Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.03.1987, Qupperneq 22

Æskan - 01.03.1987, Qupperneq 22
Lóa litlii Lóa litla var fimm ára. Hún var með blá augu og bústna vanga. Hún átti góða mömmu, góðan pabba og frábæra ömmu Samt var hún ekki ánægð. Henni fannst leiðinlegt að heita bara Lóa og vera bara fimm ára. Hún vildi heita eitthvað annað og vera eitthvað annað. Til dæmis Mjallhvít eða Rauðhetta eða Öskubuska eða Pyrnirós eða Litla-Ljót. Einn morgun þegar hún vaknaði sagði mamma hennar: „Amma er lasin í dag. Þú ættir nú að fara að heimsækja hana. Þú mátt koma við í búðinni og kaupa eitthvað gott handa ykkur.“ „Alveg eins og í Rauðhettu," hugsaði Lóa litla. „Nú ætla ég að vera Rauðhetta sem færir ömmu sinni flösku af víni og kökur.“ Hún spratt fram úr rúminu og klæddi sig. Hún setti upp rauðu ullarhúfuna voru svo háar og hún var svo lítil. „Nú er ég Rauðhetta í skóginum og trén eru svo há að ég verð að gæta mín að villast ekki,“ hugsaði hún og læddist fram og aftur á milli hilluraðanna. Hún fann ekki sælgætið hvernig sem hún leitaði og hún var að verða hálfhraedd inni í þessum dimma skógi- og lagði af stað. í vasanum geymdi hún seðilinn sem mamma hafði gefið henni. Allt í einu kom maður í brúnum sloppi á móti henni- Hann er með stór eyru og hræðilega stórar gular tennur. „Þetta er úlfurinn, nú ætlar hann að gabba mig/ hugsaði Lóa litla. Þegar hún kom í stórmarkaðinn fór hún að hugsa um hvað hún ætti að kaupa. „Vín og kökur,“ sagði hún við sjálfa sig. „Vín er soddan ulla bjakk, ég kaupi frekar kók. Svo ætla ég að fá Prins póló. Amma á nóg af smákökum. Hún er svo dugleg að baka.“ Það var erfitt að finna sælgætið því að stæðurnar með hillunum „Hvað vantar þig, litla mín?“ spurði úlfurinn. „Mig vantar kók og Prins póló, sagði Lóa. „Það er svo óhollt. Þú skalt frekar kaupa þér leikföng ef þú átt peninga,“ sagði úlfurinn. „Amma mín á að fá þetta. Hún er lasin,“ sagði Lóa. „Viltu ekki heldur kaupa blóm handa henni. Við eigum svo falleg blóm á góðu verði,“ sagði úlfurinn- 22

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.