Afturelding - 01.09.1940, Síða 8
A F T U R E Ix 1) I N G.
starfinu út um sveitirnar, einkum akurvinnunni.
Á einum stað sá ég, sagði sr. Pethrus, marga skóla-
bekki vera að setja niður jarðepli undir umsjón
kennara og kennslukvenna. Það var ánægjulegt
að sjá áhuga æskunnar á þessu starfi.
Eistland.
Kirkja seld á uppljoði á 605 kr. og gerö að rúss-
neskri sögunarmyllu.
Frá fréttaritara Stokkhólms-tíðinda.
Tallinn 8. júní.
Á eyjunni ösel haía Rússar koimið upp hernaðar-
stöð, og þar var kirkja seld á uppboði í gær. Nokk-
ur hluti safnaðarmeðlimanna voru Þjóðverjar og
hafa nú fluzt til Þýzkalands, en aðrir hafa. flúið
land. Af því að söfnuðurinn var í skuldum, þá var
kirkjan seld á uppboiðsþingi. Sannvirði kirkjunnar
var kr. 5000,00. Allir þeir, sem bjuggu í grennd-
inni komu þangað til að vera við uppboðið og sjö
voru þeir, sem kepptu um boðið. Loks var boðið
kr. 605,00. Og nú á að breyta kirkjunni í sögunar-
myllu, er á að saga fyrir Rússa, því að þeir eru
nú að byggja hermannaskála á eynni o. s. frv. —
Innanstokksmunir kirkjunnar voru seldir sér í lagi
fyrir mjög lítið verð.
Stokkhólm, Svíþjóð.
Grundvöllurinn lagður að hvítasunnukirkjunni nr.2
Kl. 18—20 á þriðjudaginn var grundvöllurinn
lagður að hinni annari Hvítasunnukirkju í Stokk-
hólmi í horninu á Gotlandsgötu og Gautagötu. Hún
rúmar 1300 manns. 1 sömu byggingunni eru líka
íbúðarhús, sex íbúðir.
Við grundvöllunina múraði sr. Alfred Gustaf-
son, prédikari Södermalms frísafnaðar, sem byggði
kirkjuna, skjalaskrín unlir hornið. Á þau skjöl var
ritað meðal annars hagskýrsla safnaðarins, tíu árs-
skýrslur, yfir þau fyrstu tíu árin, sem sofnuður-
inn starfaði, útdráttur úr gjörðabók yfir ályktun
og erindi, sem snerta aðdragandann að kirkjubygg-
ingunni og framgang hennar, dagblöðin og blað
Hvítasunnuhreyfingarinnar Evangelii Hárold, og
ýmislegt annað, svo sem ljósmynd af stjórn kirkju-
byggingarinnar, prentuð skrá yfir nöfn meðlima
safnaðarins o. m. fl.
Frísöfnuður Södermalms hafði áður eigi getað
fundið neinn hentugri stað á Söder, en hið fyrrv.
kvikmyndaJeikhús á Mosebacketorgi 16—18 og þar
vantaði alla dagsbirtu, meðal annars. Það var farið
að undirbúa kirkjubygging'una þegar 1930 í sömu
56
stærö og nú. Sr. Gustafson, kunnur frá upphafi
hvítasunnuhreyfingarinnar og fovrstöðumaður fyr-
ir Södermalms frísöfnuði, frá því er hann hóf starf
sitt, hefir alltaf með lifandi áhuga og anda unnið
að því að hvítasunnukirkja væri reist á Söder..
Þeir, sem ásamt honum hafa stutt að framkvæmd
verksins, eru fyrst og fremst verksmiðjueigandi
David Persson, stórkaupmaður Ernst Wahl o>g for-
stjóri Axel Erikson, og eru þeir allir í safnaöar-
stjórninni.
Húsameistari Adrian Peterson hefir gjört upp-
drættina að kirkjunni. — Forsmiðurinn að kirkj-
unni var húsameistari Hans. Hansson.
Hótelið »Fönix-krónprin8Ínn« verður þriðja
kirkja Hvítasunnuvinanna í Stokkhólmi.
Hvítasunnumenn í Stakkhólmi fastréðu með sér
milljónar-kaup síðasta þriðjudag, og mun margur
vissulega verða til að geta þess. östermalms frí-
söfnuðurinn, sem allt að þessu hefir haft K. F.
U. K. að samkomusal, hefir sem sé stofnað hluta-
félag og fest kaup á stærsta matsöluhúsi höfuð-
borgarinnar: Fönix-höllinni, þ. e. hinu alkunna
Fö'nix-kronprin.se'tv; nú á að breyta því í samkomu-
sal handa Hvítasunnuvinunum. öll fasteignin er
með í kaupunum og fjöldinn allur af ýmislegum
íbúðarhúsum.
Það eru þó einkum matsöluhúsJð sjálft, sem söfn-
uðurinn á að fá umráð yfir. Fyrsti veitingasalur
í Fönix-matsöluhúsinu á að breytast. í áheyrenda-
sal og eiga þar að vera sæti handa 1500 manna;
auk þess á að gera hina veitingasalina að bæna-
sal, afgreiðslusal o. fl. Hinn svo, nefndi baksalur
verður handa smásamkomum, er tekur um 300
manns í sæti. Allt á að vera, tilbúið til innflutnings
1. okt. þ. á. Það heyrir og til þessa máls, að eig-
andi fasteignarinnar, Paul Meier forstjóri, fékk
söfnuöinum 10,000 króna Hammoind-orgel að gjöf,.
rafmagnsorgel matsöluhússins Fönix.
Frísöfnuður Östermalms, sem er í náinni sam-
vinnu við Fíladelfíusöfnuðinn, er eigi nema fjögra
ára, en þó eru meðlimir orðnir 500. Þessi öra f jölg-
un í söfnuðinum hefir nú lengi haldið byggingar-
málinu vakandi, en árferðið gert ómögulegt að
byggja af nýju. Forstöðumaður er sr. Elis Lind-
skog og annar prédikari sr. Anders, Andersson.
Það má geta þess, að Fíladelfíu-söfnuðurinn
hefir um þessar mundir greitt síðustu afborgun
af því láni, sem söfnuðurinn tók, er hann byggði