Muninn - 01.01.1952, Síða 8
23
MUNINN"
Skemmtiför VI
(Framhald ai; 21. síðu.)
en þar var að sjá hið ægilegasta brim,
hvítfyssandi öldur og 1 jölda liskibáta
við festár. Attu rnenn erfitt með að
skilja, áð þarna væru ein helztu liafn-
arskilyrði fyrir hendi á hinni löngu,
óvogskormi strandlengju Suðurlands.
— Komið var í Selvog og að Stranda-
kirkju, farið fram hjá Herdísarvík, þar
sem skáldið Einar Benediktsson bjö
síðustu æviár síu. Staðnæmzt var við
jarðboranirnar í Krýsur ík og síðan
ekið til Keflavíkur. Þar rakst Stein-
dór á kunningja sinn, Eirík Brynjólfs-
son, prest að Utskálum, slóst hann með
í förina og tók nokkurn veginn við
leiðsögn, meðan ekið var um Nes-
ið, — Var þetta eldfjörugur karl, er
virtist ánægður nteð allt og alla, og
ágætasti ferðafélagi.
Var farið til Sandgerðis, en á leið-
inni þangað gerðust menn allsvangir.
Tók þá Sirrí ]óns upp úr skjóðu sinni
hangikjötslæri, mikið og feitt, og gaf
hverjum vænan munnbita. Hýrnaði
þá heldur yfir hópnum, og eitt tal-
andi skáldið fleygði fram þessari vísu
undir hinu góðkunna lagi „Við skál-
um“: Við etum — alveg eins og við
getum. — Við etum — þetta góða
hangiket, — sem Sirrí gaf! Mun það
vera eina vísan, sem kom fram á ferða-
laginu. — Prestur dreif síðan liópinn
heim að Utskálum. Er gengið var heim
túnið', spurði hann, hvort nokkur
hefði séð jafnfallegt prestssetur eða
jafnvel ræktaða og slétta jörð. Gæti
þá verið, að Hörður Þormar hefði
brosað í kampinn. Leiddi prestur
menn í kirkju, sem var hin fallegasta
og vel prýdd, settist við orgelið og hóf
leik og söng, en sjöttabekkingar tóku
undir. Ekki var um annað að ræða en
öðlingurinn, fyrst hann hafði verið
svona heppinn að rekast á þetta yndis-
lega fólk, — drifi allan liópinn inn í
íbúð sína, þar sem liann og maddama
Guðrún veittu mjólk og góðar kök-
ur af mestu rausn. Var það mjög vel
þegið-
Prestur sagði ekki þar méð skilið
við hópinn, heldur fór með honurn til
Keflavíkur aftur og á flugvallarhótelið
í Keflavík. Var það allt skoðað og þótti
fínt og anterikaniserað, eins og allt
. bekkjar 1951
umhverfið. Þarna var Daníel tekið
opnurn örmurn, og ílengdist hann þar
eitthvað, en stúlkurnar afbáru það, er
þær hugsuðu til þess, að skannnt var
nú að bíða kvöldsins í höfuðborginni.
Eiríkur kvaddi, og var nú ekið til
Reykjavíkur. Kitlandi fiðringur fór
um menn, en mörgunr var farið að
þykja nóg, hvað koman þangað dróst.
Er komið var að M. R., stóðu úti
fyrir skólanum rektor og hópur nem-
enda og fögnuðu kornu gestanna.
Hafði rektor verið búinn að hugsa
fyrir húsnæði fyrir allar stúlkurnar
hjá bekkjarsystrum þeirra í Reykja-
vík og gert ráð fyrir, að piltarnir svæfu
um nóttina í íþróttahúsi skólans, en
lítið af hinu góða boði var þegið, því
að allir áttu völ á liúsaskjóli, ýmist hjá
fjölskyldu sinni, vinum eða venzla-
fólki. — Fólkið dreifðist. í mörgu var
að snúast, og tími lítill til stefnu, áður
en dansinn hæfist í M. R., en flestir
hugðust skemmta sér þar um kvöldið,
um leið og þeir þægju hið ágæta boð
rektors og skólafélaganna, og stuðluðu
þar með að kynningu milli skólanna.
Stutt var dvölin í Reykjavík, því að
kl. 9 árdegis á þriðjudag átti að leggja
af stað heimleiðis. Dróst það raunar
töluvert, því að skilnaðurinn við hina
nýju félaga var erfiður, en áður en
rennt var frá M. R„ kváðu við húrra-
hróp, þar sem M. A. og M. R. voru
beðnir að lifa.
— Ekið var upp að Reykjalundi í
Mosfellssveit og allt þar skoðað sem
vendilegast. Rakti Oddur Ólafsson,
yfirlæknir þar, sögu og tilgang stofn-
unarinnar fyrir nemendum, en hún er
næsta einstök í sinni röð og íslending-
um mjög til sóma. Höfðu allir nijög
gott af að sjá þessa menningarstofnun.
Þegar ekið var fyrir Hvalfjörð,
minntust menn, að Anton Jóhanns-
son varð myndugur þennan dag, og
var hann óspart hylltur. Allar vildu
meyjarnar með Antoni vera, og er
honum fór að þykja nóg um, brást
hann í kontdíki.
Farið var að líða á daginn, þegar
kontið var að Hreðavatni og matazt. —
Fóru sögur af, að sumir hefðu tekið
allhraustlega til matar síns, eða þeir
góðu sjö herrar, sem borðuðu jafn-
r--------- ■ ■........?,
M U N I N N
Úlgejandi:
Málfundatélagið „Huginn".
Ritstjórn:
Gísli Jónsson,
Bakiur Ragnarsson,
Gunnar Baldvinsson.
Prentstjórn:
Ólafur Ásgeirsson,
Hreggviður Herraannsson,
Jón Hallsson.
Prentverk Odds Björnssonar h.f.
---J
mörg föt af steik og hinir 18, er voru
við sama borð.
Farið var úr bifreiðunum í Foma-
livammi. Þær Lilý og Hauður, er aldr-
ei höfðu almennilega látið sefjast af
rómantíkinni í þeirra bifreið, komu
nú í bifreið hinna raunsæju. Virtist
samt sem með komu þeirra þangað
yrðu línurnar ekki alveg eins hreinar
á milli bifreiðanna.
Ljóst var, að nokkrir piltanna gerð-
ust djarfari.
Skipzt var á um sæti, og meiri
kynning varð milli kynjanna, en
nú var líka tekið að dimma og fólk
farið að þreytast.
Hríð var á Holtavörðuheiði og
minnti menn á langan vetur í nánd.
En ánægja og gleði hélzt sem fyrr í
bifreiðinni. Kl. um 12 á miðnætti var
komið að Menntaskólanum á Akur-
eyri.
Nemendur þakka Steindóri Stein-
dórssyni fyrir góða leiðsögn og ánægju-
legan félagsskap, skólameistara fyrir
leyfi til ferðarinnar og ríkissjóði fyrir
fjárframlag sitt.
Rey k ingam en n heimavistanna
liafa beðið blaðið að flytja skóla-
meistara þakkir fyrir þá tillitssemi að
veita þeim húsaskjól til reykinga.
Leyndardómur sköpunarinnar er
svipaður dimmu næturinnar — hann
er stórfenglegur. Blekkingar þekking-
arinnar eru eins og morgunþoka.
Þeir varpa skugganum fram fyrir
sig, sem bera ljósker sín á bakinu.