Heimilisblaðið - 15.02.1894, Síða 11

Heimilisblaðið - 15.02.1894, Síða 11
fiEIMILISBLAÐIÐ. 1 Einn mikið merkur danskur rithöfundur um þetta efni, H. Trier, segir enn fremur. »Margur ætlar, að ölvanin sjálf sje hin helzta og veruleg- asta verkun áfengisins, af því að mest ber á henni, — ölvanin með öllu hennar breytilega og öviðráðanlega ásigkomulagi, allt frá sætgleði til mein-illsku og speilgirni, alit frá óstjórn- legri kátínu til deyfðar, máttleysis og svefndoða. Þeir ímynda sjer, að þegar þeir sjeu búnir að sofa úr sjer og.búnir að jafna sig eptir »timburmennina<í, þá sjeu þeir jafngóðir. En svo er eigi. Á þeim, sem drekkur að staðaldri, vinnur áfengið þar að auki í kyrrþey, svo að hann verður þess eigi var fyr en urn seinan, og það miklu freklegar, með því það leggst á einstök líffæri líkamans, er likarainn á fjör sitt og þrótt að þakka, og sviptir þau (iíffærin) smámsaman vinnuþrótt, svo að likaminn hrörnar allur og hnígur loks fyrir örlitlum vindblæ. — Meðal annars gerir áfengið hjartað kalkað og stökkt, en fyrir það verður aptur blóðrásin aflminni og efna- breytingin i likamanum miklu daufari, en svo á sig komið verður hjartað annars ekki fyr en ellin færist yfir og Jíkam- inn er orðinn fullslitinn eða er kominn á grafarbarminn. A- fengið bakar með 'öðrum orðum jafnvel ungum mönnum elli- hrörnun«. ■------ÍHSIÝGSÍ-----' Nýttbindindisfjelag var Btofnað 19. nóv. 18931 Möðruvallaskól- anum, af nokkrum námsmönnum þar. Fjelagsmenn urðu ‘22af(37). Fjelagið heitir Bindindisfjelag Möðruvellinga. Tilgangur þess er sá, að koma í veg fyrir vínnautn meðal námssveina í skólanum, og að vekja áhuga þeirra á bindindismálinu, ef vera mætti, að þeir yrði því hlynntari siðar. Þeir, sem í fjelagið ganga, verða að vera í þvi frá þeim tíma, er þeir ganga í það, og til þess, er námi þeirra er lokið við skólann. Meðlimum fjelagsins í 1. bekk er gjört að skyldu, að halda fje- laginu fram næsta vetur, er þeir verða i 2. bekk, og er svo til ætl- azt, að ijelagið lialdist þannig við í skólanum ár frá ári eptirleiðis. Stofnendur fjelagsins vonast eptir góðum árangri, og að fjelag- inu verði langra og farsælla lífdaga auðið. tí. H. (l'orm. fjelagsins).

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/422

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.