Muninn - 01.12.1959, Síða 11
fþróttamót.
Frjálsíþróttamót M. A. fór fram dagana
17., 18. og 24. okt. (sjá síðasta tbl. „Mun-
ins“).
Sundmót M. A. fór fram laugardaginn
31. október. Eitthvað mun hafa verið sett af
metum, svo sem venja er við slík tækifæri.
Töluvert mun nú vera af efnilegu sund-
fólki í skólanum. Mótið var fjölsótt og fór
vel fram.
Urslitaleikur knattspyrnumótsins var
háður 5. des. s.l. Stóð hann milli 3. bekkjar
og 5. bekkjar. Fimmti bekkur vann (5:2).
Blakmótið stendur enn yfir.
Gestir á Sal.
I vetur höfum við menntlingar aðeins
tvisvar verið kvaddir á Sal í tilefni af komu
vísra manna í skólann. Kristmann Guð-
mundsson kom og las upp kvæði (sjá nánar
síðasta tbl. Munins). í annað skipti komu
á Sal Davíð Stefánsson skáld, Baldvin Hall-
dórsson leikari, og Guðmundur Guðjóns-
son söngvari. Baldvin las upp ljóð eftir
skáldið, Guðmundur söng lög við ljóð þess,
og að lokum las Davíð upp tvö ljóð eftir
sig. Var dagskrá þessi öll hin skemmtileg-
asta.
Tónlistar- og bókmenntakynningar.
Þegar þessi annáll er ritaður, hefur engin
bókmenntakynning verið haldin og aðeins
ein tónlistarkynning. Kynnt var klassisk
tónlist. Leikin voru verk eftir Beethoven
og Schubert. Var kynningin sæmilega sótt.
Rökkurannáll.
Sunnudaginn hinn áttunda nóvember s. 1.
kom nokkuð fyrir, sem átti eftir að hafa
mikil áhrif á skólalífið næstu daga.
Þegar Menntlingar risu úr rekkju að
morgni þessa minnisstæða dags og stauluð-
ust út að glugga og drógu tjöldin til hliðar,
sáu þeir, að kominn var öskubylur. Senni-
lega hefur margur tautað ljótt í barm sér,
þegar liann sá veðrið á sjálfan hvíldardag-
inn. Bót var þó í máli að þurfa ekki í skól-
ann.
Veðrið versnaði þegar á daginn leið. Kl.
tæplega átta var rafmagnið tekið af skólan-
um og heimvistinni. Skólameistari leyfði
heimavistarball á Sal, og flestir fóru þangað
niðureftir þi'átt fyrir ófærð og illveður. Þar
var svo dansað eftir fjörugum harmonikku-
tónum í flöktandi skini kertaljósanna. í lok-
in tilkynnti skólameistari, að sennilega yrði
ekkert rafmagn komið í fyrramálið, og yrði
þá ekkert kennt í fyrsta tíma. Lustu þá
margir upp ósviknu fagnaðarópi.
Og svona liðu dagarnir, einn af öðrum.
Laxá týndist, og rafmagnið kom ekki. Margt
var sér til gamans gert, og þrisvar voru
haldnar kvöldvökur. Margir minnast eflaust
sögunnar, sem hann Sigurður „brilleraði“
í, og hinnar lifandi frásagnar skólameistara
af því sem hann kallaði „hræðilegustu nótt-
ina í lífi sínu“. Kennsla dróst verulega sam-
an, ýmsum að sársaukalausu, og mikið var
sungið. Reyndi þá margur á hæfni radd-
bandanna, sem lítið hafði gert af því áður.
Málfundir voru og haldnir.
Tekin var upp að nýju sú viðkunnanlega
tradition að gefa mánaðarfrí á afmælisdegi
Matthíasar Jochumssonar. Veðrið var þá
gengið niður, en ralmagnið ókomið. Síð-
degis sama dag var haldin bókmenntakynn-
ing. Lesið var úr verkum Matthíasar, og
skólameistari flutti erindi um skáldið.
Að kvöldi föstudagsins hins tólfta nóv-
ember tendruðust aftur ljós í húsakynnum
skólans, og við tók grár og venjulegur hvers-
dagsleikinn. Yfirleitt sýndu nemendur still-
ingu meðan á rafmagnsleysinu stóð, þrátt
fyrir tþað, að maturinn væri ekki til á rétt-
um tíma og myrkrið kærni með allar sínar
fi'eistingar. Og eflaust munu þessir dagar
auka drjúgum skerfi við þann sjóð skemmti-
legra minninga, sem hver nemandi hefur
á brott með sér héðan úr skólanum.
Rögnvaldur Hannesson.
M U N I N N 35