Afturelding - 01.04.1953, Blaðsíða 3

Afturelding - 01.04.1953, Blaðsíða 3
AFTURELDING Þetta gjörðu nú hermennirnir. „Og þeir fléttuðu kórónu af þyrnum og settu á höuð honum og reyrstaf í hægri hönd honum; og þeir féllu á kné frammi fyrir honum, hæddu hann og sögðu: Heill vertu Gyðinga konungur!" Matt. 27,29. „Þeir sögðu því hver við annan: Skerum hann ekki í sundur, köstum heldtir hlut um hann. hver skuli fá hann; þvi rætast hlaut sú ritning, er segir: Þeir skiptu með sér klæðum mínum og köstuðu hlnt ttm kyrtil minn. Þetta gjörðu nú hermennirnir." Jóh. 19,24. Þannig hljóða þessi orð úr píslarsögu Jesú frá Nazaret, þar sem hann er hand- lekinn og grimmir hermenn taka að pína hann, hæða og smána. Vegna þess að hann hafði sagzt vera konungur, þá fara þeir af stað og flétta kórónu úr þyrnum og setja á höfuð hans. Við getum vel skilið, hve sársaukafullt það hefur verið, þegar hinir hvössu broddar stungust djúpt inn í hið hreina, saklausa enni Frelsarans. því þar var ekki tekið á með mjúkum ^ höndum. Heldur stendur, að þeir slógu hann í höfuðið. og þá skiljum við, að þyrnarnir hafi þrýstst enn dýpra inn í enni hans. En þar stendpr Frelsarinn og mælir ekki orð af vör- um. Hann líður þelta allt með mestu þolinmæði, því hann stendur þar í stað okkar mannanna. Vegna synda okkar verðskuldum við alls konar pyndingar og kvalir. En þegar Jesús á að greiða syndasekt og græða sár hins fallna mannkyns, þá verður hann að þola allt þetta, sem við lesum um, að hafi gjörzt þar í hallargarðinum og á krossinum. Hann þurfti að líða háðung og neyð og bera þyrnikórónu til þess að geta áunnið banda okkur dýrð og sælu og eilífa kórónu lífsins í ríki Guðs. Þegar nú hermennirnir voru búnir að pína og hæða hann, þá finnst þeim það viðeigandi að skipta með sér klæðum hans og kasta hlut um kyrtil hans. Hjörtu okkar komast við, þegar við hugsum um þetta, og við segjum: Þetta var hræðilegt! Að þeir skuli hafa farið svona að með Jesúm! En þetta gjörðu nú hermennirnir. En hvað gjöra svo menn þann dag í dag og hafa gjörl á öllum tímum, síðan Kristur Hfði og dó? Með lífi og athöfnum sínum flétta menn kórónur sínar og þrýsta á höfuð Drottins. Þeir segjast vera kristnir og bera hið guðdómlega nafn lians, sem trúarjátningu. En h\ar er hinn sanna guðfdýrkun og tilbeiðsla? Verður það ekki oft eins og hjá hermönnunuin? Það verður háð og spott, þyrnar og stingandi broddar, al' því að hjartað er ekki gagntekið af elsku til Frelsar- ans. Þeir játa trúarskoðanir ýmiskonar og segjast vera kristnir, en lífið og orðin eru eins og stingandi þvrni- gerði. Og heldurðu að Kristur finni það ekki og líði fyrir það? o Hér þarf að koma vakning, svo að menn leiti til Jesú í auðmýkt og trú og frelsist frá hinni heimsltgu og syndsamleg breyttni, til þess að þeir af hug og sál geti elskað hann og þjónað honum, sem leið vegna synda þeirra. En hve margir eru þeir, sem gjöra eins og hermenn- irnir? Þegar þeir hafa hætt og spottað og staðið gegn kærleika Krists, og hafnað kenningu hans um hreint og lieilagt líf, þá fara þeir að skipta milli sín klæðum hans. Það er: gjöra tilkall til blessunar og gæða Jesú Krists 19

x

Afturelding

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.