Sameining alþýðunnar - 01.05.1938, Blaðsíða 3
SAIMIEIHING ALÞÝÐUNNAR
^ófiannes úr TCöífum)
lívöfuganga.
Þúsund-þúsund glaðir geislar
ganga í takt frá Sólarborg,
og í beinum, rauðum röðum
renna loftsins bláu torg.
Kliðmjúk Ijóssins kröfuganga.
Upp með Dag, hans bros og birtu!
Burt með Nótt og hennar sorg!
Þúsund-þúsund glaðir geislar
gliti varpa á kalinn svörð,
— strá úr lófum ást og yndi
yfir hina særðu jörð.
Kliðmjúk Ijóssins kröfuganga.
Upp með blessað, blessað vorið!
Burt með vetrarélin grá!
Kliðmjúk Ijóssins kröfuganga.
Upp með blómin, blöð og leggi!
Burt með klakaspjótin hörð!
Þúsund-þúsund glaðir geislar
grátna strjúka fjallsins brá,
verma hjörtun, verma heiminn,
vígi dauðans ráðast á.
Maí-geislar þúsund-þúsund
þreyttra manna ylja geð,
— leifturhraðir Ijómafingur
lengra ná en verður séð.
Kliðmjúk Ijóssins kröfuganga.
Hulduiaddir hvísla í eyra:
Heyrðu, bróðir! Vertu með!