Muninn - 01.03.1961, Qupperneq 5
er gott, en framsögn nokkuð ábótavant. —
Yngri frændann, Pál, leikur Jón Sæm. Sig-
urjónsson. Þetta er mjög torskilið hlutverk
og erfitt (frá höfundarins hendi). En Jón
stendur fyrir sínu og leikur prýðilega.
Hann missir aldrei tökin á hlutverkinu og
tekst jafnvel að vera skemmtilegur í þessu
annars vanþakkláta hlutverki. — Helga
Mpller leikur frú Parole. Leik hennar er
í mörgu ábótavant, og naumast hægt að
tala um túlkun í því sambandi. Þó verður
að taka það frarn, að hún mun hafa verið
veik nokkurn hluta þess alltof stutta tíma,
sem leikstjórinn var hér á Akureyri. — Arn-
ar Jónsson leikur liðsforingjann, lítið hlut-
verk, þannig, að það verður ekki betur gert.
Arnar hefur sýnt svo ekki verður um villzt,
að hann er ágætum leikhæfileikum búinn,
og þetta hlutverk var alltof lítið handa
honum. —
Annað starfslið leikfélagsins á einnig hrós
skilið fyrir sinn þátt, og vil ég þó sérstak-
lega nefna Skúla G. Johnsen, formann leik-
félagsins, Stefán Jónasson og Pál Helgason,
sem hafa sýnt frábæran dugnað og sam-
vizkusemi í starfi sínu. Og ekki má gleyma
Árna Kristjánssyni, kennara, sem hefur ver-
ið stoð og stytta leikfélagsins frá öndverðu.
Um leið og við þökkum gömlu „stríðsjálk-
unum“, sem brátt munu hverfa héðan úr
skóla, biðjum vér nýliðunum allrar bless-
unar í komandi starfi. Þau hafa sýnt okkur
á þessum sýningum, að ekki jiarf að óttast
um framtíð L. M. A.
í guðsfriði.
S. G.
M U N I N N 57