Æskan

Árgangur

Æskan - 31.03.1903, Blaðsíða 4

Æskan - 31.03.1903, Blaðsíða 4
48 ÆSKAN. sem enginn blettur eða hrukka sást á. Á skaftið var grafið ýmiss konar útflúr út til randanna, en á miðju skaftinu vai- annað hvort ártalið, fangamark eigandans eða þá, „guðlaun," „guðsfriði," „súpa“ „grautur" o. s. frv. Gekk Siggu nokkuð örðugt að iesa úr rúnum afa síns, því á suma spænina var grafið með höfðaletri, og fór afi því að kenna henni stafrófið. Aftur á móti var Laugi ekki orðinn svo mentaður enn, að hann væri fær um að leggja út í að ráða höfðaletur. Amma hafði verið að vefa spjald- ofin sokkabönd; þótti Siggu þau allra mesta furðuverk, og skildi ekkert i, hvernig smnia, gæti búið til jafnfallega gripi. En sá galli var á, að amma leyfði þeim alls ekki að snerta á vefnum, því hún sagði þau myndu flækja fyrir sér. Lauga fanst þetta reyndar nokkurs konar harðstjórn, þar sem afi hafði lofað honum að skoða spænina í krók og kring. — En það tjáði ekki um það að tala. Amma var óbundinn einvaldur yfir sokkabandavefnum, svo Laugi varðnauðugur viljugur að láta sér lynda að eins að horfa á. Það má geta nærri, að pabbi og mamma Sigga og 'Laugi hafl ekki verið látin fastandi meðan þau dvöldu í Tungu, sérstaklega þar sem þau dvöldu þar um nóttina og fram undir hádegi daginn eftir, en það yrði oflangt mál, að segja frá öllum góð- gjörðunum. Þess má þó geta, að hvorki muni hafa verið valið af verri endanum, né numið við neglur sér, enda var það við- kvæðið hans Lauga, þegar hann var kominn heim aftur: „Það er langt um betra að borða hjá henni ömmu í Tungu en þér, mamma! “ En það var ekki alt búið, þó þau Sigga hefðu skoðað spænina og sokkaböndin; þau þurftu að fara um allan bæinn, inn í hverja kompu, hvern krók og kima. Og svo þurfti að skoða alt útivið. Par voru fíflarnir og mjölsúrurnar í hiaðvarpanum, njólinn og hvönnin undir fjósveggnum og margt fleira; þá var lækurinn, sem veitt var á túnið, en þar varð Lauga það á, að hann tók hnaus úr veitustokknum, svo lækurinn flaut í far- veg sinn. Ávítaði pabbi Lauga fyrir þetta tiltæki, en afl sagði: „Þú verður vonandi betri jarðyrkjumaður með tímanum, Laugi minn.“ Lambánum var smalað um kvöldið og lömbunum stýað um nóttina. Sigga og Laugi þuiftu eðiilega að fara til stekkjarins til að hjálpa til. Gáfu þau sig lítið að full- orðna fénu, en áttu einkum við lömbin. Ferðin var ekki heldur til ónýtis fyrir Siggu, því afl gaf henni mórautt gimburlamb, gull- fallegt. Það kom í heimtur um haustið, og fóðraði afi það, en út af því kom á sínum tíma heill hópur af nýum iömbum, mórauðum, flekkóttum, golsóttum, botn- óttum, bíldóttum, baugóttum, hvít.um og svörtum, svo þið getið getið því nærri að Sigga heflr orðið ærið fjárrík, er fram í sótti. Ekki lét afl Lauga heldur synjandi frá sér fara. Hann fékk rautt hestfolald morg- uninn eftir, fleygivakurt. Það var látið ganga með móðurinni um veturinn, og varð seinna einhver hinn mesti gæðingur þar í héraði, og þó víðar væri leitað. Ekki tjáir að nefna alt, sem fyrir þau systkinin bar í Tungu, og verður því að láta hér staðar nema. Mitt á milli hádegis og dagmála á sunnu- dagsmorguninn var tekið að hugsa til heim-

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.