Morgunblaðið - 06.01.1962, Side 8

Morgunblaðið - 06.01.1962, Side 8
8 MORGUNBLAÐIÐ Laugardagur 6. jan. 1962 Lénharður fógeti svndur í Biskupstungum tTM MARGT geta fslendingar deilt, en trauðla um það, að ungmennafélagshreyfingin hefir allt frá því hún barst hingað til lands orðið til mikils menningar auka fyrir landismenn alla og þá að sjálfsögðu fyrst og fremst í því umhverfi, sem rætur hennar ihafa verið öflugastar, í sveitum landsins. Að þessu sinni fer ég þó ekki langt útí þá sálma, en leyfi mér að minna á, að hvar- vetna þar sem félögin hafa starf að með dugnaði og árvekni hefir leiklistir. jafnan skipað æðsta sess í starfi þeirra. Ekki er það þó fyrir, að alltaf hafi verið svo hægit um stór- átök á þvi sviði, þó munu víst flest ungmennafélög um hinar dreifðu byggðir landsins hatfa þá sögu að segja að þrátt fyrir ófullnægjandi húsakost til félags- starfs, miklar fjarlægðir milli félaga og nagandi fjárskort hafi tekizt að velta hinum ótrúleg- ustu Grettistökum á þessu sviði. Eitt af þeim ungmennafélögum er áreiðanlega hefir haft náin kynni af þeirri sögu er hér hefir yerið orðuð, einhverju atriðinu eða máske öllum, er UMP Bisk- upstungna. I>að félag hefir þó við þessar aðstæður sýnt hina merkustu sjónleiki. Ekki þarf að efa, að þeir, sem á hverjum tíma hatfa átt þess kost að sjá flutning og sviðsetningu þeirra, hafa met ið verk félagsins og sannfærzt um að með því væri það að leggja menningarlífi sinnar sveitar ötfl ugt lið jafnframt því sem að væri til aukins þroska þeim er að leiksýningunum stæðu hverju sinni. Af sjónleikjum þeim, er félagið hefir tekið til meðferðar má nefna Syndir annarra, Galdra Loft, Vesturfarana, Tengda- mömmu, Þorlák þreytta, Jeppa á Fjalli, Almannaróm o.fl., sem of langt yrði hér upp að telja. Og enn á því ári er nú er nýliðið hefir félagið beint starfi síniu að þessu viðfangsefni, nú með sýn- ingum á „Lénharði fógeta“ eftir Einar H. Kvaran. — Nú er sú breyting þó á orðin hjá Ung- mennafélagi Biskupstungna, að það hefir eignast ásamt sveitar- félaginu og kvenfélagi sveitarinn ar stórt og veglegt félagsheim- ili, sem að öllum líkindum er eitt hið glæsilegasta hús í sveiftum þessa lands, enda er BiSkups- tungnahreppur fjölmenn sveit með fjölþættsin búskap í bak- grunn svo að vænta má að þar verði jafnan um fjölmenni að ræða af heimamönnum. Lénlharður fógeti er gamall kunningi, sem æði margir kann- ast við af leiksviði 1 meðförum m.a. Leikfélags Reykjavíkur og Þjóðleikhússins fyrir nokkrum ár um. Ekki skal ég því ræða um leikritið sjálft enda sæti það sízt á svo óvönum leikhúsmanni, sem ég er. Ég átti hinsvegar fyrir velvilja stjórnar u.mf. Bisfkups- tungna, kost á að sjá frumsýn- ingu leikritsins á þriðja dag jóla og langar því að fara um meðferð þess og uppsetningu fáum orðum. Ein af kröfum nútímans er sú að sérstakur leikstjóri sjái urn uppsetningu og stjórn á sjón- leikjum, sem sýndir eru og er sannarlega gott eitt um það að segja þar sem efni og aðstæður leyfa að hafa þann hátt á. Ung- mennafélag Biskupstungna hefir að þessu sinni verið svo heppið að fá til sín ungan og áhugasam an leikhúsmann, sem þar á ofan er ættaður og uppalinn í Bisk- upstungum, Eyvind Erlendsson, og er því fólkinu og aðsiæðum öllum betur kunnugur en ella væri. Eyvindur er aðeins rúmlega tvítugur að aldri en hefir þó starf að allmikið að leikstjórn víða um land svo sem í Vestmannaeyjum, Keflavík og víðar. Hann lék fyrst með Leikfélagi Selfoss, en fór síðan í leikskóla Þjóðleikshúss- ins og iauk þaðan prófi. Engum getur blandast hugur um sem sér sýningu u.mf. Biskupstungna á Lénharði fógeta að með upp- setningu hans og flutningi hefir leikstjórinn skilað hlutverki sínu afbragðsvel af hendi. Ekki er ein asta að hraði leiksins og heildar- svipur sé ágætur, heldur er og ekki síður eftirtektarvert hversu leiktjöld og búningar eru vel gjörð, en þetta hvorutveggja hef ir leikstjórinn séð um og málað lei'ktjöldin sjálfur. Þarf ekki að eyða orðum að þvi hversu mikið verk þetta er jafn- framt því að vera svo með vökul augu og athygli leikstjórans á hverri hreyfingu og orði leikend- anna. Verður eigi annað sagt en leikendur allir skili hlutverkum sínum mjög sómasimlega af hendi þótt að sjálfsögðu megi þar eitthvað útá setja sem og ftili- komlega eðlilegt er þar sem uni er að ræða ósviðvant fól'k að mestu leyti. Sjálfan höfuðpaurinn, Lénharð fógeta, lék Sigurður Þorsteinsson af ágætum skilningi á framkomu þessa ribbalda og yfirgangs- manns. Eysteinn úr Mörk er leik inn af Sigurði Erlendssyni. Gjörði Sigurður hlutverki þessu mjög góð skil og er ekki að efa að þar er á ferð mjög efnilegur leikari, sem auðsjáanlega hefir vel kunn að að notfæra sér tilsögn leik- stjórans og haft góðan skilning á persónu Eysteins frá hötfundar ins hendi. Sérstaklega var at- hyglisvert samtal Eysteins og Guðnýjar á hlaðinu á Selfossi. Að tjaldabaki. Gunnar Hannesson, ljósameistari og Eiríkur Sælaad hvíslari. Ingólfur Bóndi á Selfossi (Jóhann Eyþórsson). Ingólfur bóndi á Seltfossi er leik inn af Jóhanni Eyþórssyni. Hefir Jóhann mjög myndugan málróm fyrir hlutverkið og hreyfingar allar og svipbrigði voru hinar beztu, ekki sízt er fyrsta þætti var lokið. Guðný, dóttir Ingólfs er leikin af Höllu Bjamadóttur. Fór hún afbragðsvel með hlut- verkig svo að ég fullyrði að aðrar stúlkur, sem leikið hafa þetta hlutverk og meiri æfingu hafa haft, hafa sízt gjört betur. Höfundur leiksins sýnir sannar lega enga sældartímia í lífi heima sætunnar á Seltfossi, enda fær hún við að glíma þau vandamál, sem hún sigrast því aðeins á að persónuleiki hennar sé mikill, og það hefir Höllu tekizt að skilja og túlka með ágætum. Torfi sýslu maður í Klofa, góðgjarnt ög ró- lynt yfirvald, er leikinn af Arn- óri Karlssyni. Enda þótt Arnór gjöri þessu hlutverki yfirleitt allgóð skil, findist mér hann mætti vera ögn ákveðnari á köfl um og handaburður hans varla í samræmi við hlutverkið. En ef ti'l vill má að einhverju leyti færa þetta á reikning leikstjór ans. Helga kona Torfa, er leiik- in af Kristrúnu Sæmundsdóttur af myndugleik og háttvísri fram komu svo virðúlegrar og góðrar Ingólfur bóndi og Guðný dóttir hans (Jóhann/ Eyþórsi og Halla Bjarnadóttir. ekki mikið efnl til leJkafrefea. í heild var sýningin vel af hendi leyst, hraði leiksins mjög eðlilegur, einkum þrír síðari þætt irnir. Fer ekki milli mála að leikstjórinn á sinn mikla þátt i að svo er, endá ber öll sýningm þess vott að hann hefir haft mjög gott vald á viðfangsefni ínu. Hann hefir og sjálfur eins og fyrr segir teiiknað búninga og málað leiktjöldin sem eru ágæt> lega gjörð. Ljósaútbúnað hefir Garðar Hannesson annast af smekkvísi og feunnáttu. Að endingu óska ég öllum þeirn,, er unnu og stóðu að upp færslu á þessu að mörgu leyti merkilega leikriti Einars H. Kvarans, í Aratungu, til ham. ingju, og sem ég í mínum huga vil kalla menningar viðburð hér austan Fjalls. Atfrek Biskupsi tungnamanna á þessu sviði er eins og ljós í því skammdegi er fólksfæð sveitanna hefir orsak- að víða og dregið meir en flest annað kjark úr þeim áhugasöun-- ustu á sviði leiklistar í dreif- býlinu. Megi þeir og vaxa af við fangsefninu. Gunnar Sigurðsson. Kcnuarar hljóta Fulbright-styrk MENNTASTOFNUN Banda- ríkjanna á íslandi (Fulbright stofnunin) auglýsir hér með eftir umsóknum frá kennurum til sex mánaða náms í Bandaríkjunum á námsárinu 1962—63. Styrkir þessir munu nægja fyrir ferðabostnaði til Washing- ton og heim aftur, nauðsynlegum ferðakostnaði innan Bandarikj- anna, kennslugjöldum, bóka- gjöldum og nokkrum dagpening- um. Styrkirnir verða veittir kenn- urum til náims í eftirtöldum greinum,: barnakennslu, kennslu í framhaldsskólum, verklegri kennslu (iðnfræðslu); kennslu i stærðfræði, náttúrufræði, eðlis- fræði og skyldum greinum; ensku, skólaumsjón og skóla- stjórn, bandarískum þjóðfélags- fræðum og öðrum sérgreinum. Umsækjendur verða að vera íslenzkir ríkisborgar, skólakenn- arar með að minnsta kosti þriggja ára reynslu, skólastjórar, starfs- menn Menntamálaráðuneytisina eða fastir startfsmenn mennta- stofnanna eða annarra stofnanna, sem fara með fræðslumál. Um- sækjendur þurfa að geta talað, lesið, skrifað og skilið ensku. Umsóknir skulu senidast Menntastofnum Bandaríkjanna á íslandi, Laugavegi 13, eigi siðar en 22. janúar, 1962. konu sem Helga er látin vera. Freysteinn bóndi á Kotströnd er leikinn af Sigurjóni Kristinssyni. Frá höfundarins hendi er hlut- verk Freysteins eitt allra kyndug asta atriði leiksins og því ekki áð neita að mörgum leikara hefir tekizt að sýna vel hinar skringi legu hliðar þess án þess þó að ýkja það úr hófi. Svo var einnig að verulegu leyti í með ferð Sigurjóns, og ef nokkuð væri, fannst mér Freysteinn vera á köflum óþarflega mannborleg ur því af öllum tilsvörum má ráða að hann er huglaus með af- brigðúm. Hólm, þá einikennilegú persónu, lék Skarphéðinn Njáls- son mjög eðlilega, Snjólaug á Galtalæk er leikin af Málfríði Jónsdóttur. Gjörði hún hlutverki þessarar herskáu konu mjög góð skil, var í senn ákveðin og sönn í áliti sínu á hinum miklu vanda málum. Magnús Ólafsson er leifc inn af Braga Þorsteinssyni mjög eðlilega og í samræmi við mann gerð hlutverksins. Eriendur Gísla son, Gústaf Jónasson, Magnús Sveinsson, Ólöf Fríða Gísladótt ir, Björn Sigurðsson, Egill Egils son, Jóhannes Jónsson og Sveinn Skúlason fara öll með smáhlut verk í leiknum en gjörðu þeim ágæt skil enda þótt í þeim væri

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.