Muninn - 01.02.1946, Qupperneq 8
8
MUNINN
Fréttapistlar
Hinn 7. febr. síðastliðinn heiðraði
Menntaskólinn á Akureyri Steingrím
Jónsson, fyrrv. bæjarfógeta, með því
að hengja upp mynd af honum í há-
tíðasal skólans. Fór sii athöfn virðu-
lega fram, og var Steingrímur sjálfur
viðstaddur auk skólameistara, kenn-
ara og nemenda. Tók skólameistari
fyrst til máls og þakkaði Steingrími
langtogvel unnið prófdómarastarf hér
við skólann. Auk þess þakkaði hann
hlýhug þann og velvild, er Steingrím-
ur hefði ávallt sýnt skólanum, og þann
stuðning, sem hann hefði veitt í bar-
áttnnni fyrir viðgangi skólans. Því
næst tók Steingrímur sjálfur til máls
og þákkaði þann heiður, er sér væri
sýndur. Nemendur hylltu hann með
húrrahrópi.
Það er óhætt að fullyrða, að Stein-
grímur Jónsson er vel að vegsemd
þessari kontinn á allan hátt. Fáir próf-
dómarar hafa unnið starf sitt með jafn-
mikilli alúð, trúmennsku og skiln-
ingi. Enda hefir liann ætíð verið mjög
ástsæll í starfi s-ínu. Nemendur fagna
því þess vegna, að starfi Steingríms
ann kvaddi Ingvi Ingvarsson, inspector
scholae; en skólameistara Fiosi Sigur-
björnsson. Auk þess voru allir kenn-
arar skólans kvaddir. Mæltu helztu
málagarpár dimittenda á erlendum
tungurn, allt frá latínu til Kaup-
mannahafnardönskú, og skildu fáir,
þeir er á hlýddu, en undruðust hin
furðulegu hljóð og margvíslegu kon-
struktionir. Að lokum flutti skóla-
meistari ræðu.
Auk þess, sem nú hefir verið upp
talið, hafa margir dansleikir verið
haldnir. Tókust þeir misjafnlega. Var
yfirleitt erfitt að útvega góða hljóð-
færaleikara til að leika fyrir dansin-
um, því að þeir eru mjög eftirsóttir í
bænum. Er mjög óhagkvæmt, að skól-
inn skuli ekki eiga sína eigin hljóm-
sveit. Rétt er að geta hér sérstaklega
ágæts skemmtikvölds, er í. M. A.
gekkst fyrir 1. febrúar. Flutti Her-
mann Stefánsson þar erindi frá
Olympíuleikunum, nokkrir piltar
sungu og Edvard Sigurgeirsson sýndf
kvikmyndir, en að lokum var dansað.
Var skemmtun þessi sérstæð og þægi-
]eg tilbreytni i skemmtanalífi skólans.
(Framhald).
hefir verið reistur varanlegur minnis-
varði í hjarta skédans. Og er þeir
heimsækja skólann síðar, mun þeim
verða Ijúft að sjá myndina af hvít-
hærða öldungnum, fallega, löngu eft-
ir að hann sjálfur er kominn undir
græna torfu.
Örlygur Sigurðsson, listmálari,
gerði myndina af miklum hagleik og
næmum skilningi.
Flinn 21. febr. var til moldar bor-
inn einn af dyggustu þjónum þessa
skóla, Árni Þorvaldsson, fyrrv. yfir-
kennari. Kvöddu nemendur þennan
mæta ntann á viðeigandi hátt og að
verðugu. Gengu þeir fylktu liði til
kirkju undir fána skólans, en í kirkju
stóðu nemendur heiðursvörð við kistu ’
hins látna. Var athöfnin öll mjög
virðuleg. Fyrir norðan Mennta.skól-
ann mynduðu svo nemendur klofna
heiðursfylkingu í kveðjuskyni, er lík
hans var tflutt hjá til hinztu hvíldar.
Árna Þorvaldssonar mun verða
minnzt betur á öðrum stað hér í blað-
inu. Kr. Rób.
Á skólaganginum
I'yrir skömmu sagði Þórarinn
Bjiirnsson Vl.-bekkingum M. útdrátt
úr sögu éinni eftir Maupassant. Fjall-
aði htiri um búkonu eina mikla, er
hagnýtti sér ylinn frá líkama bónda
síns, er fengið hafði slag og var lít.t
sjálfbfarga, til að unga út hænueggj-
um. Þessi saga fékk einum nentanda
þessa skóla, verðandi hagfræðingi,
mikilla heilabrota, og fékk ltann út
frá þeim afbnrðasnjalla hugmynd, er
hann útskýrði fyrir oss og bað oss að
koma á framfæri. Viljum vér hér nteð
verða við þeim óskurn.
Hugmynd hans er í stuttu máli sú,
að skólinn komi sér upp hænsnabúi.
Skal fá fiðurfénu húsnæði einhvers
staðar á miðhæð suðurvista, til þess að
gagg þess og gal yfirgnæfi fliss, píku-
skræki og önnur hlustskerandi hljóð,
er þaðan berast og mjög trufla svefn-
frið vistabúa jafnt um daga sem næt-
ur, en flestir munu fremur kjósa
garg liænsnanna. Á eggjunum skulu
þeir fæddir, er ekki dansa á skólaböll-
um, og skal þannig reynt að auka
þeim fjör. Gæti þá svo farið, að skóla-
böll tækju að bera sig fjárhagslega. Til
viðhalds stofninum skal ala upp
hundrað unga á ári hverju, og skulu
skrópistar skólans notaðir til að unga
út eggjunum. Mun það reynast lrin
hagkvæmasta aðferð, því að þannig
mun ógrynni „kaloría" koma að not-
um, sem annars fara til einskis. Væri
þá nauðsynlegt að lengja skróptímann
úr núverandi lágmarki, sem er tveir
dagar, upp í 21 dag, nerna hagkvæm-
ara þyki að flytja eggin frá einum
skrópistanum til annars.
Oss lízt þessi hugmynd frábærlega
merkileg og erum sérstaklega hrifnir
af áætluninni um útungunina,sem vér
teljum, að takast muni með ágætum,
bara ef skrópistarnir taka ekki upp á
því að éta undan sér, eins og hrafnar
i vorharðindum.
Fyrir nokkru síðan sat drengsnáði
nokkur fjögurra ára í náttúrufræði-
tíma hjá V. bekk S. Hlustaði hann
mjög spekingslegur á svip á mann
þann, er uppi var, en sá var fremur
létt lesinn. Er Steindór hafði yfirheyrt
hann, svo sem honum gott þótti, tek-
ur sá litli til orða og segir: „Nú vil ég
fá að stafa dál ítið."
Heyrzt hefir, að nokkrir Vl-bekk-
ingar hafi ráðizt í mikið fyrirtæki og
þarft og líklegt til að afla þjóðinni og
bókmenntum hennar mikils álits með-
al enskumælandi j)jóða. Þeir hafa sem
sé ráðizt í það stórvirki að þýða bók-
ina ALMENN STJÓRNMÁLA-
SAGA eftir Skúla Þórðarson á enska
tungu. Mikil hula hefir hvílt yfir Jrví,
hvaða útgáfufyrirtæki muni kaupa út-
gáfuréttinn að ritinu, en samkvæmt
síðustu fréttum mun Jrað annað hvort
verða Modern Library eða Grosset Sc
Dunlap. Þýðing verksins hefir að'
mestu farið fram á Hótel KEA og hef-
ir, samkvæmt síðustu fregnum, gengið
mjög að óskum.
Ó. H.
STÖKUR.
Þunglyndi.
Eg kveðja vildi kross og böl
og kaldar geðshræringar
og særðtir liggja á svartri fjöl
með svæfðar tilfinningar.
Sviknar vonir.
Særa vonir sviknar hér
sinni — fullt af trega.
Óðfluga sem elding fer
allt hið skemmtilega. Quintus.