Afturelding - 01.12.1942, Blaðsíða 12
72
AFTURELDING
Fyrir nokkru síðan las ég í ferðasögu frá Pale-
stínu, að Betlehem væri blóði drifnasti staður
jarðarinnar. Þegar ég las þetta, fanst mér and-
stæðunum ljósta saman í huga mér. Betlehem, þar
sem hinir helgu spámenn Guðs höfðu löngu fyr-
ir sagt, að Frelsarinn skyldi fæðast, og fæddist.
Betiehem, faðingarsiaður Friðarhöfðingjans, upp-
sprettan að öllu, sem satt er og fagurt, öllu, sem
er göfugt og gott í málsins beztu merkingu, að
þar, einmitt þar, skuli blóð hafa litað jörðina
meira en nokkurstaðar annarsstaðar í þessum
blóði flekkaða heimi.
Furðuleg mótsetning! 1 sannleika undarlegur
Guð. Því er það ekki undarlegt, að náttúrlegum
manni finnist ráð hans stundum óskiljaidegt.
Hann er, eins og Sören Kirkegaard segir, and-
stæðnanna og mótsagnanna Guð, í veru og verki
— fljótt á litið. Um leið og ég hafði lesið þetta
um Betlehem, mintist ég þess, sem Gyðingur einn
sagði mér, að Betlehem þýddi: brauðhúsið, stað-
urinn, þangað sem maður gæti gengið til þess að
sækja vín og sæði í nægtum, yfirhöfuð »staður-
inn, þangað sem maður getur farið til þegs að
fylla allar þarfir sínar í dýrð«.
Þetta hefir líka orðið sígildur sannleikur fyr-
ir mannkynið. — Vissulega finnast margir stað-
ir, þar, sem viðurkenndir menn reyna að túlka
gátur tilverunnar. Þar næra menn anda sinn að
vísu. Samtíð okkar iðar af miklum mönnum, sem
múgurinn lítur upp til í dag og dýrltar nálega
sem »guði«.
sinnar. Út úr kirkjunni ómaði orgelhljómur og
sálmasöngur: »Oss er í dag Frelsari fædd ir«.
En inni í hjörtum bræðranna heyrðu þeir óma:
>Hann er Frelsari minn, hann er Frelsari minnc.
B. Bentzen. — B. J.
En seg mér, hvað er allt þetta borið saman við
Betlehem! Næstum ekki neiit. Aðeins dauft mána-
skin, borið saman við þá dýrð, sem ljómar frá
Kristi — réttlætissólinni, og fólki hans, söfnuð-
inum. Þetta verður sagnfræðingurinn að játa og
vísindamaðurinn að viðurkenna.
Jesús er og verðnr það, sem hann kvaðst vera:
brauð lífsins, frá Betlehem, Brauðhúsinu, brauð-
borginni. Þetta er hann, af því að Guð var í bon-
um, og friðþægði heiminn við sjálfan sig. Hann
burtnam fjandskapinn og lagði svo grundvöllinn
að öllu sönnu friðarverki í heiminum. I sjálfum sér
grundvallaði hann friðarríki á jörðu, friðþægði
andstæðurnar í tilverunni og í manninum, já, í
sköpuninni og alheiminum. Og þar sem Orð hans
og Andi er, þar er friðarríkið þegar, í raunveru-
leika. Og þrátt fyrir það, þótt drunur spreng-
inga og öfl undirdjúpsins séu enn að verki á jörðu
hér, þá er þetta allt fyrir þann sem trúir, áfangi
að baki. Það er vegna þess, að lögmál syndarinn-
ar og dauðans er orðið óvirkt í þeim manni, sem
er orðinn helgaður Guði, fyrir lífssambandið við
Jesúm Krist. Því að Jesús er hinn lifandi og upp-
risni Frelsari, og gefur þeim viðvarandi líf, sem
trúir á hann. 1 gegnum alla þá vinnur hann að
friðarverki sínu á jörðinni þrátt fyrir alt.
Þess vegna er mest um vert fyrir okkur að trúa
á leiðtoga okkar Jesúm Krist, sem farið hefir út
sigrandi og til þess að sigra. Þetta er því nauðsyn-
legra, sem bersýnilegra er, að endir aldanna er
yfir okkur kominn. Þess er nú þörf fremur en
nokkru sinni, að trúa á kraft krossins, endur-
fæðast og eignast nýtt líf. Við skulum því ekki
láta afvegaleiðast af neinskonar blekkingum eða
villu, en haida okkur því fastar við hinn einfalda
veg, sem öfl undirdjúpsins verða voldugri.
Það er þetta, og miklu meira, sem Betlehem,
/