Æskan - 30.07.1902, Side 8
84
ÆSKAN.
féll hún dauð niöur, og eru þau heygð bæði
saman að Uppsölum.
----<KH>----
Keikar.
y.
„Komdu!“
Þessi leikur er eiginlega aðeins tilbreyting
af næsta leik á undan. Leikendur standa
þannig að þeir mynda hringoghalda hönd-
unum saman aftan á bakinu. Einhvei' er
íyrir utan hringinn og snertir hann einhvern
í hringnum og segii- um leið: „koradu!"
Báðir hlaupa þeir nú sinn í hverja átt
kringum hringinn og kalla hvor til annars
þegar þeir mætast „Sælir nú!“ Sá sem verður
fyrri, öðlast staðinn í hringnum, en hinn
verður að vinna sér stað annarstaðar, leik-
urinn byrjar því á ný.
VI.
Nágrannaskiftl.
Sérhver er tekur þátt í leiknum, afmarkar
sór bás; er það bústaður hans; skulu leikend-
urnir mynda þannig hi'ing og skal ætíð vera
nokkurt bil milli hveri a bústaða. Sá sem eftir
er, vanalega foringinn, hefir engan bústað, en
fer innan í hringinn og spyr einn eftir ann-
ann: Ert þú ánægður með nágranna þinn? Sá
sem spurður er, verður þá að svara: „Ekki
sérstaklega! “ eða: „Já mjögvel!“ Svari hann
hinu fyrra, verður hann að segja hvern hann
óskar sér fyrir nágranna, og hvern nágranna
sinna hann er óánægður með, verða þeir þá
að skifta um bústaði, en sá sem er innan í
hringnum, reynir að verða fyrri til. Sá er
verður eftir heldur áfram að spyrja. Ef hann
þará móti svarar: „Jú, mjög vel“, verða allir
að skifta um bústaði, og sá er þá verður
eftir, að vera innan í hringnum.
ltáðning'
gátunnar í síð. tölubl.:
Æ koma mein eftir munað.
lteikningsgáta.
Maður nokkur fær vikukaup sitt, að upp-
hæð 30 krónur, i 2-krónu-peningum, 1-
krónu-peningum og I Q-eyringum, þannig,
að hann fær samtals 30 peninga. Hve marga
peninga fær hann af hverri tegund?
Takið eftir!
Eftir að póstlögin nýju öðluðust gildi,
1. þ. m., er burðargjald undir „Æskuna“
minna en það var áður. Það sem á þenn-
an hátt sparast, verður hagur fyrir kaup-
endui' blaðsins; því verður sem sé varið
til að bæta fráganginn á því. Verður því
eftirleiðis séð um, að „Æskan“ verði prentuð
á beiri pappir og útvegaðar fleiri og betri
myndir í hana. í’etta eru kaupendurnir beðn-
ir að athuga.
En um leið væii gott að þeir aðgættu,
hvort þeir hafa borgað blaðið, og ef þeir
kynnu að hafa gleymt því, þá eru þeir vin-
saml. beðnir að gera það sem allra fyrst,
sérstaklega þeir, sem skulda fyrir fleiri ár-
ganga en þennan yfirstandanda.
Þeir sem fá send 1 eða 2 eint. af blað-
inu, ættu að senda andvirðið í óbvúkuðum
frímerkjum til að eyða sem minstu í burð-
argjaldið.
Aldar-prentBmiðja.