Muninn - 01.12.1959, Side 6
ATHUGASEMD
í seinasta tölublaði af Munin, var grein
eftir Rögnvald Hannesson, sem fjallaði um
íþróttaskylduna og leikfimi hér í skólanum.
'Þessi grein var að mörgu leyti merkileg, en
þó einkum fyrir blint ofstæki og ljótan
munnsöfnuð höfundar. Ég varð satt að
segja forviða, er ég sá nafn Rögnvaldar
undir þessum pistli, ég bjóst ekki við svo
óþverralegum skrifum af hendi jafn skyn-
ugs unglings. Þó tel ég mér bæði ljúft og
skylt að afsaka þetta gönuhlaup drengsins
og mun aðeins reyna að leiða hann og aðra
af sama sauðahúsi í ljós skynsamlegra raka
og rólegrar íihugunar.
í grein sinni varpar Rögnvaldur fram
þessari spurningu: Hvaða réttlæti er í því
að skylda nemendur til að stunda leikfimi
(„Fáránlegt sprikl í daunillum leikfimi-
sal.“) og kóróna svo ósómann með því að
gefa þeim einkunn fyrir. Þessu er því til að
svara, að allir þeir læknar og vísindamenn,
sem leggja stund á heilsufræði, telja skóla-
nemendum og öðrum, er ekki stunda líkam-
lega vinnu, lífsnauðsyn að iðka einhvers
konar leikfimi. Skólanemendur eru hins
vegar þannig gerðir, að þeir þurfa aðhald í
flestu, sem þeim er ætlað að inna af hendi,
og ef leikfimieinkunn yrði lögð niður, þá
er það spakra manna mál, að rnargur mundi
skrópa sér til heilsutjóns. Hitt er að vísu
rétt, að leikfimi á lítið skylt við bóklega
mennt að öðru leyti en því, að líkamlegt
heilbrigði, sem leikfimi stuðlar óneitanlega
að, er nauðsynfegt til þess að menn geti
fyllilega notfært sér menntun sína (mens
sana in corpore sano). Þessi orð, sem Rögn-
valdur lætur falla um leikfimikennslu hér
í skólanum og leikfimihúsið sjálft, eru bæði
ósanngjörn og úr lausu lofti gripin. Ég hef
verið í skólum í Reykjavík, þar sem öll að-
búð í sambandi við leikfiminám hefur þótt
til fyrirmyndar, og ég leyfi mér að fullyrða,
að aðbúðin er ekki síðri í skólanum hér.
Rögnvaldur ber síðan saman líkamlegt
atgervi sitt og þeirra, sem leikfimi stunda.
Það þarf ekki fleiri vitna við. Það er
óhætt að slappa af. En guð hjálpi Rögn-
valdi þegar hann er búinn að slappa af í
ca. 20 ár.
Að lokum vil ég svo leyfa mér að benda
Rögnvaldi á að endurskoða rökfræðina
sína, ef vera kynni, að þar leyndist einhver
meinleg rökvilla.
Þorsteinn Geirsson.
LEIÐRÉTTINGAR.
í embættismannatalinu, sem birtist í síð-
asta blaði, urðu tvær meinlegar villur. — í
annan stað féll niður nafn Þrastar Ólafsson-
ar, en hann á sæti í stjórn Hugins. Hún er
því þannig skipuð:
Þórarinn Björnsson, skólam.,
Guðm. Sigurðsson, form.,
Þröstur Ólafsson,
Sigurður Hjartarson,
Rögnvaldur iHannesson.
Einnig féll niður nafn Iðunnar Steins-
dóttur, en hún á sæti í stjórn Leikfélagsins.
Loks gleymdist að geta um stjórn Skák-
félagsins, en hana skipa:
Hreiðar Steingrímsson,
Magnús Ingólfsson,
Páll Ingólfsson,
Ægir Sigurgeirsson.
Biðjum við þessa aðila margfaldrar vel-
virðingar.
30 M U N I N N