Muninn - 01.02.1946, Síða 5
MUNINN
5
eða ávísun — á herbergi sitt, senr ég
skyldi framvísa, er þangað kæmi. IJeg-
ar við Aðalsteinn höfðum fullvissað
okkur um, að við værum staddir hjá
húsinu númer 20 við Gránugötu,
kvadd’ ég hann og barði að dyrum.
Kom þá ii jótlega í ljós lítil telpa, sem
mun vera 5 ára að aldri. Ég spurði
hana eftir Sigríði Guðmundsdóttur,
en svo heitir móðir Ebergs. Kom hún
brátt fram, og ég fékk henni bréf
Ebergs. I,as hún það yfir, og er hún
hafði svo gert, báuð hún mér til stofu
og bar mér heitt kaffi og kökur. Er
þar skemmst frá að segja, að ég dvaldi
sfðan á heimili þeirra hjóna Óskars
Elefsens og Sigríðar Guðmundsdótt-
ur, meðan ég liélt kyrru fyrir á Siglu-
firði, og \ oru móttökur allar og viður-
gerningur líkast því sem þar hefði
ganilan kunningja borið að garði,
enda var dvölin þar hin ákjósanleg-
;ist».
Er ég hafði drukkið kaffið hjá Irú
Sigríði, fór ég út að skoða bæinn. A
þeirri göngu liitti ég Aðalstein kenn-
ara aftur ásamt kollega hans, Ciuð-
mundi Benediktssyni. Spjallaði ég
lengi við þá um ýmsa hluti og atburði
nær og fjær í tíma og rúmi. Létu þeir
allvel yfir lífinu sem kennarar, enda
þótt þeir hefðu miklar áhyggjur af
einstökum bekkjum og nemendum,
þai sem Jieir töldu sig bera ábyrgð á
andlegri og jafnvel líkamlegri \elferð
þeirra, eins og góðum kennurum sæm-
ir. Einnig þurftu þeir margs að spyrja
af fornum stöðvum,jrarsem Jjeirhöfðu
lifað rnarga glaða stund og numið hin
ólíkustu fræði á undanförnum vetr-
um. Ég veitti þeim allar þær upplýs-
ingar, sem ég gat í té látið, og sagði
þeim nýjustu „brandara" úr skólalíf-
inu. Einnig hitti ég Jtar Alfreð Einars-
son, stúdent. En þar sent tal okkar
snerist einkum um pólitík, mun ekki
rétt að skýra nánar frá því hér.
Um kvöldið fór ég á leiksýningu í
Sjómannaheimilinu. Höfðu nemend-
ur Gagnfræðaskólans þar sýningu á
„Ráðskonu Bakkabræðra", og fórst
þeint })að hið bezta úr hendi. Einkum
dáðist ég að leik ráðskonunnar, eða
öllu heldur stúlku þeirrar, sem lék
ráðskonuna. Þætti mér trúlegt, að hún
væri efni í snjallan leikara. Einnig
voru leiktjöld liin prýðilegustu og
betri en maður á oft að venjast hér.
Morguninn eftir reis ég árla úr
rekkju og gáði til veðurs, J)\ í að hug-
myndin var að fara yfir Siglufjarðar-
skarð og niður í Fljót Jrennan dag. En
úti fyrir var stormur og regn, svo að
ég lagðist fyrir aftur og ákvað að halda
kyrru fyrir um daginn, enda hafði ég
mjög verið hvattur til J)ess af þeim
hjónum, Óskari og Sigríði, og Óskar
tók jalnvel svo djúpt í árinni, að hann
lagði fast að mér að dvelja J)ar í viku
tíma, fara síðan aftur til Akureyrar og
segja skólameistara, að ég hefði verið
veðurfastur allan tímann. Og ef ég
vildi endilega verða lúinn, kvað hann
mig geta þreytt mig á því að ganga á
fjöllin í kring. Eg myndi víst áreiðan-
lega geta pínt mig nóg með Jtví, ef Jrað
væri helzta markmið mitt með ferð-
inni. Eg var nii sarnt ekki sammála
honum í þessu efni, en hins \ egar
hafði ég ekkert á móti Jjví að dvelja
þar einn dag til að geta virt bæinn og
bæjarbúa betttr fyrir mér. Um k\öld-
ið sat ég fund, sem Sósíalistafélagið á
staðnum boðaði til undirbúnings
kosninganna. Þar talaði Aki Jakobs-
son. atvinnumálaráðherra, ttm horf-
urnar í atvinnumálum landsmanna
yfirleitt og þá einkum með tilliti til
Sigluljarðar. Er ]>að einhver fróðleg-
asta og gagnmerkasta ræða, sem ég hef
heyrt íslenzkan stjórnmálámann flytja,
og hefði mér verið kært, að iill skóla-
systkini mín í M. A. hefðu átt Jæss
kost að heyra hana. En Siglfirðingar
mega vera hreyknir af því að eiga Aka
Jakobsson fyrir Jringmann.
A fimmtudagsmorgun var ég vakinn
klukkan níu, og klæddi ég mig í
skyndi. Veðurhorfur voru nokkru
betri en daginn áður. Þó var nokkur
sunnan stormur, en sá var munurinn,
að nú var úrkomulaust. Ég ákvað því
að leggja á „Skarðið" upp á von og
(ivon, því að hugsazt gat, að svo hvasst
væri uppi í „Skarðinu", að ég neyddist
til að snúa aftur. En mér Jíótti sjálf-
sagt að gera heiðarlega tilraun til að
halda áfrant ferðinni heldur en verða
ef til vill innlvksa á Siglufirði í lengri
tíma.
Klukkan rúmlega tíu setti ég J>ví
pokann á bakið og skíðin á öxlina og
þrammaði af stað frá Sigló. En áður
en ég held lengra, vil ég aðeins geta
Jress, að ég varð síður en svo fyrir von-
brigðum með Jrau litlu kynni, sem ég
hafði haft af þeirn stað. Reyndar má
ef til vill segja, að byggingum, skipu-
lagi og útliti bæjarins yfirleitt sé ekki
hælandi, en fólkið er viðfelldið og, að
því er mér virtist, ákveðnara og mót-
aðra en víðast gerist.
£g fer nú fljótt yfir sögu, Jxar til
komið er upp í sjálft Siglufjarðar-
skarð, veðravítið, sem allir llöfðu
keppzt um að gera mig sem hræddást-
an við. En nú var logn og blíðviðri og
ekkert hræðilegt að sjá. Eg lagði skíð-
in og bakpokann frá mér við gamlan
vegamannaskúr. sem stendur þar, eða
liggur öllu heldur, Jjví að hann hefur
orðið að láta undan hamförum veðr-
anna og oltið á hliðina einhvern tínta
í vetur, Jregar fastast hefur blásið. Er
ég hafði losað mig við draslið Jrarna,
gekk ég snöggvast í gegnum skarðið,
sem sprengt hefur verið i gegnum
„Skarðið", svo að ha’gt væri að leggja
veg ýfir. Eg klilraði síðan upp að ein-
um turninum, sem hefur verið reistur
þar til að bera uppi háspennulínuna
frá Skeiðsfossi til Siglufjarðar. Þessir
turnar eru Jjrír, einn fyrir hverja
línu og allsterklegir að sjá, enda er
langt haf yfir til næstu turna beggja
megin ,,Skarðsins“ og gildir strengir,
svo að mikill þungi hlýtur að hvíla á
Jíeim og snörp átök, J)cgar stormurinn
æðir á fjallabrúnum. Þarna stóð ég
nokkra stund með annan fótinn í
Siglufirði, en hinn í Skagafirði, ef svo
mætti segja. Þegar ég hafði virt fyrir
mér útsýnið um hríð, sneri ég aftur
niður að kofanum, settist |>ar og tók
upp nesti mitt. Byrjaði ég á að borða
J)rjú egg, sem mér höfðu áskotnazt á
Siglufirði, og síðan smjörkökur og
fleira góðgæti ,eins og ég gat í mig
komið, að ógleymdri einni flösku af
Egils-bjór. Þegar ég gat ekki lengur
komið meiri mat í mig, setti ég J)að,
sem eftir var, niður aftur og tók að
lagfæra bindingana á skíðunum, svo
að ég gæti farið á þeim niður úr
„Skarðinu" að vestan. En })á bárust
skyndilega háværar raddir að eyrum
mínum, síðan söngur og alls konar
kynlegar upplirópanir. Þóttist ég
kenna, að hér væru menn á ferð og
það einkar glaðlyndir náungar. Ég
tók því J)að ráð að kalla á móti, en })á
brá svo einkennilega við, að raddirnar
hljóðnuðu þegar í stað. Gárungar
Jressir höfðu sjáanlega ekki átt
manna von hér. En brátt komu Jteir
fram úr skarðinu, tveir ungir strákar
með poka á baki og staf í hönd. Skipt-