Afturelding - 01.09.1940, Side 2

Afturelding - 01.09.1940, Side 2
AFTUBELDING AFTURELDING kemur út annan nvorn mánuð og verður 70—80 síður á ári. -— Argangurinn kostar 1,50 og greiðist 14. maí. Borga má með ónotuðum irímerkjUm. — Verð í Vesturheimi 50 cents og á Norðurlöndum 1,50. — 1 lausasöiu kostar blaðið 25 aura h,vert eintak. Otgefandi Flladelfíuforlagið. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Eric Ericson. Ritstjórn og afgreiðsla: Hverfisgötu 44, Reykjavík. Slmi 524 2. — Prentsmiðja Jóns Helgasonar. að uppruni þeirra og þýðing var óviss. Elzta heiti á annari bók Esdras var Opinberun Esras eða Spádómar Esras. En þekktari er hún með heit- inu Fjórða bók Esras. 1 núverandi mynd sinni samanstendur bókin af englaopinberunum, fjölda af sýnum, sem boða oss leyndardóma siða beimsins og lokasigur réttlæt- isins. Esdras lýsir hinu fjórða dýri sem erni, er hefjist úr hafinu. Bann hafði tólf fjaðravængi og þrjú höfuð. Að þessi arnarsýn er framhald af fjórða dýri Daníels verður greinilegt af 11, 39: :>Ert það ekki þú, sem ert eftir af hinum fjórum' dýrum, sem fengu völd í veröld minni, svo tímum þeirra skyldi lokið vegna þeirra«, Af þessu sjáum við, að sýn þessi fjallar um hinztu daga: fjórða dýrs- ins, og að ævi þess er á enda innan skamms um þessar mundir. örninn hafði tólf vængi og þrjú höfuð. Hér sjáum við Evrópu, eins og hún leit út við lok heimsstyrjaldarinnar. Vængirnir tólf tákna hin minni ríki í Evrópu: Rúmeníu, Búlgaríu, Serbíu, Danmörku, Holland, Belgíu, Frakkland, Spán, Portúgal, Grikkland, Austurríki, Sviss. Höfuðin þrjú eru: Rússland, Þýzkaland, og Italía. Enda þótt Tyrkland lægi að nokkru leyti í Evrópu um þessar mundir, tilheyrir það Asíu, og um enda- lok þess er rætt í sambandi við »þurrkun Eufrats«. Þessi þrjú höfuð samsvara efalaust hinum þrem illu öndum, sem Opinberunarbókin talar um, og sem eiga að fara og safna löndum og þjóðum til baráttu á hinum mikla degi hins almáttuga Guðs. »Og örninn talaði til fjaðra sinna og sagði: Vakið ekki aliar í einu. Sérhverri ber að sofa é sínum stað og vaka, þegar skyldan krefur. — Og rödd- in kom ekki úr höfðunum, heldur frá miðju líkam- ans«. Þessi orð lýsa útliti Evrópu við lok heims- 50 styrjaldarinnar, sem átti að vera endalok allra s.tyrjalda. Allir héldu, að friður og velmegun myndi ríkja í heiminum um langan tíma, og þess vegna væri óþarft að vera vakandi eða vökull. Nú sofn- uðu. þjóðirnar hver á sínum s.tað í öryggi, er reynd- ist tál. Veitið því athygli, að þessi öryggistilfinn- ing var ekki komin frá höfðunum þrem, sem nutu hvíldar, og höfðu ekki enn hlotið sinn ætlunartíma, heldur frá þjóðunum sjálfum eða líkama arnarins. »Og ég sá, að úr þessum fjöðrum uxu hliðar- fjaðrir. Þær urðu litlar og óálitlegar. Ég taldi þessar hliðarfjaðrir, og sjá, þær voru átta talsins. Strax eftir Versaillesfriðinn breyttist landabréf Evrópu og hliðarfjaðrirnar komu í ljós. — Þær voru: Pólland, Ungverjaland, Júgóslavía, Tékkóslc- vakía, Albanía, Lettland, Latvía og Elstland. Síðan lesum við, að þessar átta, f jaðrir eða smá- ríki muni hverfa smám saman eitt eftir annað, unz ekkert sé eftir að lokum, og að af vængj- unum tólf muni sex hverfa. Alveg nýlega höfum við séð einræðisríkin leggja undir sig Tékkósló- vakíu og Albaníu. Sjálfsagt munum við lifa það að sjá liin sex innlimuð á sama hátt. (Greinin er skrifuð áður en Póllandsstyrjöldin brauzt út). Nú höfum við séð, að Eistland, Latvia og Lettland, Frakkland, Belgía, Holland og Danmörk hafa ver- ið hertekin. 1 þessum sama kajntula hjá Esdras er einnig talað um, að tvær litlar fjaðrir muni vaxa, er brátt muni hverfa. Þetta má með sanni heimfæra á Memel og Danzig. »Og ekkert var eftir á líkama arnarins nema höfuðin þrjú og sex litlir vængir«. 11, 23. Eftir þessu að dæma lítur út fyrir, að sex hinna tólf vængja eða ríkja muni verða innlimuð, eftir að einvaldarnir hafa brotið undir yfirráð sín smá- ríkin átta eða »hliðarfjaðrirnar«. Af þeim eru Austurríki og Pólland þegar horfin úr tölu sjáif- stæðra ríkja. Landabréf Evrópu mun þannig sýna höfuðin þrjú, eða Þýzkaland, Italíu og Rússland, ásamt sex ríkjum öðrum.. Það er engum vafa und- irorpið, að þær sex þjóðir, sem eftir verða eru: Iíolland, Belgía, Danmork og Frakkland. Noregur og Svíþjóð tilheyra Evrópu að sönnu. en þau til- heyrðu aldrei Rómaveldi. »Og eftir þetta horfði ég, og sjá, höfuðið, sem var í miðið, hvarf skyndilega og sást ekki fram- ar, á sama hátt og vængirnir. En hin höfuðin tvö voru eftir, og höfuoið hægra, megin gleypti í sig höfuðið, sem var vinstra megin«. I eftirfarandi

x

Afturelding

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.