Muninn

Ukioqatigiit

Muninn - 01.03.1961, Qupperneq 4

Muninn - 01.03.1961, Qupperneq 4
() mannsins, mikil fól, og tekst föngunum að koma þeim báðum fyrir kattarnef við ein- róma fögnuð áhorfenda. Leikurinn gerist um jólaleytið í dagstofu kaupmannshjón- anna, allur á einum sólarhring. Hann er fjörugur frá upphafi til enda og atburða- rásin mjög hröð. Leikstjóranum hefur tek- izt að skapa ágætt tempó og staðsetningar allar eru snilldarlegar. Hinsvegar virðist, sem framsögn hafi verið látin sitja á hakan- um, það eru undarlega margir leikararnir óskýrir og þvoglumæltir. Þetta skennnir þó ekki heildarsvipinn, sem er ágætur, en þetta er þó atriði, sem hefði mátt fara betur. Ýmsir hafa haldið því fram, að „tempóið“ sé of mikið og að leikararnir, sem hlut eiga að máli, séu óskýrir af þeim orsökum. En hversvegna ekki þá hinir? Nei, leikurinn má ekkert rnissa af „tempóinu", annars verður hann þyngslalegur og leiðinlegur. Pétur Einarsson leikur fangann Jósef, en það er eitt veigamesta hlutverk leiksins. Pétri tekst yfirleitt vel upp og sums staðar prýðilega. Hann er þróttmikill og öruggur á sviðinu, missir hvergi tempóið og tekst vel að túlka hinn listræna fjármálasnilling. Framsögn hans er samt stundum nokkuð ógreinileg. Karl Grpnvold leikur Júlíus. Hann hefur skemmtilega framsögn og er engu síður öruggur á sviðinu en Pétur. Þó f'innst mér nokkuð skorta á persónutúlkun hans. Júlíus verður á stundum ungæðisleg- ur í meðförum hans, og hið innilega sam- band, sem á að vera á milli hans og Emelíu, næst ekki. Þorv. G. Einarsson skilar Alfreð mjög vel, einkum er leikur hans í fyrsta þætti góður (samtal þeirra Maríu Lovísu er eitt bezta atriði leiksins). Hinsvegar eru hreyfingar hans á sviðinu ekki jafn öruggar og samfanga hans. Handapatið er óeðlilegt. Felix Ducotel, hinn góðlynda og heiðarlega kaupmann, leikur Guðmundur Sigurðsson og gerir það vel. Hann skilur hlutverk sitt til hlítar. Góðmennska, lieiðarleiki og ró- lyndi kaupmannsins skín af honum. Og enginn skyldi halda bik og úrræðaleysi draumóramannsins byrjunarörðugleika. — Emefíu, konu kaupmannsins, leikur Jóna Burgess. Hún leysir það vel af hendi, fram- sögn hennar er mjög góð og leikurinn jafn og vandaður. Guðrún Sigurðardóttir leikur dótturina, hina saklausu, jafnvel einföldu Maríu Lovísu. Leikur hennar er mjög góð- ur. Hún skilar heilsteyptri, lifandi persónu. Hreyfingar allar, látbragð og framsögn er í fullkomnu samræmi. Hún er jafnvíg hvort heldur hún sýnir ást, gleði eða vonbrigði ungu stúlkunnar. Hún á það sammerkt með Þorvaldi og Einari Oddi að leika af innlifun. Það fannst mér skorta nokkuð á hjá sunrum hinna. — Henry Trochard, kaupsýslumaðurinn og frændinn óttalegi, er leikinn af Einari Oddi. Þetta er ekki vandskilið hlutverk, enda skilar Einar því með miklum ágætum. Allt fas og látbragð 5C MUNINN

x

Muninn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.