Fjallkonutíðindi - 01.12.1915, Síða 13
Fjallkonutíðindi.
11
miklu stærri og flytur meðal annars fram yíir 4.
útgáfu fargjaldstaxta og flutningstaxta Eimskipafél.
Islands og ágrip af helztu lögum frá i sumar. Þrátt
fyrir þessa stækkun er verðið óbreytt. Bókin er svo
ódýr að hún er ekki lengi að borga sig.
Sk. Frd Skotlandi eftir JÓN ÞORBERGSSON. 128 bls.
í allstóru broti með 12 myndum á sérstökum blöð-
um. Verð kr. 1,50. — Bókin er mjög skemtileg og
stórum fræðandi og gagnleg fyrir alla landbændur.
Full af leiðbeiningum sem miða til arðvænlegra
framfara. Hver búandi maður þarf að eiga hana og
einnig hver sem vill kynnast frændum vorum á
Skotlandi, því að þó að hún ræði aðallega um land-
búnað, er þar mjög skýr lýsing á Skotum heima
fyrir.
í vetur koma út meðal annars þessar bækur:
7. Saga Islands eftir JÓN docent JÓNSSON. Stórt
rit og vandað, sem allir góðir Islendingar þurfa að
eignast. Svo sem áður er auglýst kemur ritið út á
2’/2—3 árum, og kostar um 6 kr., það sem kemur
út hvert árið.
8. Grœnlandsför eftir vigfús sigurðsson
GRÆNLANDSFARA. Frásögnin er afarskemlileg og
mjög fróðleg. Margt ber við á svo einkennilegri för,
og sérlega vel er sagt frá. í bókinni verður mikið
af myndum, svo og landsuppdrættir. Ættu menn
ekki að sitja sig úr færi að eignast hana. Kemur
út í heftum á 75 aura.
9. Bragðamágusarsaga. Hún er upphaf á Ridd-
arasagnaílokki er haldið verður áfram að gefa út.
Verður bver hin stærri saga sjálfstæð bók. Saga
þessi er — svo sem kunnugt er — ein hin ágætasta
riddarasaga og vel á borð við góðar nútíma skáld-
sögur. Verð 2,25.