Æskan - 01.04.1988, Síða 24
*
í póstunjM \
H ■ ' llÍflíf • ■ i • m • •
ÉHHM
m "i;\ 1 p
:
■
||0JJÍ|Jj§j^
—Þakkir fyrir grein-
Kæra Æska!
Mig langar til að þakka sr. Birni
Jónssyni fyrir pistilinn sem hann
skrifaði í 1. tbl. 1988. Það er satt að
segja mjög sorglegt að margir okkar
unglinganna bragða áfengi og gera
eitthvað undir áhrifum sem þeir
þurfa að skammast sín fyrir áður en
þeir átta sig á vitleysunni. Að
minnsta kosti mátti segja það um mig
- en nú er ég sem betur fer búin að
átta mig. Þakka þér kærlega fyrir, sr.
Björn.
Svandís Rós
Frábæri Æskupóstur!
Ég er í Glerárskóla á Akureyri og
líkar það bara vel. Félagslífið er ágætt
en mætti að sjálfsögðu vera enn betra
en það er! Á hverju mánudagskvöldi
er opið hús fyrir 6.-9. bekk. Þá er
dansað, horft á myndbönd, leikinn
billjarður og borðtennis, teflt og farið
í leiki. Sjaldan eru haldnir dansleikir
og mér finnst að úr því mætti bæta.
Eftirlætishljómsveitir mínar eru
U2, Pet Shop Boys og A-Ha. Ég var
mjög ánægð með að fá límmiða með
Gæludýrabúðar-drengjunum og
Marteini Harket en mig langar að fá
límmiða með U2. Hvernig væri að
hafa þá með næst? Og birta viðtal við
Jóhann Hjartarson?
Agga.
------------Vísur--------------
Hæ, kæra Æska!
Ég þakka fyrir gott blað. Ég sendi
þér vísur um Æskuna:
Æskan mín
er Æskan þín
og sólin skín
svo glatt inn til þín.
Æskan er frábært blað,
ég segi nú það.
Þrautir hún hefur
og veggmyndir gefur.
Magna Ósk Gylfadóttir 10 ára,
Hamrabergi 34, 111 Reykjavík.
Elsku Æska!
Ég skrifa þetta bréf í von um að
það verði birt. . . Viltu vera svo góð
að birta veggmynd af Jóhanni Hjart-
arsyni? Hann stóð sig svo frábærlega
vel á móti þessum ruddalega og dóna-
lega Kortsnoj. Þú mátt líka gjarna
gefa okkur límmiða með mynd af
honum, Stefáni Hilmarssyni, Söndru
og Mikkjáli Jakobs. Ég vona að ég
hafi ekki verið að hjálpa til við að
fylla ruslaföturnar ykkar! - Þú mátt
líka láta prenta veggmynd af Fimm
stjörnum.
Olga.
Vegamálaráðherra. . .
Kæra Æska!
Ég er Norðlendingur og mjög
ánægður með blaðið. Hvernig væri að
prenta límmiða og/eða veggmyndir af
Úlfunum (Los Lobos), Evrópu og
Whitneyju Houston?
Þetta fylgir til gamans:
- Hvað heitir vega- og valtaramála-
ráðherra Sovétríkjanna?
- Valtarofsky Kremjanoff!
Ánœgður áskrifandi
-Örfá orð um Patrek^
Kæra Æska!
í 2. tbl. var beðið um upplýsingar
um Patrek Swayze. (Óvíst um frarn"
burð - e.t.v. Svæs. . .)
Hér koma nokkrar:
Patrekur er fæddur 18. ágúst 1952 1
Houston (Háston) í Texas. Hann er
1.85 m á hæð, brúnhærður, bláeygð'
ur. Heimilisfang hans er:
Patrick Swayze,
c/o John West,
P.M.K. 8436,
3rd Street/Suite 650,
Los Angeles , ca 90045, USA.
Gullí.
Kæra Æska!
Tvær stelpur vildu fá heimilisfan®
Patreks. Hér er það:
Patrick Swayze,
c/o MGM/UA Entertainment Co.
10202 W. Washington Blvd.,
Culver City, Ca 90230, U.S.A.
Karen.
---------Falin nöfn-------------
og hárgreiðsla
Hæ, Æskupóstur!
Mig langar til að spyrja þig þessa-
1. Getið þið haldið áfram að birta fa*'
in nöfn og verðlaunað fyrir rétt svot_
2. Hvar er hægt að læra hárgreiðsln-
Hvað tekur námið langan tíma?
Alla
Svar:
1. Við skulum taka beiðnina til v*n
samlegrar athugunar.
2. Hárgreiðsla mun kennd við al
marga skóla (grunndeildlfomám) en
námi verður að Ijúka við Iðnsko
ann í Reykjavík. Það tekur þrja
hálft ár.