Afturelding - 01.12.1942, Page 4

Afturelding - 01.12.1942, Page 4
64 AFTURELDING AFTURELDING kemur út annan h,vern mánuð og verður 70—80 síður á ári. Argangurinn kostar kr. 2,00 og greiðist 1. maí. Verð I Vesturheimi 50 cents og á Norðurlöndum kr. 3,00. — 1 lausasölu kostar blaðið 35 aura hvert eintak. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Eric Ericson. Ritstjórn og afgreiðsla: Hverfisgötu 44, Reykjavík. Sími 524 2. — Prentsmiðja Jóns Helgasonar. — ÚTGEFANDI FILADELFIUFORLAGIÐ. — Svo lofaði hann lærisveinum sínum að senda þeim Heilagan Anda, til þess að þeir öðluðust kraft og djörfung til að fara út með fagnaðar- erindið og kristna allar þjóðir jarðarinnar og skíra þá, sem gerðust trúaðir á hann, til nafns Föður- ins, Sonarins og hins Heilaga Anda, og kenna þeim að halda það, sem hann hafði boðað þeim. Þess vegna hvílir sú skylda á öllum, sem hafa gefist honum að boða öðrum fagnaðarerindið. Gefi Guð oss öllum náð að reynast honum trú til dauðans. Hann hefir lofað oss krafti af hæð- um, til að sigrast á sérhverri þraut í erfiðleikum lífsins. Bráðum kemur Jesús aftur til að kalla sinn blóðkeypta skara heim í dýrð himnanna. Ertu tilbúinn kæra sál, að mæta honum. Prófa þig sjálfan, hvort þú munir vera í tölu fávísu meyjanna, sem enga olíu höfðu og urðu eftir í myrkrinu fyrir utan, þegar hinar gengu inn í brúðkaupssalinn. Opinb. 19, 7—9; 22, 17, 20, 21. Guð gefi oss öllum, sem lesum þessar línur, náð til þess að verða þá í tölu hinna hyggnu meyja, sem höfðu olíuna á lömpum sínum, þegar Jesús kemur aftur. Svo óska ég öllum lesendum Aftureldingar gleðilegra jóla og nýjárs í Jesú nafni. Sæmundur S. Sigfússon. Ó, lítið upp, Krists vinir kœru! ó, lítið upp, Krists vinir kæru! Hann kemur í skýjum brátt. Og englana sína sendir að tafna í hverri átt. Þeir safna þá lífs og liðnum og lyfta í hæðir blá, til fundar við Drottinn drottna, að dýrð hans þeir megi sjá. ó, ertu brottferðar búinn? Því búast við kalli þú mátt. ó, verður þú fundinn þess verður, og viðbúinn, dag sem nátt? Ef ljósið af Drottins ljósi er lifandi i hjarta þór, þá finnur þig Frelsarinn góði, til föðurhúsa þig ber. B. J. þýddi. Fet fyrir fet. Sagan gerist í einni stórborginni í Vestur-Ame- ríku, nokkrum vikum fyrir jól. Ungur maður gekk löturhægt upp eftir einni aðalgötu borgarinnar. Hann lítur við og við i sýningarvörurnar í stórverzlununum, en heldur þó áfram, án þess að gei'a þeim noklturn veruleg- an gaum. Því að hvað getur það hjálpað atvinnu- lausum manni og félausum að veita þeim hlut- um athygli, sem kosta eitthvað! Já, þangað var hann kominn! Hann, sem var nú einmitt að stíga af skipinu til að útvega sér ábyggilegt og vel launað starf í landi — svo að hann gæti birgt sig og haft dálítið afgangs. Það er að skiija: peninga til að senda heim til for- eldra sinna; hann hafði heitið þeim því, þegar hann fór, að nú skyldi hann sjá um, að þau skyldu úr þessu hafa nóg að bíta og brenna, því að hann ætlaði að bæta úr öllum fjárhagsörðugleikum þeirra. En hann hafði bara haft svo lítið afgangs á skipinu. Hann gat ekkert sent heim. Þar fór allt í súginn hjá honum. Nú var hann genginn af skipinu, til þess að koma þar ár sinni betur fyrir borð — í landi, því hann vildi gjarna efna orð sín við foreldrana. En það var hægra að segja en gera að fá ein- hverja vinnu. Honum virtist alstaðar vera fullt af fólki. Enginn þurfti hans við og á skipið var löngu kominn nýr maður í hans stað. Hann var búinn að eyða hverjum eyri og eyða öllu, sem verja mátti í peninga. Hann var grár og rytju- legur eins og þokan í kringum hann og dagarn- ir fram undan honum. Og svo sökk hann á kaf í þokukenndar hugsanir. Hvað var nú lífið í raun og veru? Sjónhverfing! Hann vildi svo gjarna fá að sjá eitthvað af heiminum og smakka á því, sem hann hafði að bjóða. En það voru hillingar, unaðsfagurt land, en nú leit helzt út fyrir, að hann fengi ekki að koma inn í það. Það var sjón- hverfing ein! Hann vildi svo gjarna efna öll heit- in við pabba og mömmu um svo margt. Hann hélt, að sér mundi ganga allt að óskum. En líf- ið leyfði það ekki. Hann stóð ekki við orð sín, allt var þokufullt og grátt. »Ekki neitt«. Hann var sjónhverfing sjálfur og framtíð hans virtist vera það líka, því að hún lofaði engu. Hún var svo ömurleg, svo ömurleg. Iíonum féllst hugur. Var lífið þess vert að lifa

x

Afturelding

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.