Afturelding - 01.04.1953, Blaðsíða 1
20. ÁBG.
REYKJAVÍK 1953.
3.-4. TBL.
BILLY GRAHAM:
Kristur íyrir alla
(iuð heíur gefið okkur regnboga af von
------von, sem leysir allar ráðgátur okkar.
Á spjöldum sögunnar sjáum við að kyn-
slóðirnar hafa titrað af kvöl. Heimurinn er
sjúkur. Hann er fullur af hatri, grimmd, for-
mælingum, afbrotum og efasemdum. Or-
vænting og dauði læðist inn í líf allrn landa
— sorgir, þjáningar og takmarkalaus synd.
Slríð og vonzka hafa gerl samlíð okkar
taumlausa. Þegar þú lest blöðin eða hlustar
á útvarp og heyrir um allt þctta — þá
minnstu þess, að hina einustu eðlilegn skýr-
ingu á þessu hræðilega ástandi, sem við lil-
um við í dag, er að finna í gömlu bókinni
— Biblíunni.
Erfiðleikar okkar eru ekki orðnir til í dag
Þeir eru aðeins nú meira augljósir okkur.
Þeir koma yfir okkur í nýju ljósi. En í að-
alatriðum stöndum við andspænis hinum
sömu freistingum og sömu erfiðleikum, sem
hafa mætt horfnum kynslóðum. Frá up])hafi ve'ga. hafa
einkum þrjú atriði valdið mönnunum mestum erfiðleik-
um, og þetta er innofið fortíð hvers einasta einstaklings,
yfirstandandi tíð og framtíð. Einmitt á þessari stundu
stríðir þú við eitt eða fleiri þessara vandamála.
Þriðji kapítuli sköpunarsögunnar færir okkur skýr-
inguna. Fyrsli kafli Rómverjabréfsins dregur upp fyrir
okkur hið hræðilega ástand, sem skapazt hefur af hinum
óleystu vandamálum. En fagnaðarboðskapur Jesú Krists
veitir okkur lækninguna. Þessi óleystu vandamál kyn-
slóðanna eru: Spilling, sorg og dauði.
Spillingin hefur fyllt fangelsin, sorgin hjörtu okkar,
og dauðinn kirkjugarðana. Sökum hins spillta og synd-
BILLY GRAHAM er talinn einn snjallasti préilikari, gem nú er uppi í Banda-
ríkjunum. Svo að segja da«;leR:a talar hann til milljóna manna gepnum útvarp.
Þessa ræðu flutti hann í útvarp fyrir nokkru síðan.
uga eðlis mannsins, er hann fullur af hatri, grimmd og
öfund. Fyrirdæming syndarinnar hvílir yfir líkama
mannsins, og af stöðugum ótta við dauðann er hann á
flótta fram á grafarbarminn.
Það lítur svo út, sem manninum hafi tekizt með snilli
sinni og uppgötvunum, að umbreyta öllu nema sjálf-
um sér. Öll J)ekkjum við hve róttæk breyting liefur orðið
á alheiminum, síðan um síðustu aldamót. Tungumál,
siðvenjur og þjóðfélagslegar aðstæður hafa umbreytzt
og stórstígar tæknislegar framkvæmdir hafa átt sér stað
á síðustu árunum. En þrátt fyrir allar hinar óvenjulegu
framfarir, sem hafa átt sér stað, hefur ])að ekki verið
mögulegt að leysa grundvallarvandamálin. Maðurinn