Morgunblaðið - 06.01.1962, Page 20

Morgunblaðið - 06.01.1962, Page 20
20 MORGUNBLAÐ1Ð Laugardagur 6. Jan. 1962 Afmælismót í 16 greinum og hdf á 50 ára afmæli ÍSÍ Danlr burstuðu Svía Hálfrar aldar afmæli skipulagurar ijprótfastarfsemi minnst HINN 28. þ. m. eru 50 ár liðin frá stofnun fþróttasambands ís- lands. Verður efnt til margvís- legra hátíðahalda í tilefni þeirra tímamóta. — Á afmælisdaginn sjálfan verður hátíðasýning í Þjóðleikhúsinu, þar sem á nýst- áirlegan hátt verður rakin þró- unarsaga íþrótta á fslandi, en þær hafa verið iðkaðar óslitið /í'rá landnámstíð. Sýningin verð- iir tvískipt. Fyrri hlutinn er helgaður söguöld, hinn síðari sýnir nýja tímann og hver menningarþáttur íþróttir eru í þjóðlífinu í dag. Eftir sjálft af- mælið hefjast afmælismót og verða haldin í öllum greinum íþrótta á íslandi og verða sum að bíða fram á sumarið. ic Tvískipt hátíðahöld Afmælisnefnd sér um há- tíðahöldin og ræddi hún ásamt forseta ÍSÍ við blaðamenn í gær. 1 nefndinni eiga sæti Gísli Hall- dórsson arkitekt, formaður, Þor steinn Einarsson, Axel Jónsson, Jón Magnússon og Sigurgeir Guðmannsson. Hermann Guð- mundsson er framkvæmdastjóri nefndarinnar og vinnur með henni. Gísli Halldórsson hafði orð fyrir nefndinni og sagði að há- tíðahöldin yrðu tvíþætt. 27. og 28. janúar yrði hin eiginlega af- mælishátíð. En hinn þátturinn væri afmælismót í öllum grein- um. — 27. janúar tekur framkvæmda- stjóri ÍSÍ á móti gestum í Sjálf- stæðishúsinu. Þar verða kveðj- ur fluttar, ávörp og gjafir færð- ar. — Áhorfendum fækkar oð enskri knatt- spyrnu f DAG koma forráðamenr brezkrar knattspyrnu samar til funda í Lundúnum og ræð: um viðkvænrt vandamál — fækkun áhorfenda á leikjum ensku deildakeppninini. Haf: margar-tillögur komið fram oj verða ræddar. Má nefna eftir farandi tillögur: 1. Komið verði á 4 deildurr hverri með 20 liðum og aí fleiri lið færist upp og niðu milli deilda en nú er, sv< spenningur verði meiri í leik unum. 2. Úrslit bikarkeppninnai verði í júná í stað fyrst í maí Þetta lengir deildakeppnis tímabilið um mánuð. 3. Leiknir verði fleiri deildakappleikir í miðri viku 1. Teknir verði upp leikii á sunnudögum — en slíkt hef ur aldrei verið leyft í Eng landi. 28. janúar er aðalhátíðin. Kl. 2 þann dag verður hátíðasýn- ingin í Þjóðleikhúsinu. Þar flyt- ur menntamálaráðherra, Gylfi Þ. Gíslason, ávarp og Ben. G. Waage, forseti ÍSÍ, flytur ræðu, en síðan hefst sýningin. — Frá henni er skýrt á öðrum stað hér á síðunni. Kl. 7 síðdegis þann dag verð- ur kvöldfagnaður að Hótel Borg. Forseti Islands, Ásgeir Ás- geirsson, verndari ÍSÍ, flytur ávarp, svo og borgarstjórinn í Reykjavík og fulltrúar ýmissa félagasamtaka. á- Afmælismótin Vikan þar á eftir er helguð afmælismótum ÍSÍ. 3.—4. febrú- ar verður hraðkeppni í hand- knattleik í meistaraflokkum karla og kvenna. 6. febr. fer fram hraðkeppni í körfuknattleik karla og kvenna. 7. febr. verður hraðkeppni í knattspyrnu innanhúss og 10. febr. verður innanhússmót í frálsum íþróttum, m.a. atrennu- lausum stökkum. Öll þessi mót fara fram að Hálogalandi. 11. febr. verður afmælismót í badminton og keppa bæði kon- ur og karlar. Sú keppni verður í KR-húsinu. 13. febr. verður sundmót í Sundhöllinni og 17.—18. febr. skíðamót. í upphafi allra þessara móta munu fulltrúar sérsambanda í hverri grein minnast afmælis ÍSÍ og íþrótta á íslandi. í sumar verður efnt til knatt- spymukappleika, frjálsíþrótta- móts og sundmóta, þar sem Reykvíkingar munu keppa við íþróttamenn annarra landshluta. Öll þessi mót eru liður í af- mælishátíðinni. Á íþróttaþingi í sumar komu fram raddir utanbæjarmanna um að stefna bæri að allsherj- armóti fyrir landið. Nefndin at- hugaði möguleika á því ræki- lega, en fékk daufar undirtektir svo ekki verður af þvL — En nefndin hefur og vill hvetja öll héraðasambönd til að minnast afmælis ÍSÍ með mótum eða á annan hátt. Er vitað um nokk- ur, sem það ætla að gera, t.d. munu Akureyringar hafa sér- stakan hug á að vanda til af- mælismóts. Afmælisrit Sérstakt afmælisrit ÍSÍ kemur út skömmu eftir afmælis daginn. Gils Guðmundsson hef- ur tekið saman sögu sambands- ins. Þar verður og þáttur úr sögu héraðssambandanna. ★ Afmælismerki ÍSÍ gefur út sérstakt af- mælismerki og selur á 25 kr. til að standa straum af kostn- aði við afmælishátíðina. Verður þetta merki til sölu um land allt. Einnig hefur nefndin látið gera sérstakan afmælisskjöld, sem veittur verður þeim sem sérstaklega hafa styrkt ÍSÍ. DANIR og Svíar háðu tvo lands- leiki í handknattleik 2. janúar. Mættust landsliðin í kvennaflokki og einnig unglingalandslið. Danir fóru með sigur í báðum leikunium og eru yfir sig glaðir af sigrin- um. Þeim þykár vænt um sigra yfir Svium. iþrótta- miðstöð f f ISI innan 2 ára GlSLI Halldórsson arkitek formaður afmælisnefndar ÍSI skýrði frá því í gær að tryggt væri að íþróttamiðstöð ÍSl myndi rísa í Laugardalnum á næstu tveim árum. Miðstöð- inni er ætlaður staður við hlið ina á íþróttahúsinu nýja, sem verið er að reisn. Hefur af- mælisnefnd ÍSÍ lagt sérstakl verk í fjáröflun í þessu skyn: vegna afmælisins og er nú sýnt að húsið mun rísa fljótt, Gísli sagði að nefndin hefði leitað til tjölmargra aðilja og væri ánægjulegt að finna vel- vild allra í garð lSÍ og iþrótta Almenniingur og opinberir að- iljar hafa sýnt málinu mikinn skilning. Brókartök, hnngdans, þjóðsagna og nútímaíþróttir á sýningu Fjölþætt hátíðasýning iþrótta i til- efni 50 ára afmælis ÍSÍ NÝSTÁRLEG íþóttasýning verð- ur aðalliður afmælishátíðar ÍSÍ eins og sagt er frá annars staðar á síðunni. Verður þessi sýning í Þjóðleikhúsinu 28. jan. kl. 2. Þorsteinn Emarsson íþróttafull- trúi hefur haft á hendi aðalum- sjón með uppsetningu sýningar- innar og sk/yrði hann blaðamönn- um frá henná í gær. Sagði Þor- steinn aC megintilgangur sýning- arinnar væri að sýna þróun íþrótta frá landsnámsöld. Það væri þráður sem aldrei hefði slitn að, þrátt fyrir kúgun og örbirgð er þjóðin bjó við á ýmsum tím- um. íþróttir væri menningararfur og sýningin ætti að sýna þetta tvennt — hinn forna tíma og þann menningarþátt sem íþróttir væru nú í lífi þjóðarinnar. Sýn- ingin væri verkefni íþróttafólks- ins og íþróttakennaranna í af- mælishátíðahöldum ÍSÍ. • fþróttir til forna Sýningin verður með heildar- þræði og verða skýringar fluttar með. Loftur Guðmundsson íþrótta kennari og rithöfundur hefur sam ið þser skýringar, en þulur flytur. Allar þær 16 íþróttagreinar sem nú eru iðkaðar á landinu koma fram svo og ágrip af þeim grein- um til forna. sem vitað var að iðkaðar voru. Sýningin er tvíþætt. Fyrir hlé er sýning frá fyrri öldum en eft- ir hlé er þáttur miðalda og nýja tímans. I upphafi sýningar er sviðið þingstaður. Ungt fólk er að leik meðan þinghald fer fram. Sagna- þulur segir frá og leiknar eru íþróttir sögualdar á sviðinu jafn- framt. Þar verða sýnd brókar- tök, undanfari glímunnar ís- lenzku, lausatök, hráskinnatök, sem eru fornnorræn íþrótt og hringdans, sem vitað var að iðk- aður var hér unz biskup bannaði hann 1118. Danssýninguna ann- ast Sigríður Valgeirsdóttir en Þor kell Sigurbjörnsson hefur tón- liStarstjórn á hendi. • Nýi tíminn Eftir hlé er þáttur frá miðöld- um og þráðurinn rekinn áfram. Raktir eru kaflar þjóðsagna og álfa sem segja íþróttaafrek. Þetta pr svnt np skvrt um leið. Til- gangurinn er að sýna að þráður iþrótta slitnar aldrei hér á landi og íþróttir nútímans Og ÍSÍ er byggt á gömlum menningararfi, sem ÍSÍ hefur gert sitt til að lífga við og gert neista að báli. Svipmyndum er brugðið upp af íþróttum nútímans. Knatt- spyrnumenn sýna þrautir sínar, handknattleiksstúlkur og piltar sýna sína íþrótt og hver íþróttin rekur aðra, körfuknattleikur, badminton, frjálsar íþróttir, glíma, judu o. fl. Fulltrúar ann- arra greina sem ekki geta sýnt íþróttir sínar, svo sem sundfólk, skíðafólk o. fl. koma og fram. • Lokaatriði I lokin eru allir á sviðinu, fána beri kemur mn og heilsar með fánanum, þjóðsöngurinn er loka- atriðið. Xnn í alla sýninguna fléttast sérstök músik. Karl Ó. Runólfs- son hefur m. a. gert sérstakt göngulag sem tileinkað er ÍSÍ og afmælinu. Þetta er sýning framþróunar íþrótta. Fjöldi ungs fólks kemur fram ög sagði Þorsteinn að sér- staklega ánægjulegt hefði verið að vinna að undirbúningi sýning- arinnar vegna áhuga unga fólks- ins. I jólafríi skólanna voru all- ir á æfingum. I kvennaleiknum hafði lands- líð Dana álgera yfirburði, skoraði 20 mörk gegn 4. I hálfleik stóð 8—2. Þrátt fyrir þessa algeru yfirburði voru Danir án sinna tveggja beztu leikkvenna að þeirra sögn. Og þeir segja að leik ur liðsins hsfi ekki verið neitt sérstakur — iið þeirra geti miklu betur. Danska kvennaliðið hefur æft mjög vel og hefur sett sér það takmark að vinna Evrópu- meistaramót í sumar. I unglingalandsleiknum var keppnin harðari og jafnari en Danir unnu með betri leik undir lokin með 26—22. Svíar höfðu förystu í hálfleik 14—12 en vara- markvörður Dana sem kom í markið bjargaði leiknum og átti mestan þátt í sigrinum segja blöð- in. Markvörður þessi var Fiig frá Viby. Með komu hans í liðið hresstist allt Jiðið og breytti markatölunni sér í vil og vann síðan örugglega. Erlendir fulltrúar koma til ÍSÍ BENEDIKT G. Waage forseti ÍSÍ skýrði frá því í gær að ÍSÍ hefði boðið fulltrúum allra norrænu íþróttasambandanna að vera hér á afmælishátíð ÍSÍ. Er talið víst að fulltrúar frá Danmörku, Nor- egi, Svíþjóð og Finnlandi sæki hátíðahöldin, en fulltrúi færeyska sambandsins hefur sagt það væri nær útilokað að hann kæmi til íslands, þó fullur vilji væri til þess, og fylgdu þakkir Færey- inga fyrir hið góða boð til þeirra. Benedikt sagði að ástæðan til neitunar Færeyinga væri sú að samgöngur væru lélegar milli þessara nágrannalanda í Atlants- hafi. Færeyski fulltrúinn verður að sigla til Hafnar, taka flug- vél til íslands, fljúga til Hafnar og bíða skipsferðar til Færeyja. Hann yrði að leggja af stað 17. janúar og kæmi heim aftur 12. febrúar ef hann ætti að geta dval ið hér 27. og 28. janúar. Benedikt lét í ljós sérstaka ánægju yfir því að nú myndi rætast gamall draumur um íþróttamiðstöð ÍSÍ. Fyrir því máli hefur Benedikt barizt ötullega um árabil og séð vísi að slíkri stöð verða til En nú rætist draum urinn að fullu. „íþróttamaður ársins64 í Noregi NORSKIR íþróttafréttamenn hafa valið „10 beztu“ íþrótta- menn í Noregi. Tóku íþrótta- fréttamenn um gervalt landið þátt í kosningunni og alls fengu 37 íþróttamenn og konur atkvæði. Úrslitin um „10 beztu“ urðu þessL íþróttamaður ársins var kjör- inn: 1. Harald Grönningen 434 stig. (V?r stighæstur á 38 seðlum af 44). 2. Age StOrhaug 391 stig 3. Sverre Stensheim 261 stig. 4. W. Rassussen 249 stig 5. Torald Engan 202 stig < 6. Magnar Lundemo 127 stig 7. Carl Fr. Bunæs 127 stig 8. Stein Haugen 120 stig 9. Magne Lysted 97 stig 10. Thorbjörn Svenssen 58 st I næstu sætum urðu Knut Jo- hannessen og Kjell Hövik sem setti norskt met í stangarstökki hlutu 57 stig og 50 stig.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.