Ungu vinir og velunnarar
Æskunnar, hefjist handa strax f dag, þótt þið séuð
Sigurður Karl Jóhannsson.
ung, þá getið þið unnið Æskunni vel og sýnið það
best, með því að senda okkur nýja áskrifendur og
um leið eigið þið kost á að fjölga bókum í bókasafni
ykkar, að maður tali nú ekki um aukavinninginn,
sem auðvitað allir keppa að. Þakkir fyrir öll ykkar
ágætu bréf, sem öll bera með sér góðan hug til
Æskunnar og eru flest full af velvilja og áhuga um
framtíð Æskunnar, þess vegna er mér Ijúft að þakka
hin mörgu bréf.
Notfærið ykkur hið lága bókaverð sem bókaskrá
Æskunnar býður upp á, skráin gildir þar til önnur
kemur út. Ekkert er til af heilum árgöngum Æskunn-
ar frá fyrri árum, nema örfáir árgangar frá 1972,
1973, 1974 og 1975. Ef eitthvað kynni að liggja hjá
útsölumönnum eðá einstaklingum af eldri blöðum
sem þeir hafa ekki not fyrir, þá væri okkur kært
að fá þau endursend.
Nýir kaupendur fá einn eldri árgang i kaupbæti
meðan upplag endist, ef þeir senda greiðslu með
ósk um áskrift.
Gerið okkur aðvart ef vanskil verða, svo úr verði
bætt. Dragið slíkt ekki á langinn því blöð geta þrot-
ið áður en varir.
Skrifið bréf ykkar greinilega, sérstaklega nöfn,
heimilisföng og pósthús.
Ég kveð ykkur kæru vinir með ósk um gleðilegt
ár.
/ Jesú nafni áfram enn
með ári nýju, kristnir menn.
Það nafn um árs- og æfisþor
sé ætlð gleði’ og blessun vor.
í nafni hans æ nýtt ár er
þvl nafni' er græðir öll vor sár
í nafni hans fá börnin bllð
Guðsblessun fyrst á ævitlð.
Sb. 1886 — V. Briem.
Lifið heil,
S. K. J.