Æskan - 01.03.1987, Qupperneq 26
En sá galli er á gjöf Njarðar að þá sé
ég ekkert til hliðanna.“
— Að síðustu: Dreymir þig um eitt-
hvert sérstakt starf í framtíðinni?
„Ég gæti hugsað mér að verða ann-
að hvort lögfræðingur eða sálfræðing-
ur. Mér er sagt að nám sálfræðings sé
ekki eins þungt og lögfræðings og
kannski ég læri sálfræði. Lögfræði-
nemar þurfa víst að læra svo mikið
utan að,“ sagði Anna Kristín og gat nú
að nýju tekist á við dönskuæfingarnar
sem hún var byrjuð á þegar við litum
inn í vinnuherbergið til hennar.
Missíi sjónina 5 ára
Birkir Rúnar Gunnarsson er 9 ára.
Hann missti sjónina fyrir 4 árum, þá
aðeins 5 ára. Vegna krabbameins
þurfti að taka úr honum bæði augun
og setja gerviaugu í staðinn en þau eru
að sjálfsögðu óvirk. Vegna sjúkdóms-
ins hefur Birkir Rúnar þurft að fara 12
sinnum til Englands og dveljast þar á
sjúkrahúsi. Síðast fór hann þangað
fyrir tveim árum. Þó að hann hafi
þurft að þola mikil veikindi þá ber
hann sig ótrúlega vel og lætur engan
bilbug á sér finna. Hann er skýr í
hugsun, hugmyndaríkur og áhuga-
26
samur um margt. Það er gaman og
fróðlegt að ræða við hann.
Birkir tjáði okkur að aðaláhugamál
sitt væri steinasöfnun. Hann á ná-
kvæmlega 677 steina og hefur safnað
þeim á rúmu ári. Hann man meira að
segja upp á dag hvenær hann fékk
fyrst verulegan áhuga á söfnuninni.
Það var 19. desember 1985 en þann
dag gáfu mamma hans og pabbi hon-
um marga steina sem þau höfðu eitt
sinn tínt í Borgarfirði eystri. Til við-
bótar þessu hafa margir fært honum
steina að gjöf.
”Ég giska á að ég eigi 9-10 bergteg-
undir,“ fræddi Birkir Rúnar okkur um
og bætti við að hann væri ekki búinn
að láta berggreina þá alla.
„Ég á mest af kvarts-steinum (holu-
fylltum eða svokölluðum draugastein-
um). Það gneistar af þeim ef þeim er
skellt saman. Ég hef mest dálæti á
japíssteinum en einnig eru steinar úr
líparíti, hrafntinnu, granít eða marm-
ara fallegir. Það má bæta við þetta að
sumir steinarnir í safninu mínu koma
alla leið frá Noregi, Portúgal, Þýska-
landi og Englandi."
- Þekkirðu steinana þína?
„Já, með því að snerta þá.“
— Þú átt fleiri áhugamál, veit ég.
„Já, ég hef mikinn áhuga á íþrótt-
um, - einkum sundi, knattspyrnu og
handknattleik. Ég syndi yfirleitt á
hverjum degi. Persónulegt met mitt
eru 2350 metrar á einum og hálfun1
tíma. Stundum leik ég mér í fótbolta
og handbolta með krökkunum. Ég
skorað nokkur mörk í fótboltanum
þegar ég hef leikið sem framherji-
Strákarnir hafa þá sagt mér frá því að
boltinn væri á leið til mín eða þá að ég
hef heyrt í honum og náð að p°ta 1
hann. Éinu sinni þegar ég tók vítaskot
í handbolta braut ég af framan af nög'
hjá markverði. Ég skoraði tvö mörk
hjá honum í þeim leik.
Ég fylgist mjög vel með handknatt'
leiks- og knattspyrnulýsingum í at'
varpinu og stundum tek ég þær upp a
segulband. Eftirlætishandknattleiks-
menn mínir eru þeir Atli Hilmarsson
og Alfreð Gíslason. Einnig er Þorgiis
Óttar alveg ágætur. Besti leikurinn.
sem ég fylgdist með á síðasta ári, var
landsleikur íslendinga og Rúmena 1
heimsmeistarakeppninni. Þá sigruðu
íslendingar glæsilega, 25-23. Eftirlæt'
isliðin mín eru Víkingur og Stjarnan-
— Hlustarðu mikið á útvarp?
- Já, ég hlusta helst á íþróttalýsioS'
ar og skemmtilega tónlistarþætti. Nei-
mér finnst vinsældalistarnir leiðinlegir;
Það eru svo lélög lög á þeim. Bubb'
Morthens er eini góði söngvarinn a
listunum þessa dagana. Danski söngv(
arinn Kim Larsen er líka í miklu dálaetJ
hjá mér en hann er víst ekki á neinum
vinsældalista hérlendis.“
- Verðurðu nokkurn tíma fyrtr
stríðni vegna blindunnar?
„Nei, mér er aldrei strítt. Það er
frekar að krakkarnir hjálpi mér. Anf'
ars þarf aldrei að hjálpa mér hér 1
skólanum; - ég rata um allt.“
- Ertu sár yfir því að hafa misst
sjónina?
„Ég hugsa lítið um það. Ég er auð'
vitað fegnastur að vera laus v*^
krabbameinið og ég get gert mjög mik
ið þó að ég sé blindur. Helst mýncf’
mig langa til að sjá stórt og fjölskrúð'
ugt steinasafn. Ég á mörg áhugamál
uni glaður við mitt,“ sagði Birkir Rún'
ar Gunnarsson að síðustu.
Þar með lauk heimsókn bIaðamannS
í Blindraskólann eftir að hafa haft
ánægjulega viðdvöl þar hjá opinskáum
og skemmtilegum krökkum.
j