Good-Templar - 01.03.1901, Blaðsíða 6
34
Sóra Hjörleifur Einarsgon skrifar mér yngri í anda en
nokkru sinni fyr. Prófastinum sárnar að ekki hefir hepnast
að koma upp nýrri stúku í Húnavatnssýslu, sem. við höfðum
gert okkur vonir um. Það mun vera einasti ósigurinn, sem
Reglan hefir beðið á vetrinum. Næstum allir óska eftir ýms-
um atburðum, og það hefir verið reynsia mín að minsta kosti,
að menn bíða þeirra þess óþolinmóðari sem þeir verða eldri.
Ástæðan mun vera sú, að þess fleiri sem árin vei'ða, þess
minui verða líkumar til þess að lifa það a,ð óskirnar uppfyllist.
— Prófasturinn lætur vei af Úndínu nr. 46, enda mun það
mega, og getur þess, að bæði bindindismenn og þeir sem
drekka of mikið vilji nú helzt aðflutningsbann. Hann endar
bréfið með þessum orðum: „Alt verður að gera — einskis
má láta ófreistað til þess að það (aðflutningsbannið) komist á
innan mjög,fárra ára. Ef allir Good-Templarar strengja
þess heit., eins og aðrir Jómsvíkingar, þá mundi það duga.“
Séra Hjörleifur Einarsson hefir rótt fyrir sór. Ef allir
G.-T. gerðu þessa heitstrenging, þá hættum við aö tjalda búðir
á kjörþingum með þeim sem standa móti okkur að málum.
Minna lið en okkar hefir oft unnið jafnmikinn sigur. Regian
og bindindismálið hefii' marga af áhrifamestu mönnunum á
iandinu með sér, og innan sinna vebanda. Ef samskonar
heitstrenging, sem Jómsvíkinga héidi okkur saman, þá hefðum
við engan Hjörungavog fyrir framan okkur, (og liöfum liann
heldur ekki nú framundan okkur), því brennivínið er ekki lier-
foringi sem jafnast við Ilákon jarl.
Maður sem allir þekkja.
Hann er réttur og sléttur verkmaður, fátækiega, en þó
þokkalega búinn og gengur að vinnu sinni á hverjum morgni.
Þegar dagsverkinu er lokið, kemur hann heim, snæðir kvöld-
verð, og hvað svo? Hann hefir starfað í verksmiðjunni eða
búðinni allan iiðlangan daginn, oftast nær steinþegjandi, og nú
þarf hann að iótta sér upp og tala við menn; en h.vertáhann
að fara og hver vill tala við hann?
Sumir af lesendum vorum hafa séð mann þennan; aðrir
liafa séð félaga iians, sem véi' viljum nefna Eirík, enda þótt