Æskan - 01.04.1988, Page 18
Þá er forvali Sjónvarpsins í söngva-
keppni evrópskra sjónvarpsstöðva
lokið í þriðja sinn. Ákafinn sem
fylgdi fyrri tveimur atrennunum hef-
ur rénað lítillega. Þó eru menn enn á
öndverðum skoðunum um ágæti
þessarar keppni. Nýkrýndur sigur-
vegari forvalsins, Sverrir Stormsker,
segir að keppt sé um lélegt en gríp-
andi lag með klappi í síðustu viðlags-
köflunum! Þessu hafi hann áttað sig á
og sú sé ástæðan fyrir því að hann
fékk fullt hús: Flest stig hjá öllum
dómnefndum!
Poppþáttur Æskunnar blandar sér
ekki í deilur um réttmæti þess að rík-
isfyrirtæki standi fyrir söngvakeppni
af þessu tagi. Erlendis, t.d. í Eng-
landi, spila útvarpsstöðvar yfirleitt
ekki lög söngvakeppninnar. Skýring-
una segja forsvarsmenn stöðvanna
vera að lögin séu ekki nógu góð. Án
þess að við skiptum okkur af því mati
þá fer ekki á milli mála að Sverrir
Stormsker hefur samið betri lög en
sigurlagið, „Þú og þeir“. T.a.m. eru
lögin „Búum til betri börn“ og þá
sérstaklega „Þórður“ mun stöndugri
og ættu meiri möguleika á að kynna
útlendingum ísland og íslenska af-
þreyingarmúsík ef til þess væri varið
fimm milljón krónunum sem fara í
söngvakeppni Sjónvarpsins í ár.
Sverrir Stormsker er ekki síður
umdeildur en söngvakeppnin. Á upp-
hafsárum pönksins spilaði Sverrir á
hljómborð í hljómsveitum með
mönnum eins og Friðriki Erlingssyni
gítarleikara (- Friðrik var til að
mynda í Purrki Pillnikk með Einari
„Sykurmola“ Erni) og Braga Ólafs-
syni bassaleikara Sykurmolanna. Og
á meðan bókmenntafræðingar og rit-
stjórar dagblaðanna deildu sem harð-
ast um rokkskáldið Bubba Morthens
1982 sendi ljúfur drengur, Sverrir
Stormsker, frá sér huggulega ljóða-
bók. Ári síðar sendi Sverrir frá sér
aðra bók. Hún var kirfilega innsigluð
og sjö útgefin eintök af henni kost-
uðu 7 þús. kr. hvert. Ættingjar
Sverris og fleiri fjárfestu í bókinni.
En sumir urðu fyrir vonbrigðum þeg-
ar í ljós kom að í bókinni voru aðeins
auð blöð og ein setning: „Þú keyptir
bókina hvort eð er ekki til að lesa
hana.“
Plötulisti
„Hitt er annað
*l/2
„Lífsleiðin(n)“
„Ör-lög“ Útg.: Tóný/Svali 1987 **l/2
„Stormskers Guðspjöll“ Útg.: Steinar
hf. 1987 **
■Hyl
- segir Davíð Traustason
söngvari Eftiríitsins
„Þegar
Ratiðum flöt11111
eg var _ __________ ^
virtist sem upp væri að rísa einh'er
rokkbylgja þér. Þessi bylgja er ellD
rísandi. Það ‘ yantar bara einhverD
herslumun til að sprengja þetta virk*
lega upp,“ , segir Davíð Traustaso11
söngvari. Kannski er ein nýjast3
rokksveit landsins, Eftirli1* >
sprengjan se'm beðið hefur verið efur-
A.m.k. er Davíð Traustason,1 frarn
vörður Eftirlitsins, til alls líklegur-
„Við ætlum að spila villt og g^ið 1
sumar,“ heldur Davíð áfram. »'7.
förum ferðir um landið þvert og end*
langt, spilum bara frumsamið n'
bylgjurokk með reggí-ívafi og d)aS*.
áhrifum. Aðeins eitt utánaðkoma11
lag er á dagskránni, *„Heartbrea
Hotel“, gamla Presley-lagið. Við SP*
um það náttúrulega í: allt annarri nt
gáfu. Svo erum við að undirbna
plötu. Við erum býrjaðir á kynnin®
arupptökum og farnir að ræða við nt
gefendur."
Davíð er ekki með öllu ókunnnSl'
hljómplötugerð. Hann hristi tvD\
plötur með Rauðum flötum fratn U
erminni. Það var í samræmi við þan
hraða og kraft sem eitikenndi RaU
fleti á rösklega eins árs ferli þetr
bubbísku rokksveitar. En hver e
munurinn á Rauðum flötum og E*
litinu?
ZrsloUS,aSOn (situr) og Gunnar
IM
^ ’.’^irlitið flytur miklu fjölbreyttari
hr á • Eins cr mnsih Eftirlitsins
t 3 ari eH var hjá Rauðum flötum.
SemÞað er auðvit|áSyiss skyldleiki þar
j vi® Kolbeinn .(Einarsson gítar-
sv‘eari) vorum báðirþeirri hljóm-
jj ,* ^ftur á móti erum 'við aðeins
jra Eftirlitsins og við viljum
jj Próun. Hinn helmingurinn er
se SSaJe*^arinn Gunnar Hilmarsson,
áðu* ”elur ehki spilað með hljómsveit
a • r’ °8 Einar Scheving trommuleik-
ban? Spilaði áður d)as.sbneð ,;big-
Inu 1 3 seSlr Davíð Traustason að
l0kum> • • *
vj^ið getum bætt því við að það sem
tjj , °Cuni heyrt frá Eftirlitinu gefur
uúk'l"11113 að ^ar se á ferdinni kraft-
Sem' °8 metnaðarfull nýrokksveit
'v er líkleg til að standa nálægt
utanlegri rokksprengju.
„Það er
fÆSkrf *****
músíklífi"
bassaleikari T
Síðan skein sól
- segir Jakob Magnússon
„Við spilum eingöngu frumsamda
músík. Allir textar eru á íslensku.
Við erum þjóðlegir. En það er erfitt
fyrir mann að lýsa eigin músík. Þetta
er einfalt rokk, spilað með gömlu
Bítla-uppsetningunni: Gítar, bassi,
trommur, söngur. Ég held að hægt sé
að kalla þetta létt og skemmtilegt
rokk.“
Þannig lýsir bassaleikarinn Jakob
Magnússon músík hljómsveitarinnar
Síðan skein sól. Jakob er kunnur fyr-
ir spilamennsku með hljómsveitun-
um Tappanum, Foringjunum, Grafík
og Das Kapítal. Með síðastnefndu
hljómsveitinni samdi hann lagið
„Svartur gítar“ ásamt Bubba rokk-
kóngi. Það lag var í fyrra valið í hóp
bestu íslensku popplaganna af banda-
ríska plötufyrirtækinu Enigma (sem
gefur út Smithereens, Poison o.fl) og
gefið út á safnplötu, „Geyser“. Sú
plata hefur nú selst í nálægt 80 þús.
eintökum í Bandaríkjunum og Evr-
ópu og fengið mjög góða dóma.
- Hverjir spila með Jakobi í Síðan
skein sól?
„Það er Eyjólfur Jóhannsson gítar-
leikari. Hann var síðast í Vunderfoolz
með Mikka Pollokk (Vunderfoolz
eiga einnig lag á „Geyser“ - innsk.
Æsk.). Þar áður var Eyjólfur með
mér í Tappanum. Svo er það Ingólfur
Sigurðsson trommuleikari. Hann var
í Rauðum flöturn. Helgi Björnsson
syngur. Hann var í Grafík.“
Umsjón: Jens Kr. Quðmundsson
- Hvað er fram undan?
„Við höfum hljóðritað kynningar-
lag (demó) og stefnum á plötu. Það er
vonlaust að festa sig í sessi og starfa
án þess að njóta stuðnings plötu.
Annars höfum við fengið mjög góðar
viðtökur. Við höfum verið að spila
mikið í félagsmiðstöðvum og haft nóg
að gera. Við erum ekki heldur alveg
óþekkt nafn - áttum t.a.m. eitt lag á
safnplötunni „Vímulaus æska“ í
fyrra. Það var mikið leikið.“
- Og nú tala menn um nýja rokk-
bylgju á íslandi.
„Ég er ekki of duglegur að fylgjast
með. Ég veit þó að það er heilmikið
að gerast. Reyndar ekki allt jafngott.
Samt er margt gott, eins og E-x frá
Hafnarfirði og Frakkarnir. Ég kann
vel að meta þá. Það virðist einhver
vakning eiga sér stað í músíklífinu
hérna um þessar mundir. Þá miða ég
við aðsókn á tónleika. Fólk hefur
ekki verið jafnspennt fyrir tónleikum
síðan uppsveiflan mikla átti sér stað
’80-’81. Og þó það sé ekki alveg að
marka vegna utanaðkomandi að-
stæðna þá vilja t.a.m. allir komast á
tónleika hjá Sykurmolunum núna,“
segir Jakob Magnússon, bassaleikari í
Síðan skein sól, að lokum og virðist
vera sólarmegin í mörgum merking-
um þess orðs.