Good-Templar - 01.03.1901, Side 1
OOÐ-TEM01
J u
BLAÐ STÓR-STÖKU ISLANDS
A.F
I. 0. G. T.
V. ÁHG.
REYKJAVÍK, MARZ 1901.
BLAÐ.
Bindindisfræðslan i skólunum,
i.
Áfengisnautnin er, eins og menn vita, alt að því jafn-
gömul nmnnkyninu. Frá fornöldinni eru til margar frásagnir
um það, að menn neyttu víns og urðu ölvaðir. í biblíunni er
þannig talað um víndrykkju Nóa og síðar, í sögu Gyðingaþjóð-
arinnar, eru ýmsir meiri háttar menn þjóðarinnar skýrt og
skorinort ávitaðir fyrir þennan iöst. Um ýmsa þjóðhöfðingja
fornaldarinnar er þess getið, að þeir voru meira eða minna
hneigðir til drykkjuskapar, t. d. Kambyses og Alexander
mikli.
En sé það víst, að áfengisnautnin sé gömul, þá er hitt
eins víst, að bindindishugmyndin er henni jafngömul eða því
sem næst. Skaðsemdaráhrif óhóflegrar vínnautnar liggja svo
í augum uppi, að þeir hlutu þegar að verða margir, sem álitu
víndrykkjuna, að minsta kosti ofdrykkjuna, bæði svívirðilega
og skaðlega. Lessi skoðun var þegar í fornöld svo víðtæk og
eindregin, að víðsvegar í heiminum voru heilar þjóðir, sem al-
gerlega afneituðu állri áfengisnautn, en sumstaðar voru það
sérstakar stóttir rnanna, og aistaðar þar sem vínnautn var
eigi bönnuð, er óhætt að fullyrða að einstakir menn hafa risið
öndverðir gegn henni. Og hvervetna þar sem bindindishug-
myndin hefir rutt sér meira eða minna til rúms, þar hafa
menn að sjálfsögðu talið það hvað mest áríðandi að innræta
æskulýðmun, hinni uppvaxandi kynsióð, bindindissemi og við-
bjóð við drykkjuskap.
íbúar borgarinnar Spör.tu á Grikklandi gátu sér ódauðleg-
an orðstír fyrir hreysti sína og harðfengi, og má þetta víst að