Æskan - 01.03.1987, Page 10
sem persónu. Þegar ég gagnrýndi
HLH og Brimkló á sínum tíma þá var
ég að deila á ómerkilegar stælingar og
bulltexta. Ég er ennþá harður í þeirri
gagnrýni. Það er nauðsynlegt og sjálf-
sagt að gagnrýna það sem er ómerki-
legt í músík, bæði hjá mér og öðrum.
Ég hef sjálfur klúðrað íslensku í text-
um og gagnrýni á það hefur veitt mér
aðhald. Ég vil bæta mig. En ég verð
hvorki betri né verri söngvari en ella
þó að eitthvað sé að textunum mínul11'
Á sama hátt verður Björgvin ekki I1-’
legur munnhörpuleikari þótt h3,111
syngi ómerkilega músík. Það er mál'( •
Björgvin er einmitt þrælgóður blns
munnhörpuleikari. Að mínu mati ein11
af þremur bestu blúsmunnhörp3
leikurum landsins. Hann ætti að haH1
sig við blúsinn. Þar er hann prýðile?ll|.
og mér finnst sjálfsagt að fólic viti 3
því.“
á þessum tíma. Það þýddi því ekkert
kák. Það varð að keyra rokkið áfram
með fullu trukki."
MX-21
Úr afeitrun kom Bubbi með ljúfustu
og að mati sumra gagnrýnenda bestu
plötu allra tíma, Konu. Á þeirri plötu
spreytti hann sig ma.a. á djasspoppi,
þjóðlagasveitastíl og Leonard Cohen-
poppi.
Með Konu stækkaði Bubbi aðdá-
endahóp sinn og náði nú til fullorðins
fólks.
Það fór ekki á milli mála að óvímað-
ur var Bubbi helmingi betri músíkant
en dópaði rokkarinn. Þetta kom jafn-
vel enn betur í ljós í haust þegar Bubbi
kynnti nýjustu hljómsveit sína, MX21,
og sendi frá sér sólóplötuna Frelsi til
sölu.
Fram til þess seldust plötur Bubba
yfirleitt í 5-7 þús. eintökum. Frelsi til
sölu rauk aftur á móti strax út í 14
þúsund eintökum. Fjögur lög af Frels-
inu fóru hátt á vinsældalista dægur-
poppstöðvanna. Þar af komust tvö í 1.
sætið. Að meðtöldum þessum lögum
hefur Bubbi sungið 8 lög sem náð hafa
inn á áðurnefnda vinsældalista það
sem af er árinu.
Það er því deginum ljósara að Bubbi
er vinsælli en nokkurn tímann fyrr.
Með sænskættuðu tölvupoppi Frelsisins
og MX21 sannar hann eina ferðina
enn að hann er síferskur og leitandi
poppari sem hvikar hvergi frá hugsjón-
inni um lifandi og virka poppmúsík.
Það greip því víða um sig skjálfti þegar
Bubbi birtist nýlega í tvígang í Sjón-
varpinu með Björgvin Halldórsson sér
til hægri handar. Hvað var að gerast?
Hvað var orðið um þjóðsöng Bubba-
byltingarinnar:
„Ég er löggiltur hálfviti
hlusta á HLH og Brimkló.
Ég er löggiltur öryrki
læt hafa mig að fífli..“ !?
Björgvin Halldórsson
„Ég var viljandi að storka fólki,“
segir konungur rokksins. „Stundum
þarf að storka fólki til að koma því í
skilning um hlutina. Mönnum hættir
til að rugla saman músíkinni sem
Björgvin stendur fyrir og Björgvin
10