Afturelding - 01.12.1942, Qupperneq 3
Fridar-
KÖFD-
IN.GINN.
• C3 7?á5-
»I>vl að barn er oss fætt, Sonur er oss gefinn; á. hans
herðum skal höfðingjadómurinn hvíla; nafn hans skal kalla
Undraráðgjafi, Guðhetja, Eillfðarfaðir, Friðarhöfðingi. Mik-
ill skal höfðingjadómurinn verða og friðurinn engan enda
takat. Jes. 9, 6.—7.
Þetta er einn af spádómum Jesaja spámanns
um hinn fyrirheitna Frelsara Jesúm Krist. Guð
sendi Son sinn í heiminn til þess að frelsa lýð
sinn frá syndum þeirra, og til að stofna eilíft frið-
arríki. Konungdómur Hans mun engan enda taka.
Konungar jarðarinnar munu þjóna honum og færa
honum dýrð sína á hinni nýju jörð. Því að Guð
mun skapa nýjan himin og nýja jörð, og þar mun
eilífur friður og réttlæti Guðs búa. Þar fá öll Guðs
börn að vera, allir þeir, sem elska Jesúm og þjóna
Honum trúlega hér á jörðu.
Nú eru talin vera 1942 ár, síðan Jesús fæddist
í þennan heim. En, hann fæddist ekki í konungs-
höllinni og ekki í konungsfjölskyldunni, þó Hann
sé Konungur konunga og Drottinn drottnanna,
heldur fæddist hann af fátækri mey. Móðir hans
vafði hann reifum og lagði hann í jötuna. Þann-
ig var ráðstöfun Guðs. Hann, sem lifði í dýrðinni
hjá Föðurnum frá eilífð, afklæddist dýrð sinni,
tók á sig þjónsmynd og íklæddist mannlegu holdi.
Hann gerðist fátækur vor vegna, þótt hann rík-
ur væri, til þess að vér auðguðumst af fátækt
hans. »Hann var særður vegna vorra synda og
kraminn vegna vorra misgjörða, hegningin, sem
vér höfðum til unnið, kom niður á honum; og
fyrir hans benjar urðum vér heilbrigðir«. »Hann
kom til eignar sinnar, en hans eigin menn tóku
ekki við honum; en öllum, sem tóku við honum, gaf
hann rétt til að verða Guðs börn, þeirn, sem trúa
á nafn hans«.
Gyðingar, sem voru Guðs útvalda þjóð, vildu
ekki kannast við hann sem Frelsara sinn, af því
syndin hafði blindað svo hugskot þeirra, að þeir
gátu ekki veitt orðum hans viðtöku og trúað á
hann, þó að þeir væru sjónar- og heyrnarvottar
að öllum þeim miklu dásemdarverkum, sem hann
gerði meðal lýðsins. Og þó hann talaði til fólks-
ins undursamlegri huggunar- og uppörfunarorð
en noklcur annar hefir gert. Þeir, sem áttu að upp-
fræða þjóðina í Guðs orði og undirbúa hana til
að taka á móti Frelsara heimsins, þegar hann
kæmi, þeir hötuðu hann fyrir það, að hann sagði
þeim sannleikann um sjálfa þá.
En Guð Faðir, sem veit allt, hann vissi fyrir,
hvaða viðtökur hans elskaði Sonur mundi fá hjá
þjóð sinni. Þess vegna opinberaði hann það spá-
mönnunum fyrirfram: Að hann ætti að fæðast í
borginni Betlehem af Maríu mey, vera getinn af
Heilögum Anda« Að hann ætti að verða hataður
og ofsóttur og líða hinn smánarlegasta dauða á
krossi vegna synda mannanna. Að hann ætti að
friðþægja fyrir syndir mannkynsins með blóði
sínu- úthelltu á krossinum. Að hann ætti að verða
lagður í gröf en rísa upp á þriðja degi og birtast
lærisveinum sínum, til þess að fullvissa þá um,
að hann lifir og er með sínum allt til enda ver-
aldar.