Æskan - 24.12.1905, Page 7
JÓLABLAÐ ÆSKUNNAH.
23
Buqlinn minn litli.
Ungi ástvin minn,
oft á sönginn þinn
marga stund eg hjartans feginn hlýddi,
þegar signdi sæ
sól í vorsins blæ
og hauðrið roðnum rósamöttli skrvddi.
Ofar eymd og þraut
upp við blálofts skaut
hergir þú af ijóssins helgu lindurn;
syngur sólaróð
saklaus ástarljóð
uin frelsi’ og vor í fullkomnustu myndum.
Ó, að mætti eg
unz að lýkur veg
himindjúpsins hátign innstu skoða,
barns í blíðri trú
berast líkt og þú
á himinvængjum heilags morgunroða.
Einar P. Jónsson.
i.illa Pöra, sem vildi vera ketlingur.
(Smásaga handa yngstu lesendunum).
'9 að eg væri orðin lítill ketlingur!«
sagði Þóra litla einu sinni, þegar hún
var að myndast við að læra. hÞá þyrfti
eg ekki að ganga á skóm, og gæti ver-
ið laus við að læra að lesa, og að vera
stilt eins og mamma segir, að eg eigi
að vera. Svo þyrfti eg aldrei að vera
angurvær út af því að eg hefði verið ó-
þæg, því ketlingarnir þekkja það víst
ekki! — »Að þú verður angurvær, kem-
ur til af því að þú hefir sál«, sagði
Jórunn, gatnla barnfóstran.
»Þá kæri jeg mig ekkert um að hafa
sál!« sagði Þóra litla.
»Þegar þú hefir magaverk, hvort viltu
þá heldur vera laus við verkinn eða
magann?« spurði Jórunn,
»Náttúrlega við verkinn, því magann
má eg ekki missa. — En segðu mér,
þegar mér er ilt innan um mig, kemur
það ekki til af því, að eg hefi borðað
eitthvað, sem er óholt fyrir mig?«
»Auðvitað, og þegar þú ert angurvær,
þá er það af því að hafa gert eitthvað
ljótt, og þá flnnurðu til i sálunni. Nú
skilur þú, að þú átt að óska, að þú
værir orðin laus við hið illa, en ekki
við sálina«.
»Já, en eg vildi nú samt að eg væri
orðin ketlingur, og það helst strax, ef
eg gæti«.
»Jæja«, sagði móðir Þóru litlu, sem
sat í næsta herbergi og hafði heyrt alt.
— »Það er þá bezt að láta eins og þú
sért ketlingur. Þú þarft þá ekki að
kæra þig um skylduverkin hennar Þóru
litlu, og bara hugsa þér að þú sért
ketlingur«.
»Og þarf eg þá ekkert annað að gera
en að leika mér allan daginn?« kallaði
Þóra litla upp yflr sig af gleði. »Nei,