Fjallkonutíðindi - 01.12.1915, Page 16
14
Fjallkonutíðindi.
Samvinna.
Fjallkonuútgáfan vill leita vitneskju hjá yður um
hverjar eða hverskonar bækur þér óskið að gefnar séu
út. Þá og hvað þér álítið um að bækur þær gengju út
í grend við yður eða ef þér vilduð afla þeim kaupanda
(áskrifenda) hversu margra væri að vænta.
Auðvitað yrði sú tala ekki að neinu leiti bindandi
fyrir yður, en þó nauðsynlegt að fá ágizkunina eftir því
sem yður þykir líklegast.
Með þessu móti verður hægt að gefa út bækur sem
í raun og veru er þörf á, án þess að eiga of mikið á
hættu með söluna og geta þær af því orðið ódýrari.
Þér gerðuð vel í að senda tillögur yðar*). Með því
vinnið þér að þvi að út komi bækur, sem yður líkar.
Virðingarfylst.
Fj al I kon u útgáf an,
Pósthólf 488, Reykjavík.
*) Gerið svo vel að láta ekki standa neitt um önnur mál-
efni á pví sama blaði, par sem pað verður geymt sér með öðr-
um tillögum.