Fjallkonutíðindi - 01.12.1915, Qupperneq 11
Fjallkonutíðindi.
9
f jallkonuút^áfar\
gefur út góðar og gagnlegar bækur.
Þegar eru út komnar:
1. Lög Islands, öll þau er nú gilda. Safnað hefir
EINAR ARNÓRSSON ráðherra. Þetta er fyrsta sinni,
sem öll gildandi lög landsins hafa verið prentuð í
einni heild. Koma út í heftum á 75 aura fyrir áskrif-
endur (kr. 1,25 í lausasölu). Mjög hagkvæmt efnis-
yíirlit fylgir. — 1 hefti kemur út hvern mánuð. Nú
út komin 8 hefti. Eftir hvert Alþingi kemur út við-
bætir með efnisskrá og nákvæmlega tilgreint um úr-
fellingar, svo bókin verður altaf í fullu gildi.
Hver fulltiða maður þarf að eiga þessa bók.
2. Söguþœttir Gisla KonráÖssonar. Rúið hefir
undir prentun dr. JÓN ÞORKELSSON. Hér eru
teknir upp allir beztu þættirnir, sem þessi stórfróði
maður hefir ritað. Er þar fyrstur þáttur Grafarjóns
og Staðarmanna, þá þáttur frá Fjalla-Eyvindi, Höllu,
Arnesi, Abraliam og Hirti útileguþófum, þá þáttur
Axlarbjörns og Sveins skotta, þá þáttur Hvanndala-
bjarna og bræðra hans, þáttur Iilíðarhalldórs, Magn-
úsar prests og Ketils o. s. frv. Þinghöld og fleiri
gögn viðvíkjandi hinum 57msu viðburðum eru einnig
prentuð og er frásögnin hér hin sannfróðasta. Kem-
ur út í heftum á 75 aura fyrir áskrifendur (kr. 1,25
í lausasölu). Hefti kemur út þriðja hvern mánuð.
Nú útkomin 3 hefti.